Vikan


Vikan - 24.05.1956, Qupperneq 7

Vikan - 24.05.1956, Qupperneq 7
meðali, sagði Jóhann við Klöru, þegar hann heyrði þetta. — Og þú ekki heldur, góða mín! Sjáðu! Hann tróð peysu inn í stærstu vísindalegu rifuna. Maturinn var ólystugur. Þau fengu hvorki sykur, grænmeti né mjólk. Þegar þau sáu, að hópur af starfsmönnum við næsta borð fékk smjör, kál og ávexti, kvartaði Jóhann og fékk þetta svar: — Þið eruð á sérstöku fæði. Lítið af víta- mínríkri fæðu. Engin C og D vítamín. Þið skiljið það vafalaust. Daginn eftir tilkynnti Klara starfsmann- inum sigri hrósandi, að loksins væri hún farin að finna til sjúkleika. Hún væri með hlustarverk! — Ég er hræddur um að við höfum engan áhuga fyrir hlustarverk, frú, svar- aði hann. — Það bendir ekki á kvef- smitun. En þér gætuð auðvitað verið að fá kýli eða verða heyrnarlaus. — Jæja þá, en það veldur mér óþæg- indum. Gefið mér eitthvað við því. — Því miður gefum við ekki út lyf- seðla. Við rannsökum aðeins sjúkdóms- einkenni. Þá missti Jóhann stjórn á skapi sínu. — Mér er alveg sama um öll einkenni. Otvegið konunni minni undir eins hita- poka. Starfsmaðurinn flýtti sér að hlýða þessu. Klara eyddi deginum inni og þrýsti hita- pokanum vesældarlega að eyranu á sér. Jóhann sýndi henni samúð sína, með því að vera hjá henni. Daginn eftir var komin rigning. Heiðin var öll sundurgrafin af vatni og dagblöðin komu ekki. Klöru leið betur í eyranu, en þau gátu ekki farið út. Þau reikuðu um herbergin á neðri hæðinni í húsinu og enginn yrti á þau. Þeim dauðleiddist. Klara starði á regntaumana á gluggarúð- unum. Ef þau hefðu aðeins haft eitthvert annað fólk til að tala við, bækur eða ein- hvern stað til að fara á. Ef Jóhanni leiddist nú eins mikið og henni sjálfri? Ef honum leiddist hún, og hann væri henni gramur fyrir að hafa þvingað hann til að ganga í hjónabandið þetta árið, fyrir þessa heimskulegu brúð- kaupsferð, fyrir hlustarverkinn í gær og‘ tilraunir hennar til að vera glaðleg í dag? Og ef — það sem verra var — einhver af þessum viðbjóðslegu sýklum hefði nú áhrif og hann yrði veikur? Kannski mjög veikur eða eitthvað ennþá verra 1 huganum sá Klara fyrir sér nýjan, hvítan stein: TIL MINNINGAR UM JÖHANN JÖNS- SON, SEM DÖ Á BRtJÐKAUPSFERÐ SINNI OG KLÖRU KONU SINNAR. Nei! Hún brast í grát og grúfði sig upp að öxlinni á Jóhanni. — Ég ætlaðist ekki til þess að það yrði svona, snökti hún. — Hvað er þetta, elskan? sagði Jóhann. — í öll þau ár, sem ég hef þekkt þig, hef ég aldrei séð þig gráta. — Nei, en ég hélt að þú værir orðinn leiður á mér. — Leiður á þér? Eg skil þig ekki! Ég kvæntist þér, af því að þú ert eina kon- an, sem mér leiðist aldrei. Þetta er allt þessum bannsetta stað að kenna. Rign- ingunni! Vonbrigðunum! Þessari fjárans lykt af gólfdúkunum. Ég er orðinn þreytt- ur á að láta stinga sýklum ofan í kverk- arnar á mér, mæla í mér hitann og rann- saka vasaklútinn minn. Ekki af því að ég sé hræddur við að verða veikur, held- ur af því að það eru afskipti af einka- lífi mínu, hveitibrauðsdögunum mínum. Jóhann andaði djúpt að sér. — Nú veit ég hvað við skulum gera. Á morgun för-) um við með áætlunarbílnum niður í þorpið J Framhald á bls. 18. * ÁST EÐA ÆVINTÝRAÞRÁ ANNAÐHVOKT EÐA HVOKTVEGGJA STJÖRNAÐI GEKÐUM STtJLKNANNA SEM HÉR SEGIR FKÁ. 1r FYRRA gerðust tvær 17 ára gamlar brezkar stúlkur launfarþegar á skip- inu „Melbourne Star“. Þær fundust ekki fyrr en það hafði verið átta daga í hafi. Skipstjórinn lét loka þær inni í sjúkra- klefanum. Hann grunaði áhöfnina um að hafa smyglað stúlkunum um borð. En þær voru allt annað en ánægðar. Þær brutu upp hurðina og földu sig í vistarverum hásetanna. Þar voru þær til ferðaloka. Seinna voru þær dregnar fyrir rétt í Englandi og kærðar fyrir að valda skemmdum á sjúkraklefanum. Þegar pokinn veinaði Það er hreint ekkert óalgengt, að stúlk- ur gerist launfarþegar. Það komst upp um eina slíka fyrir skemmstu af tilvilj- un. Hún