Vikan - 13.06.1957, Blaðsíða 4
5
ALAIM L E MAY
Fyrirheitna
Inndiö
Comanchar setjast um bæ Henrys Ed-
wards, drepa hann og Mörtu konu hans
og syni þeiraa tvo og ræna dætrunum, hinni
17 ára gömlu Lucy og Deboruh, sem er á
tíunda ári. Amos, bróðir Henrys, safnar
liði og veitir morðingjimiun eftirför. Þeir
eru sjö í eftirfararflokknum, þar á meðal
Martin Pauley, fóstursonur Henrys og
Mörtu. Þeir rekja slóð indíánanna og
leggja nótt við dag. Að lokum finna þeir
þá. Þeir hafa áð hjá dálítilli mýri og virð-
ast ætla að hafa þar næturstað.
Þ
ETTA var klappað og klárt. Þeir ætl-
uðu að freista þess að fæla hestana
frá fjandmönnum sínum þarna við
mýrarjaðarinn úti á sléttunni. Svo
Varð þetta að ráðast. En hestunum
ætluðu þeir að reyna að komast að og stökkva
þeim eitthvað \ út í myrkrið.
Amos lét þá bíða þarna á brúninni góðan klukkutíma fram yfir myrkur.
Þeir elduðu ekki. Þeir stýfðu kalt kjöt upp í sig. Þeir horfðu á fjallgarð-
inn úti við sjóndeildarhringinn, þar sem sléttunni lauk. Þeir voru að miða
þessa litlu nafnlausu mýri, þar sem indíánarnir höfðu áð. Ef þeir gættu
ekki að sér, gætu þeir auðveldlega álpast fram hjá henni í myrkrinu.
Þegar stjörnurnar komu fram, þessar sem þeir þekktu, tóku þeir mið af
þeim. Þeir ætluðu ekki að eiga neitt á hættu.
Martin Pauley sat afsíðis, og þegar rökkvaði, settist hann fremst á
brúnina og hafði ekki augun af mýrinni. Hann var að hugsa um Lucy
og Deboruh fóstursystur sínar og um Amos, bróður fósturföður sins. En
mest um Amos. Honum geðjaðist ekki að breytingunni, sem á honum var
orðin. Hann bar það með sér, að hann var búinn að telja systurnar af,
hafði enga trú á því, að þær væru enn á lífi. Honum var hefnd í huga,
e"kkert annað. Hann hafði aðeins eitt markmið — að drepa indíána.
Amos fór sér að engu óðslega. Honum virtist ekkert liggja á, þegar
þeir stigu á hestana og létu þá fikra sig niður skriðuna í myrkrinu, niður
á sléttuna. Hann ætlaði sér að koma að hestum indíánanna rétt fyrir
birtu. Hann vildi ekki þurfa að eiga við þá lengi indíánana i myrkrinu.
Hann vildi ekki að myrkrið skýldi þeim á meðan þeir væru að átta sig.
Tunglið kom seint upp og það var óverulegt tungl. Þá urðu þeir
svartir skuggar á dökkbláum grunni. Veröldin var eintómt myrkur og
ótrúlega hljóð. Nema hvað þeir heyrðu stöku sinnum ref gelta, og undir
miðnætti heyrðu þeir í úlfi.
Brad Mathison reið upp að hliðinni á Mart.
„Hvernig fannst þér þetta gól?“
Mart var ekki viss. Sagði samt, að sennilegast hefði þetta áreiðanlega
verið i'ilfur. Sem undirstrikaði að sjálfsögðu, að hann var á báðum áttum.
,,Veit ekki," taptaði Brad áhyggjufullur. „Jú, gæti svosem verið úlfur,
en gæti líka verio —.“ Hann ypti þreytulega öxlum og lét þar við sitja.
Um hálfri stundu seinna heyrðu þeir uglu væia. Rétt á eftir heyrðu
þeir vælið í annarri, og þá var hin þögnuð. Svo tók önnur við og þannig
koll af kolli. Þær virtust alltaf í næsta nágrenni við þá þessar uglur og
það heyrðíst aldrei nema til einnar i senn. Þetta var draugalegt og óhugn-
anlegt. Þegar Mart var búinn að fá nóg þokaði hann hesti sinum upp að
Amos.
,,Hvað heldurðu?" spurði hann um leið og ugla vældi enn einu sinni.
Amos ypti öxlum. Hann var með hendur í vösum. Mart hafði séð hann
ríða svona áður, en í þetta skipti virtist ekkert hik á honum. Hann vissi
hvað hann vildi og hvert hann var að fara.
,,Ekki gott að segja," svaraði hann.
