Vikan - 26.02.1953, Side 14
Nýtt vátryggingafélag
STOFNAÐ hefur verið hér í bæ nýtt trygg-
ingafélag, VÁTRYGGINGAFÉLAGIÐ H.F. Hið
nýja félag mun yfirtaka að mestu vátrygginga-
starfsemi Trolle & Rothe h.f. og Carl D. Tulinius
& Co., h.f. sem eins og kunnugt er hafa bæði
starfað að vátryggingum um tugi ára.
Hlutafé félagsins er 1.2 miljónir króna og er
það allt innborgað.
Stjórn félagsins skipa: Carl Finsen, form.
Bergur G. Gíslason varaform., og meðstjórnend-
ur Friðþjófur Ó. Johnson, Ólafur Georgsson og
Árni Kristjánsson.
Félagið mun taka að sér allar tegundir vá-
trygginga, er hér þekkjast, auk þess hefur fé-
lagið í hyggju að auka verksvið sitt og taka upp
nýjar tegundir vátrygginga.
Framkvæmdastjóri félagsins er Ólafur Finsen
og skrifstofustjóri Gísli Ólafsson.
(Fréttatilkynning).
Flóttinn frá hversdagslífinu
Framhald af bla. 4.
móta fyrir afgreiðsluborðinu, kössunum og flösk-
unum í myrkrinu niðri. Nú tóku allir þessir gam-
aikunnu hlutir á sig aðra mynd; þeir voru orðn-
ir að tákni þvingunar og óbærilegra leiðinda.
— Hefurðu lokið máli þínu? röddin kom inn-
an úr birtunni að baki hennar.
— Nei, ég hef ekki lokið máli mínu, Henrik,
röddin skalf af hræðslu, en orðin brutust fram
á varir hennar. — Nú fer ég og þú skalt ekki
reyna að stöðva mig. Ég ætla að fara — nú ætla
ég að vera með.
Hún staulaðist gegnum myrkrið. Nú var hún
komin að dyrunum og skugginn bak við hana
stækkaði. Hún þreif í hurðina — loksins lét hún
undan og hún fann kalda goluna leika um and-
lit sitt . . .
Henrik hafði stanzað á miðju búðargólfinu.
Þegar hurðin féll að stöfum, fór kippur gegn-
um þennan stóra og feita líkama. Allt varð svo
hræðilega tómlegt í kringum hann og í kyrrð-
inni fannst honum hann heyra allt líf sitt falla
í rúst.
En úti í kvöldrökkrinu lyfti grannvaxin kona
höfðinu og gekk áfram, fyrst með hikandi skref-
um en síðan ákveðin. Hún var öll í uppnámi,
nútíð og fortíð runnu saman og framtíðin var
henni hulin, en hún var viss um eitt: nú gæti hún
leikið lady Cynthiu.
Andlát Edgware lávarðar
Framliald af bls. 6.
í kvöld, M. Poirot, sagði hún á leiðinni að lyft-
unni. —• Það er svo dásamlegt hvernig allt virð-
ist koma upp í hendurnar á mér. Ég var einmitt
að velta því fyrir mér hvað ég ætti að gera og
svo leit ég upp og kom auga á yður við næsta
borð. Ég sagði við sjálfa mig: — Poirot get-
ur sagt mér hvað ég á að gera
— Ef ég get orðið yður að liði — hóf Poirot
máls.
— Ég er viss um að þér getið það. Ég hef
heyrt að þér séuð fullkomnasti maður i heimi.
Einhver verður að hjálpa mér út úr klípunni
sem ég er í og ég er viss um að þér eruð ein-
mitt rétti maðurinn.
Við stigum út úr lyftunni á annari hæð og
hún gekk á undan okkur inn ganginn, stanzaði
við dyrnar og steig inn í ríkulegustu íbúðina á
Savoy.
Leikkonan kastaði hvíta pelsinum sinum á
stól, litlu skráutlegu kvöldtöskunni sinni á borð-
ið og lét sig falla niður í hægindastól. Svo sagði
hún:
— M. Poirot, ég verð að losna við manninn
minn með : einhverju'móti.
Frámhald i nássta blaði.
660.
KROSSGÁTA
VIKUNNAR
Lárétt skýring:
1 eldfæris — 4 skor-
dýr — 10 rétt — 13
mann — 15 i fugli —
16 tímabilin — 17 grugg-
ugu — 19 rödd — 20
róa — 21 hnykill -— 23
vita — 25 undarleg —
29 slá — 21 tveir eins
— 32 dvelja — 33
fangamark leikhúss-
manns — 34 hljóð — 35
selja upp — 37 hrek —
39 tal — 41 syngja við
—- 42 samtals — 43
horfir — 44 vesæl —- 45
er ekki (fornt) — 47
gerast -— 48 fæða — 49
tveir eins — 50 hjálpar-
sögn — 51 hálfsvefn —
53 tveir samstæðir — 55
þyngdareining, sk.st. —
56 flíkur —■ 60 víkir —
61 leynir — 63 umlukt
— 64 gangur — 66 bein
— 68 meir en nóg — 69
egnir — 71 bíti — 72
mjúk — 73 grýtt leið —
74 forskeyti.
