Vikan - 24.04.1958, Blaðsíða 2
p
m
1
i
__ TT?G cí_ \S/fS'aJsAyó%u
unnar'
Fimm stykki
1 KAFLANUM um Lönu
Turner hér í dálkunum í
síðustu viku gleymdist að
geta þess, hve oft hún
hefur verið gift. En þetta
er vitaskuld úafsakanlegt
í frásögn um Hollywood-
stjörnu.
Jaeja, Lana er búin að
ganga í það heilaga fimm
sinnum. Hér eru eigin-
mennirnir (í réttri röð):
Nr. 1 — Artie Shaw hljóm-
sveitarstjóri.
Nr. 2 — Stephen Crane
leikari.
Nr. 3 — Stephen Crane
leikari aftur!
Nr. 4 — Bob Topping
milljónamæringur.
Nr. 5 — Lex Barker leikari
(sérgrein Tarzan).
Nú veit allui- heimurinn, að
Stompanato garmurinn,
sá sem dóttir Lönu ban-
aði, vildi fá að verða eig-
inmaður nr. 6. En Stomp-
anato var hvorki hljóm-
sveitarstjóri, leikari né
milljónamæringur; hann
virðist bara hafa verið
snoppufríður róni.
Og þvi fór — kannski —
sem fór.
P. S. — Langar ykkur að
Tita skírnarnafn Lönu
Turner ? Það kom fram
við réttarhöldin yfir dótt-
ur hennar. Gerið þið svo
vel: Julia Jean Mildred
Turner.
Blönk
úr
ENN slæmar fréttir
heimi stjarnanna:
Stjarna Judy Garland er
mjög tekin að dala.
Henni var Tyrir skemmstu
sagt upp starfi sem söng-
konu í næturklúbb í New
York.
Ekki hafði skattheimtan
fyrr frétt þetta en hún
gerði út menn að rukka
Judy um vangoldna
skatta: 140,000 krónur
(á réttu gengi).
Ekki höfðu skattheimtu-
mennirnir fyrr náð tali af
Judy en hún 1) lýsti yfir
að hún ætti ekki grænan
túskilding, 2) fór á ball.
Ekki höfðu rukkararnir
fyrr komið þessum boðum
til yfirmanna sinna en
skipað var að handtaka
Judy.
Og til þess að komast hjá
því að fara í Steininn,
mátti Judy framselja
skartgripina sína, sem
virtir eru á 900,000 krón-
ur (á réttu gengi).
Verðlaun
EN FRÁ Hollywood hafa
líka borist góðar fréttir.
Þær eru í stuttu máli þess-
ar:
Afhendingu Oscarverðlaun-
anna eftirsóttu er lokið.
Þessir leikarar hlutu
„fyrstu verðlaun": Alec
Guinnes og Joanne Wood-
ward. Joanne er nýliði.
Að austan
JOHN GUNTHER, ferða-
bókahöfundurinn víð-
kunni, er búinn að skrifa
bók um Sovétríkin.
Glefsur: Inntökupróf í rúss-
neska menntaskóla eru
mun þyngri en í banda-
ríska.
Ákaiflega fáar erlendar
skáldsögur eru þýddar á
rússnesku. „Gamli mað-
urinn og hafið“ (Heming-
way) náði miklum vin-
sældum.
Gina Lollobrigida er ein vin-
sælasta erlenda kvik-
myndadísin í Moskvu.
1 Moskvu eru amerískar
jassplötur seldar á svört-
um markaði og komast í
geipiverð.
Mjög fáir útlendingar
standast bílpróf í Rúss-
landi. Prófið er margfalt
erfiðai'a en í Vestur-
Evrópu.
GUNTHER finnst rússnesk-
ar konur of þriflegar. Og
hann segir sögu af rúss-
neskum listmálara, sem
gerði það að sérgrein
sinni að mála hetjumynd-
ir af Stalin. Svo skrens-
aði Stalin á stallinum
sem kunnugt er. Og (seg-
ir Gunther) þessi málari,
sem búinn var að koma
sér upp heilum lager af
Stalinmyndum, gat allt í
einu ekki losnað við eina
einustu — og fór á haus-
inn.
Snuprur
LOKS er þess að geta, að
Glorida nokkur Roden,
sem er búsett í London,
fékk fyrir skemmstu
skilnað frá manni sínum
eftir að hafa borið (með-
al annars), að þegar hún
fjögur undanfarin ár
hefur spurt, hvað hann
vildi fá i afmælisgjöf,
hafa svörin verið: 1)
50,000 tonn af aspiríni,
2) höggmynd af George
III., 3) kafbát, 4) skilnað.
GURVEGARIN
í verðíamiakeppni Vikunnar varð:
N
LDA GUÐRUN GISLADGTTIR
Sandabraut 10, Akranesi
Verðlaunin eru: Flugferð til Kaupmannahafnar og
heim aftur.
Blaðinu bárust á annað hundrað ráðninga víðsveg-
ar að af landinu og reyndust sextán réttar, þar af
tvær frá lesendum á Akranesi. Tala happdrættis-
skuldabréfanna var alls 147.
VIKAN óskar sigurvegaranum til hamingju.
P.S.
S næstu viku verður skýrt frá nýrri stórkost-
íegri verðlaunakeppni sem ráðgerð er í blað-
inu! Stórir og glæsilegir vinningar!
Gleöilegt sumar!
SKÓBÚÐ EEYKJAVlKUR
Aðalstræti 8 — Laugavegi 20A
Laugavegi 38 — Snorrabraut 38
Garðastræti 2
Gleðilegt sumar!
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ
Gleðilegt sumar!
M A T A H. F.
Gleðilegt sumar!
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
Gleðilegt sumar!
Ullarverksmiðjan Framtíðin
Gleðilegt sumar!
Vátryggingafélagið h.f.
Gleðilegt sumar!
tUUBUSidl
^/'jssnsssmctss^R’js^xissíi&iit/
Forsíðum. tók Magnús Th. Magnússon
fJtgefandi VIKAN H.F, Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjarnargötu 4, sími 15004, pósthólf 149.