Vikan


Vikan - 24.05.1956, Blaðsíða 4

Vikan - 24.05.1956, Blaðsíða 4
* Ævintýrið um ftnrTii phh B A viifi i u uhiiuu Ævisaga annáluðustu kvikmyndastjörnu veraldar BIJ FORSAGA: Greta Gustafsson ólst upp í basli og- fátœkt í Stokkhólmi, en var ailtaf ákveðin í að gerast leikkona. Fyrir tilviljim, fékk hún að leika í nokkrum stuttum auglýsingamyndum og einni ó- merkilegri kvikmynil, en síðan var henni hjálpað til að komast í Dramatíska sltól- ann. En þá gerðist það, sem átti eftir að breyta öllum Iífsferli hennar — hún hitti Mauritz Stiller, kvikmyndastjórann fræga, og hann ákvað samstundis, öllum til mikillar furðu, að láta hana leika Elisa- bethu Dohnu í „Gösta Berlings saga“. EGAR hlutverkaskipuninni var lokið, var Stiller tilbúinn til að byrja kvikmyndatöku myndarinnar, sem hann vonaði að ekki einungis mundi varpa ljóma á hans eigin feril, heldur líka gera skjólstæðing hans að alþjóðlegri stjörnu. Hann horfði ekki i kostnaðinn. Hann lét smíða hvorki meira né minna en 48 mismunandi svið fyrir myndina, og auk annars óhófs, lét hann dýrasta kvenklæðskera Stockholmsborgar sauma fatnaðinn á Gretu. Stiller gerði ekki aðeins sjálfur uppdrættina að fötunum hennar — hann fór líka með henni að máta. Greta fékk góð laun fyrir hlutverk sitt í Gösta Berlings sögu, en ekkert geysi há, þar sem hlutverkið krafðist nærveru hennar í kvik- myndaverinu í heila sex mánuði. Samkvæmt samningi hennar við Svensk Filmindustri, sem undirritaður var 23. júlí 1923, fékk hún þrjú þúsund sænskar krónur fyrir hlutverkið. Með til- liti til hinnar einstæðu sérstöðu kvikmyndanna, er það ekkert undarlegt þó hún fengi seinna hérumbil sömu upphæð fyrir klukkutíma vinnu í Hollywood. Meðan á kvikmyndatökunni stóð, var öllum ljóst að Stiller var alveg gagntekinn af þessari þögulu og heldur óverulegu stúlku, sem lék Elisa- bethu Dohnu. Hann eyddi löngum stundum í þau atriði, sem hún var með í, og tók þau hvað eftir annað. Hann og myndatökumaðurinn gerðu óaflátanlegar tilraunir með birtuna á henni og leituðust endanlaust við að mynda hana þann- ig að hún nyti sín sem bezt. Meðan allir hinir biðu, æfði hann sjálfur með henni hverja ein- ustu hreyfingu og tónblæ. Hann stöðvaði oft myndatökuna í miðju kafi, til að ræða eða breyta andlitsfarðanum á henni. Ýmist þolinmóður eða æstur hélt hann áfram og hætti aldrei við nokk- urt atriði, fyrr en leikararnir voru að niður- lotum komnir, og hann hafði fengið allt eins og hann vildi hafa það. „Kvikmyndatakan var hrein- asta kvalræði fyrir hana og hún grét næstum alltaf“, sögðu nokkur vitni seinna. Áhugi Stillers fyrir Gretu gaf tilefni tjl heil- mikils umtals í kvikmyndaverinu. „Ekkert okkar gat skilið hvers vegna hann hafði svona mikinn áhuga fyrir litlu, nýkomnu stúlkunni," hefur Karin Svanström sagt. „Okkur hinum virtist hún ósköp hversdagsleg. En við bárum öll mikla virðingu fyrir Stiller. Hann var sá sem tók ákvarðanirnar og fékk það sem hann vildi. Við reyndum að taka Gretu í okkar hóp, en það var ekki auðvelt, þar sem Stiller gaf næstum aldrei neinum öðrum tækifæri til að tala við hana. Ég man að við fórum að kalla þau „Stúlkuna og villidýrið", því hún var svo snotur, einkum vöxt- urinn. Það var vöxturinn á henni, sem vakti mesta athygli á henni i Svíþjóð, ekki andlitið. Ég get séð Stiller og ungu stúlkuna fyrir mér, þar sem þau ganga fram og aftur, fram og aftur, um litla garðinn fyrir utan vinnustofuna. Stiller í sífellu að lesa yfir henni og kenna henni og Greta að hlusta og læra. Ég hef aldrei hitt nokkra manneskju svo ákafa í að læra. Með dáleiðsluvaldi sínu yfir henni gat hann fengið hana til að yfirstíga sjálfa sig. En okkur grunaði sízt að það var sál hennar, sem hann vildi um- breyta. En þó Greta væri auðmjúk og viljug þá kom það þó að minnsta kosti einu sinni fyrir að hún reis upp gegn þessu niðurbælandi oki. Við töku erfiðs kafla reyndi Stiller að hræða hana til að kasta sér út í leikinn. Hann hrópaði • og æpti, þangað til hún að lokum rauk upp og hrópaði á móti: „Ég hata þig, Stiller." En hann tók það ekki illa upp fyrir henni. En slík reiðiköst komu sjaldan fyrir hana. Hún dáði Stiller og reyndi að gera það sem hann sagði henni. Meðan á kvikmyndatökunni stóð spurði blaðamaður nokkur