Vikan - 10.04.1958, Blaðsíða 2
1
m
i
KONAN er að leggja undir
sig heiminn.
Konan er að minnsta kosti
að leggja undir sig
Bandaríkin.
Skýrsla, sem atvinnumála-
ráðuneytið í Washington
gaf út fyrir skemmstu,
ber þetta með sér. Sam-
kvæmt henni er yfir ein
milljón bandarískra
kvenna í ábyrgðarstöðum.
1 bönkum. í iðnaðinum. Og
þær eru jafnvel komnar
í lögreglustjóraembætti.
TlZKUVERZLUN í New
York er búin að opna
veitingastofu — fyrir
hunda.
Þar geta kjölturakkar fínu
frúnna fengið sér bita á
meðan þær verzla.
Sama verzlun er búin að
opna fatadeild — fyrir
hunda.
Á boðstólum: Strátreyjur
(225 krónur); hvítir snjó-
skór (150 krónur); peys-
ur úr sama efni (110
krónur).
LINWOOD Gibson heitir
maður í Charlottesville í
Virginíu.
Þegar hann kvæntist, tjáði
hann Dorothy brúði sinni:
,,Ef þú nokkurntíma yfir-
gefur mig, mun ég drepa
þig.“
1 júní síðastliðnum sagði
Dorothy skilið við hann.
Og fyrir tveimur vikum,
segir lögreglan, gerði
Gibson alvöru úr hótun
sinni.
Lögreglan fullyrðir, að þeg-
__rpe $ \SA'spfsA/ó Su_ IZ/Ayj/Tnop
ar Dorothy hafi legið í
andaslitrunum eftir skot
úr haglabyssu Gibsons,
hafi hann kropið við hlið
hennar á gangstéttinni og
sagt: ,,Þú veist að ég
elska þig. Gleymdu því
ekki.“
BREZKIR listmálarar eru
byrjaðir að selja myndir
sínar með afborgunum.
Það var kona, sem reið á
vaðið. Hún fékk hug-
myndina eftir að hafa selt
gluggaþvottamanni eina
af myndum sínvun.
Gætu íslenzkir málarar ekki
tekið þessa aðferð upp?
SVISSNESKUR prófessor
að nafni Paul Niehans
heldur því fram, að hann
hafi fundið upp aðferð til
þess að „yngja fólk um
tuttugu ár á þremur dög-
um.“
Prófessorinn er 76 ára
Hann skortir ekki við-
skiptavini. Kvikmynda-
stjörnur og auðkýfingar
flykkjast til hans undir
dulnefnum.
Hver er aðferð prófessors-
ins ? Samkvæmt blaða-
fregnum byggist hún á
því, að sprautað er frum-
um í „sjúklinginn" úr
ungum dýrum. Afleiðing
(að sögn Niehans):
Frumur móttakandans
byrja aftur að vaxa.
YNGINGARSTÖÐ prófess-
orsins er í grend við
Genf. Á meðan kunningj-
ar þeirra leika sér á skíð-
um í nágrenninu, liggja
sjúklingarnir í dimmum,
blámáluðnm herbergjum
og bíða eftir því að losna
við þessi leiðinlegu tutt-
ugu ár.
Niehans segir, að kven-
sjúklingar hans vilji fyrir
alla muni leyna nöfnum
sínum. Hjúkrunarkonurn-
ar eru eiðsvarnar og
heimsóknir stranglega
bannaðar.
En þetta er mér óhætt að
segja, bætir Niehans við:
„Að meðal sjúklinga
minna hafa verið nærri
allar frægar konur í
Bretlandi og Bandarikj-
unum, sem eru að eldast
og óttast að þær séu að
glata fegurð sinni."
Eina konan í veröldinni,
sem fúslega játar að hún
hafi reynt yngingaraðferð
prófessorsins, er konan
hans.
Og það er staðreynd, að þótt
hún sé á sjötugsaldri,
gæti hún auðveldlega lát-
ist vera fertug.
ÞAÐ er talverð tízka þessa
dagana, að bandarískar
kvikmyndastjörnur bregði
sér til Moskvu.
Cary Grant var þar nýlega.
