Vikan


Vikan - 26.02.1953, Blaðsíða 4

Vikan - 26.02.1953, Blaðsíða 4
FLÓTTINN FRÁ HVERSDAGSLÍFINU OTRAX og hún heyrði úti- ^ hurðina skella á eftir hon- um, fór hún að skipta um föt. Með skjálfandi höndum tók hún vínrauða silkikjólinn — kjörgripinn — út úr skápnum, dró bætta, gráa léreftskjólinn yfir höfuðið, settist fyrir fram- an spegilinn og fór að nudda rauðum farða á kinnamar. Hún fann hvernig hjartað barðist í brjósti hennar og hún reyndi að róa sig með því að brosa. 1 kvöld yrði hún að vera róleg og örugg — ensk hefðarkona fram I fingurgómana. Leikstjórinn hafði sagt, að hún gæti það vel, ef hún herti upp hugann. En það var stundum erfitt, þegar hún hafði staðið allan daginn í hálf- dimmri, mollulegri búðinni og selt vindla, sígarettur, blöð og öl og deilt öðru hvoru um það við Henrik, hvort gamall viðskiptavinur hefði fengið rétta tegund eða af hverju það vantaði nokkra aura í kassann. Og þegar maður var með allan hug- ann við setningar hefðarfrúarinnar og reyndi að lifa sig inn í hlutverkið með Sir Robert — við vaskinn bak við hengið — þá . . . Þegar hún lét kjólinn falla yfir höfuðið og fann mjúkt silkið koma við sig, varð henni hugsað til Al- brechtsens. Fyrsta kvöldið hafði hann stanzað við rimlana í leikfimissaln- um og kinkað Virðulega kolii til hvers um sig, svo Ijósið lék í svörtu, sléttkembdu hárinu. Ef Henrik grunaði — slagæðin í hálsi hennar sló ört við tilhugsun- ina — nei, þau höfðu til allrar ham- ingju gert með sér samning. Þegar Eftir Knud E. Andersen Henrik spilaði billiard, mátti hún fara í bió, og þegar það kom fyrir, að hann spurði um myndina, gat hún alltaf svarað, því hún las sýningar- skrárnar. Nú var hún búin að finna merki- legra og þýðingarmeira viðfangs- efni, sem Henrik vissi ekki að var til. 1 þessari nýju tilveru voru engir kassaskellir, enginn uppþvottur eða gólfþvottur, heldur draumar og leyndar þrár, sem urðu að æfintýri á hverjum miðvikudegi og hún var sjálf þátttakandi í. Leiðinlegu brúnu stengurnar og gráa reypið í leikfimissalnum, þar sem þau æfðu, hurfu, þegar Albrecht- sen tilkynnti að æfingin gæti byrjað. 1 huganum steig hún inn í ríkulega stofu í Wilsonhöllinni, þar sem Godt- fredsen póstafgreiðslumaður bauð henni riddaralega arminn og var ekki lengur sá Godtfredsen, sem sat allan daginn bak við rimlana og afgreiddi frímerki, heldur Sir Robert, sem eyddi tíma sínum á hestbaki, við vín eða með konum. Hún leit á klukkuna á náttborð- inu — nú yrði hún að fara að flýta sér! Hvar var hatturinn, sem Henrik vissi ekki að hún hafði keypt? Ung- frú Möller fannst hann svo Parísar- legur og Albrechtsen hafði hrópað upp, þegar hann sá hann: Þér eruð eins og heimskona með þennan hatt, frú Bagge! Svo tók hún marglita hálsklútinn og snjáðu kápuna, sem var orðin of lítil á systur hennar. Loks var hún tilbúin og greip í flýti samanvöfðu pappírsrúlluna og fallegu hanzkana. Hún var strax komin í gott skap. Hún slökkti ljósið í svefn- herberginu, opnaði hurðina fram a ganginn — og stanzaði. Heyrði hún eitthvað ? Æ — lykli var stungið í hurðina á búðinni. Eitt augnablik var eins og hjarta hennar hefði hætt að slá, en 'svo hamaðist það eins og það ætlaði að springa. Hún gat hvorki hreyft hönd né fót til að forða sér. Hún stóð bara eins og lömuð í dyrunum og hlustaði á fótatakið niðri í búðinni. Henrik dró alltaf annan fótinn, síð- an hann fékk gigtina. Nú kom stór og svartur skuggi upp stigann. Hún kipptist við þegar hann kveikti ljósið. — Stendurðu þarna í myrkrinu ? þrumaði hann. — Já . . . ég . . . — Klukkan er yfir sjö og ég hélt að þú værir farin í bíó. Þegar hún svaraði ekki hélt hann áfram: — Karl varð allt í einu veik- ur og þeir gátu ekki látið mig vita. Svo var eins og hann sæi hana skyndilega og augnahvarmarnir dróg- ust saman: — Hvað er að sjá þig? Þú ert öll útmökuð. Ertu að fara í veizlu ? Af hæðnisbrosinu