Vikan


Vikan - 13.06.1957, Blaðsíða 3

Vikan - 13.06.1957, Blaðsíða 3
M©ð hefnd í hugn eftir K. L. BENNETT Þaö kvaö vera staðreynd að konur séu hefnigjarnari en karlmenn T^RU konur hefnigjarnari en karlar? Við skulum orða þetta kurteislega, og segja, að þær séu langræknari. Því að það kvað vera staðreynd. Konur lifa rík- ara tilfinningalífi en karlmenn. Þar af leiðir, að ást þeirra getur verið ákafari — og hatrið rammara. Ekki svo að skilja, að þetta eigi við um allar konur. Síður en svo. En ef hægt væri að taka meðaltal af langrækni kvenna og karla, þá segja þeir sem vit hafa á, að meðaltal konunnar yrði hærra. Hefnigirni konunnar verður skáldunum oft að yrkisefni. f klassisku bókmenntvm- um fer líka talsvert fyrir henni. 1 fornum sögum grískiun og íslenzkum er hefnd- um kvenskörunga hvað eftir annað lýst — og afleiðingunum. Það er sumsé ekkert ný bóla að halda því fram, að kvenfólk- ið sé langræknara en karlmennirnir og hatur þess ofsalegra. En hér skulu ekki rakin klassisk dæmi, heldur tekin dæmi úr daglega lífinu. Það er að segja, að þær konur, sem hér er sagt frá, komust aldrei í heimssöguna. Þótt þær vektu stundarathygli, eru þær nú gleymdar. Eins og hún Marta litla Zenháusern. Ef hún er enn á lífi, er hún komin á sjö- tugsaldur. Hún átti heima í belgisku kola- héruðunum. Faðir hennar var efnaður kaupsýslumaður. Þegar Marta var tíu ára, seldi hann fyrirtæki sitt og keypti hluta- bréf í námufélagi. Tveimur árum seinna andaðist hann. Þá kom í ljós, að hann var nýbúinn að afhenda kunnum námueiganda öll hlutabréfin. Námueigandinn, maður að nafni William Mérode, lagði fram kvitt- un, sem sýndi, að hann var búinn að greiða andvirði bréfanna. Hinsvegar fannst ekki eyrir af peningunum. Ýmsum þótti þessi kvittun kindug og út af henni hófust málaferli. Lögfræðing- ur ekkjunnar hélt því fram, að kvittunin væri fölsuð, að Mérode hefði ekki verið búinn að greiða eyri fyrir bréfin. Málinu lyktaði þó með því, að hann var sýknaður; Marta og móðir hennar stóðu uppi allslausar. Báðar höfðu lifað við allsnægtir; nú horfðust þær í augu við ömurlegustu fá- tækt. Og skömmu eftir að Marta varð fjórtán ára, framdi móðir hennar sjálfs- morð. Marta, auðmannsdóttirin, var flutt á munaðarleysingjahæli á meðan athugað var, hvort hún ætti nokkra ættingja, sem vildu taka við henni. Svo reyndist ekki. Þá var hún vistráðin hjá bónda nokkrum í nágrenninu og tjáð, að þar yrði hún að vera uns hún yrði myndug. Marta strauk. Hún fannst þremur vik- um seinna og var færð húsbónda sínum. Næstu þrjú árin strauk hún fjórum sinn- um. En þegar hún var átján ára, fékk hún leyfi yfirvaldanna til að fara í aðra vinnu og réði sig til námufélagsins, sem Mérode var stærsti hluthafinn í og sem faðir henn- ar hafði átt að nokkru leyti áður en hann andaðist. Konur vinna enn í sambandi við belg- isku kolanámurnar, þó ekki við jafn mörg störf og í tíð Mörtu, fyrir fimmtíu árum. Hún vann í hleðsluporti námunnar, þar sem flutningavagnarnir voru fylltir áður en eimreiðarnar tóku við þeim. Launin gerðu henni naumlega fært að draga fram lífið. William Mérode, maðurinn, sem hún með réttu eða röngu kenndi um raunir sínar, átti stimdum erindi í hleðsluportið. Kannski þekkti hann hana ekki í vinnu- fötimum og svarta af kolaryki. En Marta var ekki búin að gleyma hon- um. Hinsvegar er það ráðgáta enn þann dag í dag, hvort hún hafi haft húsbænda- skipti beinlínis í þeim tilgangi að koma fram hefndum. Hvað um það, dag einn fyrir jólin, þegar William Mérode var á göngu gegnum hleðsluportið, stökk Marta aftan að honum, hóf skóflu sína á loft og keyrði hana af alefli í höfuð honum. Fleygði síðan frá sér verkfærinu og lagði á flótta. Mérode hjarði í tvo daga, en gaf þá upp öndina. Þá var Marta enn ófundin. Nú var þetta orðið morð og leitarmönn- um var f jölgað. Það var settur vörður við þjóðvegi og brýr og járnbrautastöðvar. Þeim var heitið verðlaunum, sem vísað gæti á stúlkuna. En hún komst undan. Það hefur ekkert spurst til hennar enn þann dag í dag. Eldra dæmi um hefnd ungrar stúlku greinir frá Jane Sydney, sem 18 ára gömul mátti horfa upp á það, að faðir hennar var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir manndráp. Móðir hennar var þá dáin fyrir nokkrum árum. Tveimur árum síðar andaðist John Syd- ney í fangelsinu — og fáeinum mánuðum seinna sannaðist það, að hann hafði verið dæmdur saklaus. Hinn raunverulegi morð- ingi — maður að nafni John Carroll — var flúinn til Bandaríkjanna. Þetta var árið 1883. Jane seldi allar eigur sínar og hélt til Bandaríkjanna. 