var þýzk og trúlofuð bandarísk- um hermanni. Hermaðurinn var sendur til annarrar herdeildar í Þýzkalandi. Hann þurfti að ferðast yfir rússneskt yfirráða- svæði. En þýzka stúlkan, kærastan hans, hafði enga heimild til að koma inn á rússneska hernámshlutann. Kærastinn ákvað að flytja hana í farangursvagni lestarinnar — í poka. Þetta gekk ágætlega í fyrstu. En svo þurfti bandarískur herlögreglumaður endi- lega að sparka í pokann. Honum til mik- illar furðu, rak pokinn upp ámátlegt sárs- aukavein. Skömmu síðar var sú þýzka dregin út úr felustað sínum og send heim. Stundum eru það elskhugar stúlknanna, sem fá þær til að grípa til örþrifaráða af þessu tagi, en stundum gera þær það af eintómri ævintýraþrá. Það fór illa, þegar brezkur morðingi fékk stúlkuna, sem hann var ástfanginn af, til þess að dulbúa sig og fara með sér til Kanada. Hann hét Crippen og hafði myrt konuna sína. Stúlkan, sem hann elsk- aði, hét Ethel le Neve. Crippen ákvað að flýja til Kanada, þar sem hann ætlaði að byrja nýtt líf. Hann lét Ethel klippa af sér hárið og fara í drengjaföt. Þau stigu um borð í „Mont- rose“ í Antwerpen og ferðuðust sem faðir og sonur. Crippen kallaði sig Robinson. Framkoma þeirra vakti þó grun skip- stjórans — ekki sízt þegar hann sá þau kyssast! Svo barst skipinu skeyti frá brezku lögreglunni. Hún taldi sig hafa ástæðu til að ætla, að hinn eftirlýsti morð- ingi og förunautur hans væru um borð. Crippen.og Edith le Neve voru hand- tekin, þegar þau stigu af skipsfjöl, og send til baka til Englands. Crippen var dæmdur til dauða og hengdur. Hann bar það, að Edith hefði enga hugmynd haft um vprknað hans. Hún var sýknuð. Þráfaldlega hefur það komið fyrir, að konur hafa laumast inn í herbúðir og búið þar á laun með eiginmönnum sínum eða kærustum. 1 heimsstyrjöldinni síðustu klippti brezk herstúlka af sér hárið, klæddist einkennis- búningi af óbreyttum hermanni og labb- aði sig inn í herbúðir þar sem eintómir karlmenn voru fyrir. Svo vel lék hún hlut- verk sitt, að það komst ekki upp um hana fyrr en á þriðju viku. Þá var efnt til almennrar læknisskoð- unar! Þegar röðin kom að stúlkunni, tók hún til fótanna. Liðþjálfi elti hana, hand- samaði hana og kom með hana til baka. „Ur fötunum!“ skipaði læknirinn. „Ég get það ekki,“ snökti stúlkan, „ég er kvenmaður." Skemmra er síðan 22 ára gömul ensk stúlka bjó í sex mánuði í bandarískum herbúðum í grennd við Manchester. Hún hét Teresa, en kallaði sig Terry í herbúð- unum..Hún gekk í bandarískmn einkennis- búningi, en það var einkum til þess að villa yfirmönnunum sýn. Ýmsir hermann- anna vissu, að hún var dulbúinn kven- maður. Hún lét hið bezta yfir herbúðalífinu og sagði, að piltarnir hefðu verið vænir og kurteisir. Hún var í ýmsum snúningum fyrir þá, þvoði fyrir þá, pressaði buxurn- ar þeirra og þar fram eftir götunum. Hún hjálpaði þeim jafnvel sumum hverjum að skrifa kærustunum sínum heima í Banda- ríkjunum. Hún komst ekki hjá því að þurfa stundum að taka þátt í hinum daglegu störfum herbúðanna, en allt fór semsagt vel í sex mánuði. Það komst upp um hana af hreinni til- viljun. Þegar allt komst npp Stundum getur ævintýraþrá þessara stúlkna þó dregið dilk á eftir sér. Karin Rohm, sem var búsett í Saar en var af arabiskum uppruna, fékk þá flugu í höf- uðið, að gaman væri að skyggnast um í ósviknu kvennabúri. Hún fór til Marokko, og í grennd við virkisbæinn Rabat tókst henni að laumast inn í stórt kvennabúr. Hún hugðist dvelja þar í þrjá daga. En strax á fyrsta degi komst upp um hana og hún var dregin fyrir eiganda kvennabúrsins. Hann var æfur. Hann sagði henni, að með því að hún hefði komizt að leyndar- málum kvennabúrs hans, ætti hún ekki betra skilið en dúsa þar áfram. Hún baðst grátandi vægðar, en allt kom fyrir ekki. Hún sat fimm ár í kvenna- búri höfðingjans, áður en hún komst í burtu! — A. J. FORREST. 7

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.