Bandarískum blaðamanni,
sem hann hitti þar, tjáði
hann: „1 fyrsta skipti á
æfinni finnst mér ég vera
frjáls."
Það varð stutt þögn, en svo
flýtti Cary sér að bæta
við: „Ég á við, að hér láta
rithandarsafnararnir mig
í friði."
Bob Hope var líka fyrir
skemmstu að undirbúa
Moskvuför.
Hann tjáði blaðamönnum í
London: „Rússarnir eru
ekki enn búnir að skrifa
upp á vegabréfið mitt, en
samkomulagsumleitanir
hafa að undanförnu farið
fram í Washington."
„Með aðstoð stjórnarvald-
anna?“ spurði einhver.
„Nei, við höfum reynt að
láta þau ekki koma ná-
lægt þessu," svaraði Bob,
„svo að ég er alls ekki
vonlaus um að samningar
takist."
VIKAN
orðsending
LEIKUR ykkur forvitni á að
vita, hvernig kvikmyndir
eru teknar? Við eigum ekki
við sjálfa myndatökuna, held-
ur undirbúninginn og það sem
gerlst að tjaldabaki.
I grein í síðasta blaði („Þær
vildu vera með“) gátum við
þess, að kvikmynduð hefði ver-
ið saga Violettu Szabo, eins
hugdjarfasta njósnara og
skæruliða Breta í síðustu
heimsstyrjöld.
í næsta blaði munum við
segja sögu þessarar myndar
Við viljum líka vekja athygli
lesenda á annarri grein, sem
birtast mun í næsta blaði. Hún
er um stúlkurnar sem vinna á
ítölsku hrísgrjónaökrunum. Ef
þið sáuð myndina „Beisk upp-
skera", þar sem Silvana Man-
gano lék aðalhlutverkið, þá
munið þiö kannski hve aum
kjör þessara stúlkna eru, hve
vinna þeirra er erfið og hve
smánarlega lítið þær bera úr
býtum.
Gömul kona skrifar okkur
og segir sínar farir ekki
sléttar. Því miður kunnum
við engin ráð við slíkri
mannvonsku, ef rétt er með
farið, en birtum hér á eftir
bréfið hennar:
„Hvaö á ég að geraf Það
hefur verið ráðist svo
harkalega á mig. Ég er
gömul kona og á dóttur,
sem á mörg öörn. Ég hef
oft komið til hennar og
reynt að hlynna að þessu
heimili eftir því sem ég hef
getað, því að sjálfsögðu lief-
ur hún mikið að gera og er
fátœk, og ekki hefur veitt
af. En svo bregður svo við
í liaust að hann tengda-
sonur minn rekur mig á dyr
með óbóta skömmum. Ég
hélt að þarna hefðu verið
einhverjar illar tungur að
verki, en ekki kom hann
með það, sagði bara að ég
skyldi leggja það niður að
vera álltaf að koma þar.
Helzt var mér gefið að sök
að vera alltaf að koma með
eitthvað handa þeim. Ég er
svo eyðilögð yfir þessu, að
ég held að það dragi mig
til dauða, af því líka að ég
er svo einmana og á engan
að. Eg hef ekki komið þar
síðan, og get engum sagt
frá þessu. Mér finnst þetta
svo leiðinlegt af henni dótt-
ur minni. Ég er svo yfir
mig örvingluð og er fyrir
löngu búin að láta hana vita
það í bréfi. Etl hún vill ekki
minnast á þetta við hann.
