Vikan


Vikan - 13.06.1957, Blaðsíða 14

Vikan - 13.06.1957, Blaðsíða 14
Með hefnd í huga Framhald af bls. 3. skyldu sína að þurrka upp þessa mýri — eins og hún lagði sig. Hann hélt hinum ungu föngum sínum að vinnunni tólf stund- ir á dag, og vei þeim, sem virtist draga af sér. Fyrir f jörutíu árum gat það gerst átölu- laust, að fangar væru meðhöndlaðir eins og dýr. Eftirlitsmenn heimsóttu hælið einu sinni til tvisvar á ári, en enginn virt- ist hafa neitt við það að athuga, þótt fjórtán til átján ára unglingum væri refs- að með gapastokknum, húðstrýkingu, járn- um og myrkvastofum. Barbara Watts var búin að vera ár á hælinu, þegar hún reyndi að strjúka. Hún skreið eftir skurðinum, sem hún var að vinna í, burt frá félögum sínum, og tókst að leynast fram í myrkur. Þá lagði hún af stað og hugðist finna þjóðveginn. Tíu klukkustundum seinna fann Grange hana sjálfur. Fyrir þetta var hún lokuð inni í myrkva- stofu í sex vikur. Þegar hún nokkrum vikum seinna gerðist ber að því að hafa komist einhvernveginn inn í fatageymslu stofnunarinnar og náð sér þar í nýja sokka, var hún fyrst sett í gapastokkinn, þar sem henni var haldið í 24 klukku- stundir, og síðan í fótajárn. Það mun hafa verið um þetta leyti sem Barbara Watts ákvað að drepa Grange jg£ hún fengi færi á. Og þegar hún var 17 ára, kom tækifærið. Hún var þá talin einn forhertasti unglingurinn á hælinu. Hún var búin að bera fótajám í meir en ár, var að staðaldri geymd í myrkvaklefa að lokinni vinnu og var látin vinna sunnu- -daga sem aðra daga með ódælustu föng- unum. Tækifærið til að hefna harma sinna fékk hún, þegar Grange kom í eftirlits- ferð í mýrina. Þegar hann gekk fram hjá, vó hún sig upp úr skurðinum, þreif haka og keyrði hann af öllum kröftum í höf- uðið á Grange. Hann steyptist niður í skurðinn og var nærri samstundis örend- ur. Við krufningu kom í ljós, að hann hafði ekki látist af höfuðhögginu sjálfu, heldur 862. KROSSGÁTA VIKUNNAR. Lárétt skýring: 1 menningarstofnun, þgf. — 13 krydd — 14 hvílist ;— 15 venju -— 16 hjálparsögn — 18 gefur sig — 20 geðilla — 23 kaupfélag — 25 einkenni — 27 fengur — 29 skinn- poka — 30 tunga — 31 kvendýr — 32 plantna — 34 næring ■— 36 bann- helgur (tökuoi'ð) — 37 spyr — 39 bein — 41 áfengistegund — 42 byl- ur — 44 vottur — 46 tal — 49 úr- gangur — 51 mannsnafn — 53 hlunn- indi — 55 mál — 56 ómegin, þgf. 57 afurðamagn — 58 óttast — 60 blása — 62 kvenmannsnafn — 63 útskagi — 65 í — 67 ferskur — 68 megna — 70 andlitshlutarnir 72 meidd — 75 stöngullinn. Lóðrétt skýring: 1 fyrirtæki — 2 eins — 3 mein- dýrið — 4 þingmaður — 5 frá neðri byggð 6 eins — 7 tónn —- 8 lipr- ar —■ ,9 borðar — 10 líffæri — 11 ryk — 12 á fæti —■ 17 litarefni — 18 leikfang — 19 tekur — 20 frýs —- 21 tímabil — 22 gosefni — 24 magur — 26 sigraður — 28 fangamark sambands útgerðar- manna — 33 ilmir — 34 hæfileiki — 35 hundur — 36 gengur — 38 egg — 40 flokkur — 43 mat- ur 44 stórfljót —• 45 stórfljót — 46 líkams- vökvi — 47 snjóa — 48 vegvisar — 50 tónverk — 52 fugl — 54 ætt — 59 störf — 60 vinnur — 61 ilmat — 62 taugar — 64 nota — 66 keis- ari — 69 mynni —• 70 sk.st. — 71 samhljóðar — 72 samstæðir —- 73 frumefni — 74 greinir. Lausn á krossgátu nr. 861. LÁRÉTT: 1 Tómas — 5 tolla — 9 Ýmir — 10 NATÓ — 12 Aden — 14 kuti — 16 orðan 18 kim — 20 runni — 22 tals — 23 vá — 24 ys — 26 snót — 27 ata — 28 forusta ■— 30 alt - 31 færi — 32 auðn — 34 lo. — 35 ós — 37 karl — 40 slen — 43 rós — 45 feyskur. 