„Þú ert sumsé ekki viss um, að þetta séu raunverulegar uglur?“
„Rauitverulegt er það. Nóttin vælir ekki sjálf.“
„Veit ég það, en það er auðvelt að væla eins og ugla. Þú gætir það,
eða —
,,Nú, ég er að minnsta kosti ekki að því.“
,, — eða ég gæti það. Þetta gæti verið hvað sem er.“
„Eg skal segja þér sögu. Fuglar g£ta verið kindugir. Stundum er engu
líkara en þeir séu að reyna áð herma eftir sjálfum sér. Það borgar sig
ekki að taka of mikið mark á þessu.“
„Það er bara þetta,“ sagði Mart og gaf sig ekki, „þessar uglur væla
allar nákvæmlega eins, eins og það væri bara ein einasta ugla og hún væri
að elta okkur. Líst ekki á þetta, Amos. Hélt að uglurnar hérna héldu sig
mestmegnis kringum sömu þúfuna."
„Veit ég vel, Sveinki. . . Nú skal ég segja þér nokkuð. Nú skal ég láta
þær þagna, úr því þær fara í taugarnar á þér.“ Hann myndaði stút á
munninn og vældi eins og ugla. Þó ekki bara eins og einhver ugla. Hljóðið,
sem kom úr hálsi hans, var nákv’æmlega eins og hitt, sem þeir höfðu
verið að enda við að heyra.
Og upp frá því heyrðist engin ugla væla.
Mart var hættur að velta þessu fyrir sér og reið þegjandi á eftir Amos,
þegar hesturinn hans hægði á sér og hafði nærri numið staðar. Mart hafði
tekið ósjálfrátt í tauminn, eins og hann væri ósjálfrátt að forðast það
sem framundan lá. Hann kveið ekki fyrir bardaganum -— að minnsta
kosti hélt hann, að hann væri ekki hræddur. Hann þráði ekkert heitara í
veröldinni en sjá framan í Comanchana; það var hann fullkomlega viss
um. Hitt óttaðist hann, að í ljós kæmi, að hann væri heigull. Hann reyndi
að segja sjálfum sér, að þessi ótti væri vita ástæðulaus, en árangurslaust.
Það var eitthvað innra með honum sem hann gat alls ekki skilið. Það var
búið að búa þar síðan hann mundi eftir sér.
Sem barn hafði hann dreymt sama drauminn upp aftur og aftur á
stundum. Það var ósvikin martröð. Draumurinn sá byrjaði sem algert
myrkur, bleksvart og djúpt. Svo varð allt logandi rautt. Svo heyrði hann
þessi undarlegu hljóð annarleg gól margra manna, sem æptu og
ýlfniðu í kór. Þessi grimmilegu gól nálguðust hann í draiimnum, unz þau
virtust allt i kringum hann. Þau fylltu hann ólýsanlegri skelfingu, þó að
hann væri aldrei viss um, hverskonar menn þetta voru, sem gáfu frá sér
svona dýrsleg hljóð. Hann reyndi að hljóða, en gat það ekki. Hann reyndi
að hreyfa sig, og gat það ekki. Unz hann vaknaði kófsveittur og skjálf-
andi. Nú var langt um liðið síðan hann hafði dreymt þennan draum, en
stundum greip hann einkennilegur ótti, þegar hann var einn í myrkrinu.
Svo var til sú lykt, sem kom honum úr jafnvægi. Einmitt núna olli
þetta honum áhyggjum, því að þessi lykt, sem hann þoldi ekki einhverra
hluta vegna og sem gat komið honum í uppnám þótt hann léti á engu
bera, það var ilmurinn af skinnklæðum indíánanna. Þó hafði hann oft hitt
indíána og talað við þá á merkjamáli og jafnvel verzlað við þá. En ef
hann kom á stað, þar sem indíánar höfðu áð, eða ef hann fann óvænt
þennan þef, þá greip hann á stundum svipuð skelfing og í draumnum
hræðilega. Hann reyndi að setja þetta í samband við morðnóttina, þegar
indíánarnir höfðu sest um bæinn foreldra hans og drepið þá og allt skyldu-
lið hans. En hann mundi bara alls ekki eftir þessari nótt. Einhver hafði
borið hann sofandi út i kjarrið, þar sem hann hafði seinna vaknað einn og
yfirgefinn í myrkrinu. Löngu seinna, þegar hann hafði vit til, hafði þessu
verið lýst fyrir honum. En aðeins í stórum dráttum. Edwardarnir höfðu
aldrei kært sig um að tala mikið um það.
Og loks var það eitt enn, sem gat kippt undan honum fótunum; það
hafSi komið aftan að honum aðeins tvigvar þrisvar á ævi hans, og þó olli
það honum meiri áhyggjum en draumurinn og lyktin, þvi að á þvi virtist
engin skýring til. Hann leit á þennan þriðja veikleika sinn sem fullkomna
sturlun og forðaðist að hugsa um hann. Og komst þó stundum ekki hjá
því, eins og til dæmis núna.
Svo að nú var hann kviðinn og óttaðist, að hann kynni að reynast
4
VIKAN