Vikan


Vikan - 15.01.1953, Side 13

Vikan - 15.01.1953, Side 13
EFTI R Tuttuqu árum síðar ^ □’HENRY LÖGREGLUÞJÓNNINN, sem var á vakt, gekk hnarreist- ur upp götuna. Hann gekk hnar- reistur af gömlum vana, en ekki til þess að vekja á sér athygli, því áhorfendurnir voru fáir. Klukkan var tæplega tíu að kvöldi, en hráslagalegar vind- hviður og strjálir regndropar gerðu það að verkum, að götur- nar voru hartnær auðar. Karlmannlegi og dálítið reig- ingslegi lögregluþjónninn var í- mynd laga og réttar, þar sem hann tók í hurðirnar um leið og hann gekk framhjá, sveiflaði kylfunni af mikilli leikni og leit öðru hvoru rannsóknaraugum inn í friðsöm húsasund. Þetta hverfi var alltaf komið í ró mjög snemma. Á einstöku stað sást ljós í tóbaksbúð eða matarbar, sem ekki lokaði allan sólar- hringinn; en í flestum húsum voru verzlanir eða skrifstofur, sem fyrir löngu var búið að loka. Um miðbik einnar húsasam- stæðunnar hægði lögregluþjónn- jnn skyndilega á sér. Maður með vindil í munninum hallaði sér upp að veggnum við dyrnar á ljóslausri, járnvöruverzlun. Þeg- ar lögregluþjónninn gekk til mannsins, sagði sá síðarnefndi hratt og sannfærandi: — Þetta er allt í lagi, lög- regluþjónn. Ég er bara að bíða eftir vini mínum. Við ákváðum þetta stefnumót fyrir tuttugu árum. Finnst yður það ekki dá- lítið einkennilegt ? Jæja, ég skal segja yður alla söguna, svo þér getið sannfærzt um, að þetta sé rétt. Fyrir tuttugu árum var veitingahús hérna þar sem verzlunin er núna — veitinga- hús Stóra Jóa Brandy. — Já, það var hérna þangað til fyrir fimm árum, þegar það var rifið. Maðurinn við dyrnar tók upp eldspýtur og kveikti í vindlin- um. I ljósbjarmanum kom í ljós fölt, hvasseygt andlit með sterk- legum kjálkum og litlu hvítu öri við hægri augabrún. I hálsklútn- um hans var einkennileg nál með stórum demanti. — Fyrir tuttugu árum, sagði maðurinn, borðaði ég hér hjá Stóra Jóa Brandy með Jimmy Wells, nánasta vini mínum og einhverjum þeim besta dreng sem til er í öllum heiminum. Við ólvunst upp saman eins og bræð- ur hér í New York. Ég var þá átján ára og Jimmy tvítugur. Morguninn eftir ætlaði ég að leggja af stað vestur til að freista gæfunnar. Það var ekki hægt að mjaka Jimmy frá New York; honum fannst það vera eini staðurinn, sem væri nokk- urs virði á allri jörðunni. Jæja, þetta umrædda kvöld ákváðum við að hittast hérna aftur eftir nákvæmlega tuttugu ár, hvernig sem á stæði og hversu langt sem við þyrftum að fara. Við álitum, að eftir tuttugu ár hlytum við að vera búnir að vinna okkur upp og örlög okkar að vera á- kveðin. — Þetta er mjög merkileg saga, sagði lögregluþjónninn. Mér finnst samt liðinn nokkuð langur tími frá síðasta stefnu- mótinu. Hafið þér ekki frétt neitt af vini yðar síðan þér fór- uð? — Jú, við skrifuðumst á fyrst, svaraði hinn, en eftir eitt eða tvö ár hættum við. Það er nokkuð víðáttumik- ið þarna fyrir vestan, eins og þér vitið og ég var mikið á ferðinni. En ég er viss um að Jimmy hittir mig hérna ef hann er á lífi, því hann hefur alltaf verið mesta tryggðatröll og eins áreiðanlegur og nokkur maður getur verið. Hann gleymir þessu ekki. Ég er sjálfur kominn þús- und mílna veg til að standa hérna við dyrnar í kvöld, og það er sannarlega þess virði, ef gamli félaginn minn kemur. Maðurinn dró upp fallegt úr. Lokið á því var alsett litlum demöntum. — Vantar þrjár mínútur í tíu, sagði hann. — Klukkan á mín- útunni tíu skildum við hérna fyrir framan dyr veitingahúss- ins. — Svo yður hefur gengið vel fyrir vestan, er það ekki ? spurði lögregluþjónninn. — Jú, því megið þér trúa. Ég vona, að Jimmy hafi gengið þó ekki væri nema hálft eins vel. Hann var alltaf lúsiðinn. Ég hefi orðið að keppa við slungn- ustu menn til að komast yfir auðæfi mín. Menn komast í fast- ar skorður hér í New York. Þeir þurfa að komast vestur til að fá skerpuna aftur. Lögregluþjónninn sveiflaði kylfunni sinni og steig nokkur skref. — Ég ætla að halda áfram. Ég vona að vinur yðar komi. Ætlið þér að gefa honum naum- an tíma? — Nei, það getið þér reitt yð- ur á, svaraði hinn. Hann fær að minnsta kosti hálftíma. Ef Jimmy er á lífi, verður hann kominn fyrir þann tíma. Verið þér sælir, lögregluþjónn. — Góða nótt, svaraði lög- regluþjónninn. Hann hélt áfram eftirlitsferðinni og reyndi allar hurðir um leið og hann gekk framhjá. Nú var komin ísköld úðarign- ing og strjálar vindhviðurnar voru orðnar að stöðugu roki. Þeir fáu, sem voru á ferli í hverfinu, hröðuðu sér þögulir og skuggalegir áfram með upp- bretta kragana og