Vikan


Vikan - 01.03.1956, Síða 8

Vikan - 01.03.1956, Síða 8
ÞÖGN ER GULLS ÍGILDI — STUNDUM Smásaga eftir EMMU SMITH RAROLlNA ASCHER var 42 ára gömul ekkja með eina dóttur og eitt áhuga- mál: gamla muni. Hún var framúrskar- andi iðin og gædd óbilandi dugnaði. Auk þess hafði hún erft frábæran næmleika fyrir slíkum hlutum frá föður sínum, sem hafði verið frægur fyrir þekkingu sína á gömlum munum, enda hafði hann kennt henni allt um það efni. Það var sagt að Karolína mundi ganga snusandi beint að eina hlutnum, sem væri einhvers virði, ef bundið væri fyrir augun á henni og farið með hana inn í geymslu fulla af drasli. Vinir hennar kölluðu hana Karrý. Tveimur árum áður en þessi saga gerð- ist hafði hún kynnzt ungum fomgripa- sala, Adrian Murphy, sem hún hafði strax ályktað að mundi geta orðið sér að liði. Og þar sem hann var sömu skoðunar um hana, þá hafði þeim strax orðið vel til vina, enda báru þau virðingu fyrir fag- legri þekkingu hvors annars. Karrý ók næstum daglega út í sveit, til að vera viðstödd uppboð og ná í dýr- gripi fyrir lítið verð, sem Adrian lét svo gera við og seldi í verzlun sinni. Vinátta þeirra var viðskiptalegs eðlis og alger- lega ópersónuleg — þangað til dag nokk- urn, þegar Karrý bauð Adrian hressingu, eftir að þau voru búin að ræða viðskipta- málin, og fór að segja honum frá Miriam. Miríam var 18 ára gömul dóttir Karrýar ög eins ólík méðurinni og frekast var unnt. Hún hafði ekki snefil af dugnaði til að bera, þótti gott að fara snemma í rúmið með góða bók og sofa lengi fram eftir á morgnana. Hún var næstum manna- fæla og opnaði varla munninn, en það fannst móður hennar, sem talaði jafn óaf- látanlega og hún reykti, undarlegast. Þess- ir sjaldgæfu eiginleikar dótturinnar voru farnir að valda móður hennar alvarleg- um áhyggjum og nú trúði hún Adrian fyrir þeim. — Það versta er, að ég skil hana alls ekki, Adrian, sagði hún. — Gerir þú það? Við þessa spumingu áttaði Adrian sig fyrst á því, að hann hafði vízt aldrei veitt Miriam neina athygli, þó hann hefði séð hana næstum daglega í tvö ár. Hann svar- aði því heldur sneypulega. — Nei, úr því þú minnist á það, verð ég að viðurkenna, að við höfum varla skipzt á meira en tveimur orðum í einu. — Þama sérðu! sagði Karrý áköf. — Þetta er einmitt ólánið — bamið segir aldrei eitt einasta orð. Ekki einu sinni við mig. En hvað hugsar hún? Adrian svaraði ekki. Hann minntist þess nú að hafa séð eitthvert fjarlægt blik í hinu dreymandi augnaráði stúlkunnar. — Heldurðu að hún sé hamingjusöm? spurði hann að lokum, sjálfum sér til undrunar. — Hamingjusöm? endurtók Karrý og hristi höfuðið. — Ég hef enga hugmynd um það. Það er eins og hún lifi innilokuð í sínum eigin hugarheimi. En gætir þú ekki skipt þér svolítið af henni, Adrian? Ég er viss um að það kæmi að gagni. Þú getur til dæmis haft hana með þér í innkaupaferðimar. Þá talar hún ef til vill eitthvað við þig. Þú þarft ekki að óttast það að hún verði þér til óþæginda. Vand- ræðin liggja einmitt í því, að maður gleym- ir því að hún sé til. Upp frá þeim degi fylgdi Miriam Adrian eins og skugginn hans. Hún var aldrei fyrir og lét aldrei bíða eftir sér. Hún sat bara við hliðina á honrnn í bílnum eða uppboðssalnum, kyrrlát og elskuleg, án þess að segja eitt einasta orð. Og hann fann að sérhver tilraun til að tala við hana, mundi hafa álíka mikil áhrif eins og að ætla að opna dýrmætt skrín, ef lyk- illinn væri týndur. 1 stað þess að leggja fyrir hana spurn- ingar, vandi hann sig því á að tala upp- hátt við sjálfan sig. Og Miriam hlustaði og horfði með athygli á hann. Brátt urðu þessar umgengnisvenjur þeim báðum eðli- legar. Honum þótti gott að hafa hana með sér, en datt aldrei í hug að það gæti leitt til nokkurs meira. Það gerði hún sýnilega ekki heldur. Dag nokkurn voru þau að koma af upp- boði, þegar Adrian sá að Miriam var með lítinn pakka í kjöltunni. Þegar hann spurði hvað í honum væri, vafði hún bréfið þegj- andi utan af lítilli tóbaksdós. — Hún er ekki mikils virði, sagði hann. ■— Að vísu er þetta Battersea dós, en það borgar sig varla að gera við hana. — Ég keypti hana ekki til að selja hana, heldur af því að mig langar til að eiga hana. Mér finnst hún falleg, sagði hún og ætlaði að pakka henni aftur inn. Adrian varð svolítið skömmustulegur. Hann tók dósina og skoðaði hana betur. Á hárauðu smeltilokinu mynduðu hvítir blómaknúppar hjarta, sem var rammi utan um áletrunina: „Þú átt hjarta mitt! Hugsaðu svolítið til mín.