Það veit guð að ég hef
aldrei gert þessu fólki nema
gott, sem ekki er þakk-
andi . . .“
BRÉFASAMBÖND
Miss Jean Young (við 16
ára skólapilt. Hefur áhuga
á iþróttum og músik, helzt
rock and roll), 1270 Upton
Place, Los Angeles 41, Cali-
fornia, U.S.A. — Daniel
Williamsson, Brekkugötu 23
(við stúlkur 17—20 ára),
Skíðdal Gunnlaugsson,
Kirkjuvegi 9, og Jóhann
Ævar Haraldsson, Hólm-
garði 66 (við stúlkur 16—
19 ára), Grímur Grímsson,
Brekkugötu 19 (við stúlkur
15—18 ára) og Björn Þór
Ólafsson, Brimnesvegi 10
(við stúlkur 14—17 ára),
allar frá Ólafsfirði. — Erla
Einarsdóttir (við pilt eða
stúlku 14—16 ára), Breiða-
gerði 19, Reykjavík SA. —
Emma Magnúsdóttir (við
pilt eða stúlku 15—16 ára)
og Valgý Magnúsdóttir
(við pilt eða stúlku 17—19
ára), báðar í Frumskógum
12, Hveragerði. — Helga
Paulsen (31 árs, vill skrif-
ast á við jafnöldrur sínar,
helzt á dönsku), Strænder,
Færöerne. — Alda Krist-
jánsdóttir og Steinunn Her-
mannsdóttir (við pilta 19—
20 ára), Helga Hermanns-
Hvað er indverski kvik-
myndaleikarinn Sabu gam-
all? Er hann kvœntur?
Sabu er fæddur 1923 á
Suður-Indlandi, en seinni
spurningunni getum við
ekki svarað. Sabu er sonur
konunglegs fílagæslumanns,
sem var drepinn við starf
sitt. Hann kom til Englands
árið 1940 og hélt svo til
Hollywood árið 1945. Á
báðum stöðum hefur hann
leikið í mörgum myndum.
Geturðu sagt mér hvaða
litir fara mér bezt? Ég er
með briin augu og frekar
dökkhærð.
Þetta eru alltof litlar
upplýsingar, til að hægt sé
að átta sig á þeim. Ef hárið
á þér er dökkbrúnt, hörund-
ið hlýlegt og kinnar og
varir með gulrauðum blæ,
fara þér t. d. skærir litir
og hlýir vel. Einnig grámað
hvítt og svart. Ef hörundið
er aftur á móti bronzleitt,
henta þér djúp ríkuleg lit-
brigði, en þú þarft þá að
forðast flesta bláa liti.
Viltu vera svo góð og birta
fyrir mig litla ljóðið sem
endar svona „Trúaðrar
móður sem aldrei mér
brást". Eftir hvern er það
og hver syngur það.
Þetta Ijóð erum við búin
að birta áður. Það er eftir
Þorstein Sveinsson. Norska
dœgurlagasöngkonan Nora
Brocksted hefur sungið það
inn á islenzka hljómplötu.
Ljóðið er að finna l pésan-
urn „30 nýjustu danslaga-
textar“, l!h liefti.
Birting á nafni, nldri og heim-
ilisfangi kostnr fimm krónur.
dóttir (við pilta 18—19
ára) og Þoi'gils Eiríksson
(við stúlkur 25—28 ára),
öll að Laugardælum, Hraun-
gerðishreppi, Árn. — Anton
S. Jónsson, Árni Kr. Sigur-
vinsson, Helgi M. Ármanns-
son, Hörður B. Árnason,
Óli H. Þórðarson og Sigurð-
ur H. Bjarnason (við stúlk-
ur 15—17 ára), allir í Reyk-
holtsskóla, Borgarfirði. —
Ingunn Erlingsdóttir (við
pilta eða stúlkur 15—18
ára), Ásgarði 4, Neskaup-
stað. — Þórður Georgsson,
Suðurlandsbraut 12 A og
Sigurður Skúlason, Bugðu-
læk 16 (við stúlkur 15—19
ára), Reykjavík. — Gylfi
Jónsson (við stúlkur 14—
17 ára), Miðhúsum, Álfta-
neshreppi, Mýrum. — Jón-
ína S. Karvelsdóttir (við
pilt eða stúlku 14—16 ára),
Hnífsdalsvegi 8, ísafirði. —
Jarþrúður Jónsdóttir og
Ingibjörg Bjarnadóttir (við
pilta 18—23 ára), Héraðs-
skólanum í Reykholti, Borg-
arfirði. — Ingvar Jónsson
(við stúlkur 17—20 ára),
M.B. Geir KE. 1, Keflavík.
Útgefandi VIKAN H.F, Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjarnargötu 4, símí 15004, pósthólf 149.