46 tef — 48 álún — 50 ts — 51 an — 52 lína - 53 Mólók — 55 Týr — 57 Venus -— 58 drós — 60 Lena — 61 plús - 62 logi — 63 kraft — 64 tangi. LÓÐRÉTT: 2 Mýdas — 3 amen — 4 sin — 5 tak — 6 otur — 7 lótus — 8 hrota — 11 meitt — 12 aðla — 13 si — 15 inna — 17 rata — 18 kári - - 19 mysa —- 21 nóló — 23 vorhret — 25 sturlun — 28 fæ -- 29 að ■—■ 31 fok —- 33 nón — 36 sóló — 38 af — 39 lyst — 40 skar — 41 er — 42 menu — 43 rámur — 44 súld — 46 tina - 47 fasta — 49 norpa — 52 Lenin — 54 kólf 56 ýt - 57 Vega 59 sút — 60 Lot. af hjartaslagi. Það var mikið lán fyrir Barböru. Ennfremur mildaði það mjög dóminn yfir henni, hvernig með hana hafði verið farið. Hún fékk fimm ár og afplánaði þau í venjulegu fangelsi. Blaðamanni, sem ræddi þar við hana, tjáði hún: „Þetta er himnaríki samanborið við hinn staðinn.“ Hún hafði kynnst vænum pilti á upp- eldishælinu og hann tók á móti henni sem fulltíða maður, þegar fangelsisdyrnar loks lukust upp fyrir henni. Þau giftust. Skömmu seinna fluttust þau til Alaska og hófu búskap. Frumbyggjalífið átti vel við þau. Þeim vegnaði vel og komu þremur myndarlegum börnum á legg. Svör við „Veiztu“ — á bls. 12: 1. Norður—suður. — 2. Bráðna. — 3. Vinstnv megin, milli maga og þindar. — 4. T. S. Eliot. — 5. 33 ár. — 6. Frönsk námuborg. — 7. 26— 30 m. á sek. — 8. 5,52.— 9. Gullfoss. — 10. 3,6. Aumingja litla látna stúlkan »/«■ ingja og skrifaði heilmikið um hann. Þeir voru beztu vinir. Mér finnst — mér finnst eins og ég þekki þá báða — vel, á ég við.“ „Ég skil,“ sagði Doan. „Og svo byrjaði ég að lesa um Mexiko nútímans — að kynna mér, hvernig þetta land, sem þeir ferðuðust um fyrir fjórum öjdum, lítur út núna. Þetta er — þetta er heillandi!" „Samþykkt,“ sagði Doan. Augu Janets leiftruðu. „Ég varð að koma og sjá það með eígin augum! Ég varð! Ég hef aldrei á ævinni átt raunverulegt frí, og ég sparaði og sparaði, og ég kom. Ég er komin! Þetta er enginn draumur; ég er í Mexikó!“ „Alveg rétt,“ sagði Doan. „Þú veist ekki hve lengi mig er búið að dreyma um þetta. Öll þessi fegurð, allir þessir björtu, skæru litir og — öll þessi rómantík! Eg var að missa vitið af óþreyju. Og þarna sat ég lokuð inni í dimmri kennslustofu og kenndi hræðilegum, heimskum, ríkum stelpuflónum að beygja franskar sagnir." „Það er mun meira gaman að eltast við rómantíkina,“ sagði Doan. Janet kinnkaði kolli með alvörusvip. „Það er bókstaflega réttur sérhverrar stúlku að kynnast rómantík og ævintýrum — og öllu hinu, er það ekki ? Þetta er ekkert ljótur hugsunarháttur, er það?“ „Auðvitað ekki,“ sagði Doan. „Ég vona bara að þú kafnir í rómantík.“ Janet andvarpaði aftur. „Nú líður mér betur," sagði hún. „Það er svo gott að eiga trúnaðarmann.“ Svo spurði hún allt í einu: „En hverju ert þú að leita að?“ , ,Lögreglumanni. “ „Lögreglumanni ?“ „Já. Frá Bandaríkjunum." „Nú, og hvað er hann að gera í Mexiko?“ „Hann er að fela sig.“ „Hversvegna? Framdi hann einhvern glæp?“ „Ætli það ekki,“ ansaði Doan kæruleysislega. „Jæja, en ætlarðu semsagt að finna hann og skila honum í hendur réttvísinnar ?“ „Ha?“ sagði Doan og brá sýnilega. „Ég? Nei! Ég ætla að fá hann til að halda áfram að fela sig.“ „En hversvegna?" „Vegna þess að það var ég ráðinn til að gera,“ sagði Doan þolinmóður. „Ég skil þetta ekki,“ sagði Janet. „Hversvegna varstu beð- inn um að fá hann til að halda áfram að vera í felum?“ „Hann er ólíkur þér. Honum leiðist í Mexiko. Hann kann ekki spænsku og honum finnst maturinn vondur og honum fell- ur ekki við fólkið. Hann segist frekar vilja vera í Bandaríkjun- um — jafnvel í tukthúsinu — en að dveljast héma stundinni lengur.“ „Áttu við, að hann vilji hverfa heim og gefa sig fram og svara til saka?“ „Já.“ „Og þú ætlar að reyna að fá hann til að hætta við það?“ „Ekki reyna,“ sagði Doan. „Ég ætla að fá hann til þess.“ „En þetta er rangt! Þetta varðar við lög!“ „Sennilega,“ ansaði Doan kæruleysislega. Framhald í nœsta blaði. 14 YIKAdN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.