Vikan - 09.10.1952, Side 2
2
VIKAN, nr. 39, 1952
í FRÁSÖGUR FÆRAIMDI
I*A» er fyrst í frásögur fær-
andi, að í framhaldi af greininni
í síðustu VIKU um íbúðabygrging-
ar segir einn Reykvíkingur sínar
farir ekki sléttar. Hans saga er
í stuttu máli
á þá leið, að
hann hafi
farið að velta
fyrir sér hús-
byggingu fyr-
ir rösklega
tveimur árum,
en svo hafi
tveir menn við
tvö skrifborð
sannf ært hann
um það á að-
eins tveimur dögum, að fyrir-
tækið væri algerlega vonlaust.
Fyrri manninn ræddi hann við
fyrri daginn uppi í Fjárhagsráði,
og sá tjáði lionum, að hann gæti
ekki fengið fjárfestingarleyfi
nema hann væri fyrst búinn að
tryggja sér lóðina.
Síðari manninn ræddi hann við
síðari daginn hjá lóðaskrárritara,
og sá tjáði honum, að hann gæti
ekki fengið byggingarlóð nema
hann væri fyrst búinn að tryggja
sér fjárfestingarleyfið.
Og þar með var draumurinn
búinn.
Vi» fáum stundum á VIK-
UNNI bréf, sem við erum i vand-
ræðum með að svara. Við viljum
ekki vera hortug við viðskiptavin-
ina og svara þeim skætingi, og
auk þess stendur einhversstaðar
skrifað, að viðskiptavinir hafi
alltaf rétt fyrir sér. En stundum
hafa þeir , bara ekki rétt fyrir
sér alveg þvert ofan í reglima —
og þá erum við í vandræðum
með að svara.
Til dæmis er ákaflega erfitt að
svara bréfi, þar sem kvartað er
yfir því, að við segjum aldrei
neitt frá Elizabeth Bretlands-
drottningu. I>að stendur nefnilega
í bókunum okkar, að við höfum
sagt allrækilega frá drottning-
unni 20. mars síðastliðinn. En
eitt svona bréf fengum við samt
um daginn.
ÞeSSI bréfritari var líka hálf
gramur við okkur út af því, að
við hefðum verið að birta alls-
konar „vitleysu“ um olympíuleik-
ana í sumar, en sniðgengið á hinn
bóginn algerlega íþróttamótið að
Eiðum. I>að var á honum að heyra
að þetta væri rammvitlaus blaða-
mennska, og það getur svosem
vel verið, að hann hafi rétt fyrir
sér. En þá er líka hitt að athuga,
að ef við hefðum sagt einungis
frá íþróttamótinu að Eiðum, og
sniðgengið gjörsamlega olympíu-
leikana í Helsingfors, þá hefðu
alveg vafalaust einhverjir orðið
til þess að skrifa okkur og segja,
að þ a ð væri rammvitlaus blaða-
mennska.
Svona er heimurinn vondur.
En úr því við erum farin að
tala um Elizabeth drottningu (og
til þess að friða téðan bréfritara
pínulítið), þá er það frá henni að
segja, að hún
hefur átt
feikilega ann-
ríkt sumar.
Ég hef þetta
eftir blaðinu
Picture Post,
sem fyrir
skemmstu
birti fjölda
fagurra lit-
mynda af
ungu drottningunni með texta,
Þetta annriki (segir blaðið)
stafaði fyrst og fremst af því,
hve Bretum finnst gaman að
láta þjóðhöfðingjana sína leggja
homsteina og opna sýningar. Það
mátti víst heita, að sá dagur Iiði
ekki í lífi Elisabetu í sumar, að
hún þyrfti ekki að opna ein-
hverja bannsetta sýninguna; og
svo er ekki að sökum að spyrja:
þegar þjóðhöfðingi opnar sýningu,
þá verður hann að gera svo vel
og skoða hana á eftir.
E LIZABETH er á fyrrnefnd-
um litmyndum að opna landbún-
aðarsýningu og hersýningu, og
auk þess eru af henni myndir að
gegna öðrum skyldustörfum, svo-
sem að vera viðstödd veðreiðar,
tala við gamla soldáta, halda
garðveizlu, kveðja Grænlandsfara
með handabandi og ríða rauðum
fáki um London.
Þetta síðastnefnda er mikill við-
burður og hátíðlegur, eins og
myndin ber með sér. Riddaraliðs-
sveit úr lífverðinum sýnir þarna
hvað í henni býr i eldrauðum,
gullbryddum einkennisbúningum,
og fyrir sveitinni fer drottningin
sjálf, sömuleiðis í eldrauðum ein-
kennisbúningi, og ríður kvenveg.
Bretar eru að vonum hrifnir af
því að sjá drottninguna sína
svona hermannlega og myndar-
lega, og glæsileg er hún óneitan-
lega í rauða búningnum og höfð-
ingleg öll hennar framkoma.
Og þá ekki meira af drottn-
ingunni núna.
Þo er bezt við höldum okkur
við Bretland, fyrst við erum kom-
in þangað á annað borð. Eg hef
nefnilega hérna á skrifborðinu
mínu alveg stórmerkilega frétt
fyrir sveitamenn, og þó víst fyrst
og fremst fyrir þá, sem eitthvað
fást við hænsnarækt. I>að stend-
ur í fréttinni (í stuttu máli), að
fjögurra ára gömul hæna hafi
verpt 21 eggi á fjórum tímum, og
það fylgir auðvitað mynd af hæn-
unni, sem á heima í Little Torr-
ington, North Devon, Englandi.