“ — Þetta er snoturt, sagði Adrian. Um kvöldið kom Karrý, til að spyrjast fyrir um það hvemig gengi. — Prýðilega, svaraði hann út í hött. — Já, en hvað segir hún? Hvað hef- urðu fengið upp úr henni? Sem móðir hennar á ég þó rétt til að vita það. — Ég hef ekkert fengið upp úr henni, svaraði Adrian. — Hún er ekki . . . Mað- ur getur ekki . . . Hann þagnaði, alveg ringlaður. Nei, það var skylda hans að vernda Miriam og það sem hún kynni að geyma í sinni hreinu, fögru sál., — Þú hefur ekkert hugmyndaflug, Karrý, sagði hann. — Þú getur talað, en þú hefur ekk- ert hugmyndaflug. Miriam hefur aftur á móti hugmyndaflug, en hún getur ekki tal- að, skilurðu? Alveg eins og sumt fólk get- ur ekki sungið. Það er heimskulegt að ætla að neyða hana til þess. Og það er miskunnarlaust .... Hann bjóst við að Karrý móðgaðist. En hún bara skellihló, þangað til tárin runnu niður kinnarnar á henni. Loks sagði hún: — Kæri vinur, ég er engin ófreskja, þó mig skorti kannski hugmyndaflug, eins og þú segir. Og þið tvö! Aftur fékk hún hlát- urskast. Þegar hún loksins hætti, sagði hún alvarlega: — Sjáðu til, Adrian, mér þykir vænt um telpuna. Eftir þetta samtal var eins og samband hans við Miriam breyttist. Honum fannst hann bera ábyrgð á henni og þurfa að vernda hana. Hann horfði stundum áhyggjufullur á hana, og þegar hún var ekki með honum, velti hann því oft fyrir sér hvað hún væri að gera. Hann hugsaði um hana eins og glataða sál, sem reikaði um á jörðinni, án þess að mæta nokkr- um skilningi nema hjá honum einum. Smám saman rann það upp fyrir honum að hún þjáðist. Hæfileikaskortur hennar til að tjá sig og komast í samband við annað fólk hlaut að þjá hana. Stundum sá hann að hún horfði biðjandi á hann og kreppti hnefana, eins og hún væri að safna kröftum til að brjótast út úr fang- elsinu, eins og óendanlega mikilvæg orð leituðu útrásar, svo að varir hennar titr- uðu. En hvað var það, sem hún vildi segja honum ? Það fékk hann ekki að vita. Hvað sem það var, þá kom hún því ekki fram á varir sínar. Veggurinn milli þeirra var of hár. Milli þeirra fóru aðeins hversdags- leg orð, sem enga þýðingu höfðu. Hann gat ekki hjálpað henni, gat ekki skilið mál- ið, sem augu hennar töluðu, en tungan neitaði að mynda. Einn morguninn kom hún svo í búðina til hans með lítinn mahogniborðspegil, sem móðir hennar hafði sent hana með. — Jæja, þarna er þá spegillinn, sagði Adrian og kinkaði kolli til hennar. Hann var önnum kafinn. — Láttu hann bara þarna og þakka þér fyrir. Miriam var ekki vön að vera fyrir, en nú elti hún hann um alla búðina, svo að hann var hvað eftir annað næstum dott- inn um hana. Loks kom hún til hans, með- an hann sat með símtólið við eyrað: — Vertu sæll, Adrian, sagði hún. Hann brosti annars hugar og veifaði til hennar. Hann hafði allan hugann við samtalið og horfði ekki einu sinni á eftir henni, þegar hún fór. Morguninn eftir hringdi hann til að bjóða henni með sér á uppboð. Það var Karrý, sem svaraði í símann: — Miriam? endurtók hún. — Miriam er farin. — Farin? — Já, sagði hún þér ekki frá því, kján- inn sá arna? Hún kom þó til að kveðja þig í gær. Hún er farin til Parísar — hamingjan má vita til hvers, enda veit hún það víst varla sjálf. Hún hafði orð á því að hún vildi standa á eigin fótum. Annars hefur hún verið eitthvað skrýt- in upp á síðkastið. En þú þekkir hana og veizt að það er til lítils að ganga á hana. Ég lét hana því fá vilja sínum fram- Framliald á bls. 13.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.