Lóðrétt skýring:
1 erill — 2 smágerð — 3 bjarta — 5 fléttaði
saman — 6 ask — 7 vitlaus — 8 planta — 9
algeng skammstöfun (öfug) — 10 umhverfis —
11 safna — 12 gælunafn — 14 loka — 16 bæjar-
nafn — 18 svikin — 20 þjóðsögusteinn —- 22
keyr — 23 fangamark iþróttafélags — 24 smíða-
vél (slanguryrði) — 26 utan — 27 lærði — 28
gimsteinn — 30 fuglar — 34 hörð — 36 lim —
38 hestur — 40 ílát — 41 gruna — 46 leiði ■—
47 sjá — 50 tréð — 52 óhyggin — 54 i hóp —
56 í svefni — 57 mynt, sk.st. — 58 tímatals
skammstöfun — 59 skefur — 60 jurt — 62 borg
við Eystrasalt — 63 hljóð — 64 efni —- 65 grein
— 67 óþrif — 69 tveir samstæðir — 70 beyging-
arending (öfug).
Lausn á 659. krossgátu Vikunnar.
Lárétt: 1 góuþræll — 6 söngur — 9 eiði —
10 önd — 11 klið — 13 nýbýli — 15 rakarinn
■— 17 nei — 18 auðu — 20 náðhús — 24 iðkun
— 25 ótigin — 27 Tumi — 29 Púlli — 31 sinar
— 32 anís — 33 girtan — 35 Satan — 37 ógalin
— 40 kram ■— 41 lak — 43 frækileg — 46 út-
þrár — 48 týna — 49 att — 50 Emil — 51 sökn-
uð — 52 niðadimm.
Lóðrétt: 1 grösin — 2 undrið — 3 rokk —
4 leir — 5 liðin — 6 sinnið — 7 gný — 8 reik-
ulir — 12 lagsi — 14 brautina — 16 neinir -—
19 unun — 21 álún — 22 hólsamur — 23 úti —
26 gugnar — 28 maki — 29 pakkhúss — 30
Lísa — 31 sag — 34 tólin — 36 Alfreð ■— 38
lygari — 39 neytum — 42 kætin — 44 kýli -—-
45 lama — 47 þak.
ODETTE
Framháld af bls. 12.
„Get ég ekki fengið að sleppa núna? Ég vildi
gjarnan geta hvílt mig dálítið fyrir prófstökkið
eftir hádegið."
„Sleppa? Það orð þekkist ekki hér. Þú hefur
staðið þig ágætlega og þetta er seinasta stökkið.
Upp stigann einu sinni enn og haltu olbogunum
vel að síðum þér.“
Odette hljóp upp stigann og gekk fram pallinn.
Hún settist á brúnina, beygði höfuðið niður og
stökk. Hún fann heljarmikið högg í andlit sér,
og þegar fætur hennar ientu á dýnunni fór stingur
um hægri ðkla hennar upp í hné. Hún hlaut að
hafa rekizt á bita í pallinum, og hana snarsvim-
aði. Hún stóð upp og steig fram á hægri fót, og
um leið fann hún til mikils sársauka. öklinn
skekktist er líkamsþungi hennar lagðist á hann.
Þjálfarinn studdi hana á læknavarðstofuna. Ungi
flugherlæknirinn athugaði hana í flýti. Hann var
vanur slysum af þessu tagi, og það tók hann
aðeins augnablik að finna hvað að henni var.
„Snertur af heilahristingi, og tognun. Þér hafið
kannski brákazt eitthvað, en ég held þó að svo
sé ekki. Ég ætla að láta gegnumlýsa öklann, og
við skulum ekki hugsa ncitt um fallhlífastökk I
nokkra daga.“ Hann brosti. „Finnst yður það
leiðinlegt?"
,,Já,“ sagði Odette. „Ég ímynda mér það.“
Veggir herbergisins höguðu sér einkennilega, ým-
ist hölluðust inn eða út.
Framhald i nœsta blaði.
Svör við „Veiztu —?“ á bls. 5:
1. Theodor Roosevelt, en hann hafði lítinn björn
fyrir kjölturakka.
2. Hans Egede.
3. Panch þýðir fimm á Hindustanmáli og
drykkurinn fékk það nafn vegna þess að
upphaflega voru fimm efni í honum —
arrack (vín), te, vatn, sykur og sítrónur.
4. Hvorutveggja ávextir.
5. Þvermáliö er 3.480 kílometrar. Meðalfjarlægð
þess frá jörðu er 384.420 kílometrar.
6. Glommen.
7. Korniö þegar malað er.
8. Buddha var trúarbragðahöfundur, uppi á V.
öld f. Kr. Gengis Khan (1154—1227) stofn-
andi Mongólaríkisins, Jeanne d’Arc (1412—
1431) mærin frá Orleans, sem frelsaði
Frakka í hundrað ára stríðinu. Voltaire
(1696—1778) franskur rithöfundur.
9. Offenbach.
10. Tréð er upprunnið í Ameríku. Framleiðslan
er mest í Vestur-Afríkulöndunum og Suður-
Ameriku.
BRÉFASAMBÖND
Birting á nafni, aldri og heimilisfangi
kostar 5 krónur.
BERGLJÓT SIGURB J ÖRN SDÓTTIR (við
pilta eða stúlkur 17—20 ára), HJÖRDlS R.
HELGADÓTTIR (við pilta eða stúlkur 18—22
ára) og HREFNA ÓLAFSDÓTTIR (við pilta eða
stúlkur 19—23 ára), allar á Húsmæðraskólanum
að Laugum, S.-Þing. — ÁRNI SIGURÐSSON
(við stúlkur 16—18 ára) Hátúni, Grímsey. -—
TÓMAS ÓLAFSSON (við stúlkur 13—15 ára)
Valdastöðum, Kjós, Kjósas. — KARLÓ ÓLSEN
Einarshöfn, Eyrarbakka, Árnessýslu. — JÓN
GUÐMUNDSSON, GUÐBJÖRN GUÐMUNÐS-
SON og MARKIÍS. JÚLlUSSON, (við stúlkur
16—22 ára) Málmgarði 4, Reykjavík.
14