hendurnar í vösunum. Og alltaf stóð maður- inn, sem kominn var þúsund mílna vegalengd á svo óvisst stefnumót, að það var næstum fjarstæða, við jámvöruverzlun- ina, reykti og beið. Hann beið í tuttugu mínútur. Þá kom grannur maður í síðum frakka með uppbrettan kragann yfir götuna og hraðaði sér beint til mannsins sem beið. — Ert þetta þú, Bob ? spurði hann vantrúaður. — Ert þetta þú, Jimmy Wells ? hrópaði maðurinn við dyrnar. — Jú, svei mér þá, sagði ný- komni maðurinn og greip um báðar hendur hins. Jú, þetta er svo sannarlega Bob. Ég þóttist viss um að finna þig hér, ef þú værir á annað borð á lífi. Jæja — tuttugu ár er langur tími. Gamla veitingahúsið er horfið, Bob; ég vildi að það væri hér ennþá, svo við gætum borðað þar í annað sinn. Hvernig hefur þér liðið fyrir vestan, gamli minn? — Ágætlega. En þú hefur breyzt mikið, Jimmy. Ég hélt þú værir talsvert lægri en þú ert. — Það tognaði dálítið úr mér eftir að ég varð tvítugur. — Gengur þér vel hér í New York, Jimmy? — Sæmilega. Ég vinn hjá bænum. Komdu, Bob; við skul- Framhald á bls. lJf. Valentino og; Natacha, stúlkan sem hann aldrei gat gleymt. t)r tveimur myndum Valentinos — 1924 og 1926. Konungur kvennagullanna I ugir kvikmyndaleikara hafa orðið heimsfrœg kvenna- gull síðan fyrsta kvikmyndavélin iók fyrstu myndina af fyrsta kúa- smalanum flengriðandi á eftir bóf- um og rauðskinnum. En einn kvik- myndaleikari varð kóngur allra kvennagulla, og það má segja liann sé það enn þann dag í dag, þó liann sé löngu dauður. Maður- inn lifir í sögunni: Rodolplio Al- fonzo Raffaelo Pierre Filibert Guglielmi di Valentina d’Anton- guolla — öðru nafni Rudolp Volen- tino. Hann var fœddur 1895 í ítalska þorpinu Gastellaneta, reyndi 15 ára að ganga í ítalska flotann, en var liafnað. Átján ára tók hann sig svo upp og hélt til Bandarikj- anna og settist að í New York. Ilann eignaðist italska vini í heimsborginni og lét það verða eitt sitt fyrsta verk að lœra að dansa. Vinir hans voru miklir gleðimcnn og Valentino sótti með þcim skcmmtistaðina af eintómri skyldurækni. En hann varð líka afburoadansmaður og svo mikill kavaler, að hann fór að hafa ofan af fyrijr sér með því að leigja á sér lipru fœtuma, þ. e. hann tók að sér að fara á skemmtistaði með efnuðum einmana konum og dansa við þær fyrir þóknun. Svo kom að þvi, að hann fór að sýna dans, og síðan tók Holly- wood við. Hann giftist leikkonu í nóvember 1919, en liún liljóp frá honum í sjálfri brúðkaupsveizl- unni og þau skildu að lögum mán- uði seinna. Hann var um þessar mundir byrjaður að vinna sér frægðar- orð scm kvikmyndaleikari. En ballið hófst ckki fyrir alvöru fyrr en nokkru eftir hið mislukkaða hjónaband, þá lék hann í mynd- inni „Fjórir riddarar“ og setti állt á annan endann í hinum banda- riska kvikmyndaheimi. Um líkt leyti varð Valentino ástfanginn á ný, það var i stúlku með kvikmyndanafnið Natacha Rambova. Hann tilbað hana og gekk á eftir henni með grasið í skónum. En hún var um það bil einasti kvenmaðurinn í öllum Bandarikjunum, sem ekki var œrð af hrifningu, og hann mátti biðja hennar oft og vel, áður en hún féllst á að giftast lionum. Um leið tók liún að sér að stjóma kvik- myndaferli hans og hann varð enn frœgari. Natacha var mikil listakona og slunginn kaupsýslumaður og Valentino var öllum mönnum ham- ingjusamari. En svo endurtók Hollywood-sagan sig: Natacha sótti um skilnað. I nýjustu œfisögu hins mikla kvennagulls er sagt, að liann hafi elskað siðari konuna sína fram í andlátið. Hann reyndi að gleyma raunum sínum með því að steypa sér út í skemmtanalíf kvikmynda- bcejarins, var tíður gestur í næt- urklúbbunum i fylgd með Pola Negri og Vilma Banky, hinum miklu stjömum þöglu myndanna. En það var farið að hálla undan fœti fyrir honum, þó enn héldi hann kvenhyllinni. Það var kald- hœðni örlaganna, að maðurinn, scm allar konur tilbáðu, varð að sjá á bak einu konunni, sem hann kœrði sig um. Hann veiktist í einum nœtur- klúbbnum og nokkrum dögum síð- ar var hann látinn. Það var 1926. Fregnin um andlát hans barst eins og eldur í sinu um öll Bandaríkin, um állan lieim. 90,000 manns gengu fram hjá likbörum hans á dag á meðan liann stóð uppi. Kon- ur grétu, báðu guð að hjálpa sér, œptu og féllu i yfirlið. Flugvélar vörpuðu blómsveigum á leiðið lians og Pola Negri leið í ómegin við jarðarförina. Hann dó á há- tmdi frœgðar sinnar, hinn ókrýndi konungur þerra karlmanna, sem konumar gefa hjörtu sí?i — og tár — í bíóum heimsins. 13

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.