Á myndinni sýnist þetta samt
ósköp venjuleg hæna.
Annar stórkostlegur við-
burður, sem varð fyrir skemmstu
og heldur hefur ekki farið fram
hjá blaðamönnunum í ríki mey-
kóngsins, var á þá lund, að prins-
essa slökkti á tveimur kertum
með því að
blása á þau.
Þannig var
að minnsta
kosti fyrir-
sögn fréttar-
innar, en hún
kom í stærsta
fréttablaði
veraldarinnar,
sem er e k k i
í Bandaríkj-
unum, þótt
ótrúlegt sé.
Það heitir Daily Mirror, og ég
hef vikið að því í þessum dálk-
um áður.
En fréttin var svona:
„Anna prinsessa hélt upp á
annan afmælisdaginn sinn í gær
í fjölskylduboði í Balmoral-kast-
ala. Drottningin og hertoginn af
Edinborg voru viðstödd, þegar
hún slökkti á tveimur kertum
með því að blása á þau, en kertin
stóðu á sykurköku, sem kastala-
kokkurinn hafði bakað.“
G. J. A.
Pósturinn
Svar til Ljótunnar og Fléttunnar.
Því miður eruð þið of ungar til
að við getum gefið ykkur ráð til að
fitna eða sagt nákvæmlega hve feit-
ar þið eigið að vera. Á þessum aldri
er svarið við öllum
,slikum spurning-
um: Það lagast.
Aftur á móti
birtum við með
ánægju myndina
af Red Skelton.
Hann er fæddur
16. nóvember 1910
og hefur alla sína
æfi verið gaman-
leikari. Mickey
Rooney lét taka
reynzlukvikmynd
af honum og sagt
er að það sé bezta
myndin sem hann hefur leikið ,í.
1. Geturðu sagt mér livað muni
kosta og hvar muni fást t Reykjavík,
reiknmgsvélar, sem annaðhvort
leggja saman eða margfalda eða gera
hvorutveggja ?
2. Er nokkuð athugavert við að
skrifa íslenzkum leikurum og biðja
um mynd með eiginhandaráritun? Er
nóg dð skrifa t Þjóðleikhúsið til þeirra
leikara, sem þar starfa? Trix.
1. Samlagningavélar fást hjá mörg-
um innflytjendum. Þeir helztu eru:
Einar J. Skúlason, Bröttugötu, Rem-
ington Rand, Þorsteinn Jónsson eða
Orka h.f., H. Ólafsson og Bernhöft,
Gísli J. Johnsen, Egill Guttormsson,
Garðar Gíslason.
Verðið er frá 2.000 kr. og upp í
12.—14. þús. Það er bezt fyrir þig
að leita nánari upplýsinga hjá fyrr-
nefndum fyrirtækjum.
2. Það er áreiðanlega engin ókurt-
eisi að biðja um áritaða mynd af ísl.
leikurum og sjálfsagt fyrir þig að
reyna það. Aftur á móti er ekki víst
að þeir kæri sig um slík fjárútlát,
því það er dýrt að láta taka myndir.
Þjóðleikhúsið kemur bréfunum vafa-
laust til skila.
Kœra Vika!
Við erum héma tvœr í miklum
vanda. Við vinnum á stað, sem seld-
ur er ís, en vitum ekki hvort réttara
er að segja: tvo ís eða tvo ísa.
Tvœr i vanda.
Svar: Tvo ísa.
Svar til Hólmfríðar Guðmundsdóttur.
Spurningunni um bréfaskóla S.l.S.
svarað í 35. tölublaði VIKUNNAR,
11. sept. þ. á. Annars hefur skólinn
skrifstofu í Sambandshúsinu í
Reykjavík.
Red Skelton
FLUGÁÆTLUN
í október 1952
(Innanlandsflug)
FRÁ REYKJAVlK:
; Sunnudaga:
■ Til Akureyrar
! — Vestmannaeyja
■ Mánudaga:
! Til Akureyrar
— Kópaskers
— Norðfjarðar
— Seyðisfjarðar
— Patreksf jarðar
; — Isafjarðar
— Vestmannaeyja
; Þriðjudaga:
i Til Akureyrar
— Sauðárkróks
— Blönduóss
— Vestmannaeyja
— Vestfjarða
■ Miðvikudaga:
j Til Akureyrar
; — Sigluf jarðar
— lsafjarðar
— Hólmavíkur
— Hellisands
— Vestmannaeyja
j Fimmtudaga:
■ Til Akureyrar
: — Sauðárkróks
— Blönduóss
— Reyðarf jarðar
— Fáskrúðsfjarðar
— Vestmannaeyja
| Föstudaga:
Til Akureyrar
— Hornafjarðar
— Fagurhólsmýrar
j — Kirkjubæjarklausturs
; — Patreksfjarðar
— lsafjarðar
— Vestmannaeyja
Laugardaga:
Til Akureyrar
— Sauðárkróks
— Blönduóss
— Isaf jarðar
— Egilsstaða
— Vestmannaeyja
i Flugfélag íslands h.f.
LITIÐ UM ÖXL
greinaflokkur Gils Guðmunds-
sonar í SAMTlÐINNI er bráð-
skemmtilegur. Árgjald fyrir 10
hefti (320 bls.) aðeins 35 kr.
Sendið áskriftarpöntun, og þér
fáið tímaritið frá seinustu ára-
mótum. Árgjald fylgi pöntun.
TJtgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.