1 New York komst hún að því með aðstoð einkaleynilögreglumanna, að Carroll var kominn til San Francisco. Svo er að sjá sem yfirvöldin hafi einhverra hluta vegna látið hann afskiptalausan. En ekki aldeilis hin 21 árs gamla Jane. Hún ferðaðist þvert yfir Bandaríkin, þótt hún væri orðin peningalaus, og fékk vinnu í San Francisco. Rösklega ári seinna stóð hún augliti til auglitis við John Carroll. Það var á skemmtistað í miðbænum. Jane gekk að borði Carrolls, sagði eitt- hvað við hann, fór í kápuvasa sinn, dró upp skammbyssu og skaut hann til bana. Svo beið hún hin rólegasta á meðan lög- reglan var sótt. Þetta kom fram við réttarhöldin. Það sannaðist með öðnim orðum, að Jane hafði farið í veitingahúsið til þess að drepa John Carroll. En þegar saga hennar varð kunn, vakti hún mikla samúð með hinni ákærðu. Kvið- kómurinn komst að vísu ekki hjá því að úrskurða hana seka um manndráp, en úrskurðinum fylgdi áskorun til dómarans um að sýna henni linkind. Dómarinn dæmdi hana til vægustu refs- ingar — eins árs fangelsis. Hún afplánaði níu mánuði. Þá var hún látin laus fyrir góða hegðun og hvarf aftur til vinnu sinn- ar. Tveimur árum seinna var hún gift og byrjuð að búa í Maine. Hún andaðist há- öldruð. Lotta Ráder hét finnsk stúlka, sem fór til vinnu í Frakklandi skömmu fyrir stríð og lenti í höndunum á hvítum þrælasöl- um. Þeir voru komnir með hana til Alsýr, þegar hún slapp frá þeim. Hún höfðaði mál á hendur manninum, sem hún taldi foringja þrælasalanna, en hann var franskur kaupmaður, sem að nafninu til fékkst við heiðarlega um- boðsverzlun. Svo fór líka, að lögfræðing- ar hans fengu hann sýknaðan. Og upp úr því fór hann í mál við Lottu fyrir ranga ákæru! Enginn vafi virðist á því núna, að Frakkinn hafi í raun og veru fengist við hvíta þrælasölu. En hann skákaði í því skjólinu, að ógemingur væri að sanna það á hann. Það var þegar hér var komið sem finnska stúlkan tók sér sjálfdæmi í mál- inu og gerðist bæði dómari Frakkans og böðull. Hún heimsótti hann á heimili hans. Það er ekki vitað, hvað þeim fór á milli, en þegar hún gekk út úr íbúðinni, lá hann dauður á stofugólfinu með kúlu í hjartanu. Lotta Ráder reyndi að flýja, en náðist. Hún var dæmd í ævilangt fangelsi. Hefnd sína mátti hún því gjalda dýru verði, Því meira sem að konumii ér þjarmað, því grimmari virðist hún verða. Kana- diska stúlkan Barbara Watts var fimmtán ára gömul, þegar hún var send á upp- eldishæli fyrir ítrekaðan þjófnað. Þetta var fyrir nærri f jörutíu árum og uppeldis- hælið var rekið sem ósvikið fangelsi. Það hafði í upphafi verið reist sem fangelsi fyrir herinn, en þegar það þótti of af- skekkt, var það tekið í notkun fyrir f jórtán til átján ára afbrotaunglinga! Það var í feiknmiklum mýrarfláka, þriggja stunda ferð frá næsta bæ. Þegar unglingafangelsið var fullskipað, hýsti það 80 pilta og 20 stúlkur. Stúlk- urnar báru samskonar einkennisbúning og piltarnir: buxur og jakka úr vatnsheld- um segldúk og tréskóstígvél. Agin var feiknstrangur. Sálfræðingar og uppeldisfræðingar nútímans hefðu ef- laust dæmt Grange, forstöðumann hælis- ins, alls óhæfan til að gegna slíku starfi. Hann hafði hlotið uppeldi sitt í hernum og rak hælið eftir þeim kenningum um aga og refsingar, sem tíðkast höfðu í hernum um aldamótin. Unglingunum var refsað fyrir smávægi- legustu yfirsjónir: fyrir að tala saman við vinnuna, fyrir að hreyfa sig þegar þeir áttu að standa í biðstöðu, fyrir að þrífa ekki klefa sinn nógu vel. Barbara Watts varð honum fljótlega þyrnir í augum. Hvað sem um hana verður sagt, var hún gædd óvenjulegu hugrekki og seiglu. Hún var ekki búin að vera margar vikur þarna, þegar hún lagði full- komið hatur á Grange — og hann á hana! Þetta líktist svæsnasta reyfara. Ann- arsvegar var maður á sextugsaldri, sem var algerlega einvaldur í þessari litlu veröld úti í mýrinni. Hinsvegar var fimm- tán ára stúlka, munaðarlaus og gjörsam- lega varnarlaus. Unglingarnir voru látnir vinna við að þurrka mýrina. Sú vinna hefði auðvitað enst þeim í þúsund ár. En Grange for- stöðumaður virtist líta á'það sem æðstu Framhald á bls. 14. 3 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.