hana meðal annars hvort henni þætti ekki erfitt að leika í kvikmynd. — Ákaflega svaraði Greta. — þetta hefur verið hreinasta kvöl, en Stiller er bezti maðurinn sem ég þekki. Maður getur ekki reiðzt við hann, hvernig sem hann öskrar og skammast. Hann skapar fólk og lagar það eftir sínum eigin vilja. Hvað sjálfri mér viðvíkur, þá er ég þæg telpa, ; VEIZTU —? | 1 1. Hver er það, sem kallaður er faðir § í fúgunnar ? = = 2. Hvar er Jökuldjúp? [ | 3. Hvað hét heimili Scarlettar O’Hara i | sögunni „Á hverfanda hveli"? f 4. Hvaða fugl flýgur hæst? [ I 5. Hvaða frægt farþegaskip sökk í fyrstu I | ferð sinni yfir Atlantshafið ? H 6. Hvað heitir elzta núlifandi timarit á Í Islandi ? | 7., Hvaða ár fæddist Shirley Temple? i 8. Hve mörg leikrit ritaði Shakespeare? i fleiri en 20? fleiri en 30? fleiri en 40? i i 9. Hvað hét Rauða torgið í Moskvu fyrir = byltingima 1917 ? [ = 10. Gáta: Hvert er það Klenódí = með konstum gert, er ýtum sýnir það ei sjálfir kunna augum líta. Af mörgnm hlutum, saman er sett til sældar auka? 8)d avör d bla. 18. \ •‘,4mmiiHiiimtntin«mitfitinMiMMM*fMNiaiiiii«fmnmniiiiiiiiiimii,miiiiiiii.*r sem vei'ð hrygg ef fólk er óvingjarnlegt við mig, jafnvel þó það sé ekki sérlega kvenlegt. Ég hef kannski ekki svo mikið af kvenlegum dyggð- um til að bera.“ 1 lok samtalsins bætti Greta við. „Skrifið ekki allt sem ég hef sagt — ég er ein af þeim sem tala fyrst og hugsa svo." Stiller var ákaflega óánægður með þessa yfirlýsingu hennar. Hann hafði óbeit á fréttariturum og hvatti Gretu til að forðast þá í framtíðinni. Eftir því sem leið á kvikmyndatökuna, fór áhugi Stillers fyrir Gretu að ná út fyrir kvik- myndaverið. Hann byrjaði á að aka henni heim í bílnum sínum, og þá var mörgum andlitum þrýst upp að rúðunum í Blekingegötunni. Þau fóru að sjást saman í leikhúsum og veitingahúsum, einkum á Berns, þar sem Stiller hafði ákveðið borð. Oft bað Stiller um að fá að taka Gretu með ef hann var boðinn út. Þannig kynnti hann hana þeim hópi leikara, listamanna og rithöf- unda, sem hann sjálfur tilheyrði. Hann sagði henni í hverju hún skyldi vera, hvað hún ætti að segja og hjálpaði henni eftir fremsta megni til að losna við feimnina. Ein aðferð hans var sú, að biðja hana um að rísa á fætur og leggja sitt til skemmtiatriðanna þegar þau voru einhvers staðar i veizlu. Wilhelm Bryde hefur sagt frá einum slíkum atburði, þegar Stiller fól henni allt í einu að syngja í veizlu hjá Bryde. „Hún hafði þægilega rödd og söng nokkrar af vísum Liliar Ziedners. Hún hélt áfram að syngja, þangað til Stiller sagði henni jafn skyndilega að hætta. Og alltaf fann maður hve mjög hún gætti fram- komu sinnar." En ef Stiller neyddi hana ekki til að skemmta, sat hún oftast þögul og kyrrlát. Leikhússtjóri nokkur, sem bauð Stiller og Gretu til mikillar veizlu, minnist þess að hún sagði ekkert annað en „gott kvöld" og „verið þ£r sælir" allt kvöldið. „Hún sat úti i horni og virtist utangátta", segir hann. Allar þessar meira eða minna heimsvönu manneskjur, sem Stiller kynnti hana fyrir, fengu ekki þá hugmynd að hún væri ákaflega dularfull, heldur eðlilega látlaus. Hún var þægileg og ynd- isleg fyrir augað — hin löngu augnhár hennar fóru ekki fram hjá neinum — en algerlega laus við eigin persónuleika. En enginn af öllum þess- um nýju kunningjum hennar vissi, að hún bældi viljandi niður hinn barnslega gáska sinn og töfra, til að svara til hugmyndar Stillers um það, hvernig „stjarnan" hans ætti að vera. Þar sem hún var mitt á milli þessara tveggja skauta, gat hún aðeins verið deyfðarleg í framkomu. Þó að vinir Stillers héldu áfram að furða sig á áhuga hans fyrir þessum dýrmæta „fundi“ hans, sem í þeirra augum var ekki sérlega efni- legur, þá hafði hann sjálfur óbilandi trú á að Greta væri sköpuo til stórræða. Gagnrýnandinn Hjalmar Lenning, sem var einn af vinum Still- ers, sagði eftir að hann hitti Gretu í fyrsta sinn, að sér fyndist hún „leiðinleg, lítt eftirtektarverð og ákaflega þegjandaleg". Og hann spurði Still- er, hvort hann héldi í raun og veru að hún ætti svo bjarta framtíð sem leikkona framundan. „Hún lætur afbragðs vel að stjórn, hlýðir öllum skip- unum. Hún er eins og vax í höndunum á mér. 1

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.