Vikan - 06.02.1958, Page 10
Hún hefur yndi af listum
og hefur börnin með sér til að skoða list-
sýningar út um heim.
Sigríður í dyrunum milli listiðnaðardeildarinnar og sýningarsalarins.
Ljósrn.: O. Ölafsson
„TjlJN er mjó.“ Ég fæ hér að láni
ii lýsingu Nóbelsverðlaunaskálds-
ins á annarri íslenzkri konu, til að
gefa ykkur, lesendur góðir, hugmynd
um það hvernig hún lítur út háa,
diikkhærða konan, hún Sigríður
Kristin Davíðsdóttir, sem veitir for-
stöðu Sýningarsalnum við Hverfis-
götuna, þar sem seldur er listiðnað-
ur og haldnar sýningar á listaverk-
um, eins og kunnugt er. En hún
kemur ekki „bláklædd í gulli og
silfri“ á móti manni, til að taka við
tíkallinum, inngangseyrinum að
sjálfum sýningarsalnum. Nei, hún
gengur i svörtum síðbuxum og köfl-
óttri ofinni úlpu og er nútímakona í
húð og hár.
Hvers vegna er hún svona mjó?
(Ég tek hlutverk mitt sem blaðasnáp-
ur alvarlega og læt spurningarnar
af hverju og hvers vegna dynja á
Sigríði, eins og þar væri kominn heill
barnaflokkui- úr Laufásborg). Jú,
hún er svona grönn og spengileg af
því að hún hefur ekki látið egg, kjöt,
fisk, krydd, og guð má vita hvað
meira, inn fyrir sinar varir í sjö ár.
Þá var hún sjúkrahúsmatur, veik í
maga og með liðagigt, en semsagt,
hún komst í kynni við kenningar
sænska læknisins Werlands, og fór
að lifa á mjólkur- og jurtafæðu, og á
sjúkrahúsið fór hún aldrei. „Það
dugar ekki að láta bílabenzín á
flugvélarnar, og ekki hvað sem er í
líkamann,“ segir hún. Þeir sem hlíta
reglum Werlands, láta daglega í sig
nákvæmlega það sem líkaminn
þarfnast og ekkert umfram. T. d. ku
Jíkaminn þurfa í allt 3 lítra af vatni
á dag og það skal drukkið á vissum
tímum. Gunnar S. Magnússon list-
málari, eiginmaður Sigriðar, og
drengirnii' hennar tveir, lifa allir á
samskonar fæðu, þó þeim hafi aldrei
orðið misdægurt, og þrífast vel af.
Slíkur matur hlýtur að vera hrein-
asta kjarnafæða, ef hann færir öll-
um annan eins kjark og dugnað og
Sigríði. Máli minu til sönnunar verð
ég að segja ykkur frá því þegar yngri
drengurinn hennar fæddist suður í
Frakklandi fyrir hálfu öðru ári.
Hjónin voru i 9 mánaða námsferð
um listaborgir Evrópu til að skoða
það sem söfn stórborganna hafa upp á
að bjóða. Sigríður lét það ekki aftra
sér þó hún ætti von á barni eftir tvo
mánuði. „Eins og það sé ekki hægt
að fæða börn hvar sem er i heimin-
um“, svo notuð séu hennar eigin orð.
Fjölskyldan lagði því af stað — ekki
með nesti og nýja skó, heldur með
plasttösku undir hinn nýja meðlim
fjölskyldunnar, ef hann skyldi verða
cf bráðlátur að komast á söfnin og
fæðast í einhverri lestinni.
Þau ferðuðust í hálfan annan mán-
uð um Holland, Frakkland og Spán
og þaðan til Italíu, en ætluðu að
stanza einn dag í Grenoble í Suður-
Frakklandi á leiðinni, til að skoða
myndlistarsafnið þar. En þá vildi
barnið ekki bíða lengur og lá svo mik-
ið á, að það lét sig það engu skipta
þó um hánótt væri og húsvörðurinn
fyrirfyndist ekki til að hleypa móð-
urinni út úr húsinu, svo að hún
kæmist á fæðingardeildina. Þrátt
fyrir það komst hún þangað í tæka
tíð og fékk inngöngu, þar sem vega-
bréfið hennar sannaði að hún væri
gift. Að fimm dögum liðnum fór Sig-
riður af sjúkrahúsinu, í stað þess að
hreyfa sig ekki fyrr en á niunda
degi eins og hinar sængurkonurnar,
enda varð hún að skrifa undir það
að hún tæki sjálf alla ábyrgð þaraf.