réð hún, að það datt honum ekki i hug. — Nei, ég . . . (hvers vegna hafði henni ekki dottið í hug að þetta gæti komið fyrir). Hún greip til fyrstu af- sökunarinnar, sem henni datt i hug: María er ein heima í kvöld. Ég lofaði að líta inn til hennar. Stór og feitur slútti hann yfir hana. Hjá honum hafði hún einu sinni leit- að skjóls. En óttinn, sem heltók hana, rak allar gamlar minningar á brott. Það sem einu sinni hafði verið trygg- ur og traustur varnarveggur gegn köldum og ógnandi heimi, var nú orð- ið að fangelsismúr, sem lokaði hana inni, svo henni fannst hún vera að kafna. En hún hafði aldrei þorað að rífa sig lausa; hún vissi ekki, hvert hún gæti farið, og konur á hennar aldri áttu ekki um margt að velja. Hún hafði tekið þann kostinn að flýja inn í draumana og reynt að gleyma um stund. Auglýsingin: „Áhugasamt fólk óskast til leiksýninga, Leikfé- lagið Melpomene," hafði visað henni á hæli þar sem hún gat leitað skjól3 gegn búðinni, heimilinu og Henrik. Hún glúpnaði alveg undir háðs- legu augnaráði hans: Svo frúin hef- ur fengið sér nýjan hatt! Við erum bara farin að bera okkur ríkmann- lega! Ha-ha, en hvað þú lítur asna- lega út. Nú fannst henni það líka. Hvers- vegna varð allt svona lítilfjörlegt og hlægilegt, þegar Henrik leit á það og brosti þessu háðslega brosi? — Hvað ertu með þarna? Ósjálfrátt reyndi hún að fela það: — það mátti hann ekki sjá, en hann var búinn að grípa utan um bláu pappírsrúlluna. — Slepptu þessu, hvæsti hann: gremjulega, þetta eru þó ekki leyni- skjöl ríkisins . . . Lady Cynthia, á það að vera þú ? Hann bar orðið lady fram eins og það var stafað (hvað mundi Albrechtsen segja um það?). Hún sá hvernig hann naut þess að kvelja hana. •— Þú ert svei mér falleg lady. Svo< breyttist röddin allt í einu og varð kuldaleg og þrumandi: Þú hringir auðvitað og segir að þú verðir ekki með í þessu. — Henrik, sagði hún skelfd, það verður frumsýning á laugardaginn. — Hún verður þá án þin. Það var engu lílcara en að þessi rauðbirkni, æðaberi maður stækkaði, þangað til hann virtist fylla herbergið. Hún sá. reiðina og fyrirlitninguna í svip hans. Hún heyrði ekki lengur hvað hann sagði. Áðeins ein hugsun komst að: hætta við það . . . hætta þegar að- eins voru tveir dagar til frumsýning- arinnar . . . — Henrik, sagði hún biðjandi, ég get ekki svikið þau núna. Hann geiflaði munninn eins og- hann ætlaði að skyrpa einhverju út úr sér. — Vitleysa, ætlarðu að gera þig að fífli, á þínum aldri? Þú sem gætir átt fullorðin börn. Hann teygði fram höfuðið eins og hann ætlaði að stanga hana. Hún hrökk undan. Þarna kom það ? Læknirinn hafði þó sagt, að hún mundi ekki geta átt börn eftir að hún missti fóstrið. — Geturðu ekki notað miðviku- dagsfríin þín betur? — Nei, nú yrði hún að bera hönd. fyrir höfuð sér. Hún var þó mann- eskja — ekki þræll. — Þú spilar billiard, sagði hún. — Já, en það er skynsamlegur leikur. Ætlarðu að hringja? Hún stirðnaði og langaði til að hljóða: Nei, Henrik, það get ég ekki gert. Þú mátt ekki taka þetta frá. mér líka. Hún skildi ekki, hvernig hún hafði fengið hugrekki til að segja þetta, en nú gat hún ekki þagnað: Þú hjálpaðir mér þegar ég stóð ein uppi eftir að mamma dó, en þú beygðir mig líka undir vilja þinn — niðurlægðir mig og gerðir allt, sem mér var einhvers virði,. hlægilegt. Þessi stóri, feiti maður stóð þarna og starði á hana. Ekkert varð ráðið af svip hans. — Ég geri allt fyrir þig, Henrik, hjálpa þér í búðinni, sé um heimilið, stoppa sokka og bý til mat, en ég get ekki fórnað öllu lífi mínu fyrir þig — þú hefur engan rétt til að krefjast þess. Allt í einu veitti hún því athygli að hún var komin framhjá. honum, framhjá þessu stóra flykki í jakkafötunum og nú stóð hún í stig- anum, sem lá niður í búðina og sá móta fyrir afgreiðsluborðinu, kössun— Framhald á bls. 14. 4

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.