Og á sjöunda degi, þjóðhátíðardegi Is-
lendinga, var búið um unga manninn
í töskunni frægu, farið með hann í
strætisvagni niður á járnbrautarstöð
og lestin tekin til Genova, svo að
foreldrarnir gætu neitt atkvæðisrétt-
ar síns hjá aðalræðismanninum þar.
En þó ungi maðurinn hefði tafið
ferðina eins lítið og hann frekast gat,
eins og tilvonandi íslenzkum kjós-
anda sæmir, þá urðu þau of sein og
einhver flokkur varð af tveimur at-
kvæðum í síðustu kosningum. En það
var líka það eina sem pilturinn gerði
af sér alla leiðina. Því þó hann væri
fluttur í tösku milli borga á Italíu og
borinn um listsýningar, grét hann
aldrei og hegðaði sér alveg jafn
heimsborgaralega og eldri bróðir
hans, 7 ára, sem líka var með i ferð-
inni.
„Þegar ég kom heim, eftir að hafa
kynnt mér sýningarsali víða í Evrópu
og það sem þeir hafa upp á að bjóða,
fannst mér hér tilfinnanleg þörf fyrir
einhvern stað, þar sem hægt væri að
skoða allt það nýja, sem fram kem-
ur í myndlist og listiðnaði," segir
Sigríður. Hún setti því með hjálp
góðra manna á stofn Sýningarsalinn,
sem hefur þegar haft um 20
sýningar á listaverkum erlendra og
innlendra listamanna. 1 listiðnaðar-
deildinni fyrir framan salinn eru til
sölu ýmsir fagrir gripir, eins og
stólmottur og skermar eftir Bar-
böru Árnason, batik eftir Sigrúnu
Jónsdóttir, skartgripir úr tré eftir
Baldvin Jóhannsson og skartgripir
úr málmum eftir „diter rot“ og Sig-
riði Björnsdóttur, svo eitthvað sé
nefnt.
„Nei, ég fæst ekki sjálf við neina
listsköpun, segir hún. En ég hef á-
huga fyrir öllu sem að listum lýtur.
Hef t. d. alltaf haft mikið yndi af
músik og söng, en það er ekki hægt
að gera allt. Ef maður reynir það,
verður maður aldrei heill í neinu, og
það vil ég ógjarnan. 1 Noregi lærði
ég að sniða kvenfatnað og barna-
föt og hef alltaf gaman af að sauma
á mig og börnin.
Ég hef alltaf unnið úti, og mundi
alls ekki una við það að hafa litið
fyrir stafni,“ bætir hún við.
1 vetur hefur Sigríður stúlku,
sem hjálpar henni heima og leysir
hana af i salnum. „En í sumar
verður yngri drengurinn orðinn
nægilega stór til að fara á barna-
heimili, og þá verður þetta allt auð-
veldara," segir Sigríður. Kjarkurinn
er alveg óbilandi.
Aðsóknin að salnum hefur til
jafnaðar verið góð. Sigríður kveður
hér vera all stóran hóp af fólki, sem
hefur áhuga og vit á listum. Um
þessar mundir er í salnum leiktjalda-
sýning Magnúsar Pálssonar og Sig-
fúsar Halldórssonar. Þessi sýning er
fyrsta leiktjaldasýning hér á landi
ef undan er skilin sýning Sigfúsar á
málverkum og leiktjöldum í Lista-
mannaskálanum 1947.
Sýningarsalurinn er opinn alla
virka daga frá klukkan 10 á morgn-
ana til 10 á kvöldin og sunnudaga
frá 2—10.
„Mér finnst þetta starf ákaflega
skemmtilegt og ég vildi ekkert frekar
gera,“ segir Sigríður. ,,Að vísu er við
ýmsa erfiðleika að etja. En allt nýtt
á erfitt uppdráttar, það vissi maður
fyrir.
Og sýningum verður haldið hér
áfram í framtíðinni. Eg var síðast í
dag að fjalla um sýningu á verkurn
eftir hollenzkan nútímamálara, sem
hefur hug á að sýna hér,“ segir Sig-
ríður Kristín að lokum. -— E. Pá.
Sigríður Kristín Daviðsdóttir veitir sýningarsalnum við Hverfisg. forstöðu
10
VIKAN