Vikan - 24.04.1958, Blaðsíða 13
Astrid prinsessa, æðsta kona Noregs
ÐSTA kona Noregs, þar sem
nú ríkir nýr konungur,
ekkjumaðurinn Ólafur V., er hlédræg
26 ára gömul stúlka, sem helzt vildi
fá að una við að klína leir á mótun-
aihjól leirkerasmiðsins, klædd hvítum
samfestingi.
Astrid Maud Ingeborg prinsessa,
yngri dóttir konungsins, á sér einkum
eitt hugðarefni, sem undanfarin átta
ái hefur tekið upp mestan hluta af
tima hennar og áhuga — leirkera-
gerð.
Hún er heldur enginn viðvaningur
í faginu. I borðsal 1. farrýmis á nýj-
asta norska stórskipinu, sem siglir á
milli Oslóar og New York og ber
nafnið Bergensfjord, hanga fallegir
skildir og diskar, sem hún hefur sjálf
skapað og unnið.
Listmunir hennar hafa verið sýndir
í sýningarsal, Norskra samtaka fyrir
hagnýta list,“ og sérfræðingar á
þessu sviði hafa mikið álit á upp-
dráttum hennar, óg álíta að hún hefði
getað skapað sér nafn sem listamað-
ur á sviði leirkeraiðnaðar, væri hún
ekki prinsessa.
Munir hennar eru, eins og nú tiðk-
ast, abstrakt í formi og með sterkum
andstæðum í litum. Henni geðjast
ekki að því sem er „sætt og snoturt."
Verk hennar eru hrjúf og sterk í lín-
um, eins og bezt sést á salatdiskun-
um, sem hún notar handa gestum
sínum í óformlegum matarveizlum.
Astrid prinsessa er há stúlka með
hnetubrúnt hár og blá augu. Þetta er
eðlileg og tilgerðarlaus ung stúlka,
sem ef til vill hefur full snemma orðið
að taka á sig hinar erfiðu skyldur
norska konungdómsins. Síðan Ragn-
hildur prinsessa, eldri systir hennar,
giftist norskum skipaeiganda árið
1953 og fluttist til Suður-Ameríku,
en einkum þó síðan móðir hennar,
Martha prinsessa, dó árið 1945, hefur
hún helgað sig húsmóðurskyldunum
á heimili föður síns.
Hin konunglegu skyldustörf, opn-
un bazara og elliheimila, heimsóknir á
góðgerðar- og menningarsamkomur,
ferðalög tjl húsmæðraskóla úti í
sveitum og lömunarveikissjúkrahúsa
í fjarlægum bæjum, hafa fengið
henni yfrið nóg að starfa. En alltaf
er hún á sínum stað, brosandi, og
reiðubúin til að segja eitthvað vin-
gjarnlegt og spyrja skynsamlegra
spurninga.
1 opinberri heimsókn i kvenna-
stofnun eina í Oslo síðastliðið vor,
kom hún gestgjöfum sínum á óvart
með því að háma í sig smurða brauð-
ið með mjög góðri list.
Hún trúði sessunaut sínum fyrir
ástæðunni. — Eg var alveg glor-
hungruð. Eg var búin að ferðast all-
an daginn í lest frá Þrándheimi og
hafði engan tíma til að fá mér að
borða áður en ég kom hingað, þvi ég
blátt áfram mátti til með að ganga
um garðinn heima og aðgæta hvort
stormurinn í nótt hefði skemmt á-
vaxtatrén.
I byrjun þessa árs gerði slæmur
sjúkdómur í slímhimnu augans þessi
opinberu skyldustörf hennar helm-
ingi erfiðari. En prinsessan hélt á-
fram að leysa þau af hendi með
dökkblá gleraugu og lét i laumi biðja
blaðaljósmyndara um að skella
ekki ljósglömpum beint framan í sig.
Astrid prinsessa er fyrst og fremst
ákaflega heimakær stúlka, sem kann
vel við sig uppi i sveit. Hún er mikið
fyrir útiíþróttir, hefur gaman af að
sigla á sumrin og vera á skíðum á
veturna. Og hún er mikið fyrir að
fara í gönguferðir með hundinn sinn
í garðinum heima á Skaugum, rétt
utan við Oslo.
Garðurinn og blómin skipa háan
sess í lífi hennar. Henni ferst
vel úr hendi að raða saman blómum
og sér sjálf um allar skreytingar
heima í Skaugumhöll. Auk þess
er hún prýðileg saumakona og
saumaði mikið af fötunum sínum
sjálf, áður en opinberar skyldur fóru
a? talta upp of mikið af tíma hennar.
Prinsessan eignaðist marga vini í
Frmháld, á hls. llt.
Gleðilegt sumar!
Verzlun Björns Kristjánssonar
Gleðilegt sumar!
Chemia h.f. Sterling h.f.
Gleðilegt sumar!
Kr. Kristjánsson h.f.
Gleðilegt sumar!
Efnaláugin GLÆSIR h.f.
Hafnarstræti 5 Laufásveg 19
Blönduhlíð 3
Gleðilegt sumar!
Gleðilegt sumar!
Marteinn Einarsson & Co.
Gleðilegt sumar!
Rafvélaverkstæði og verzlun
Halldórs Ólafssonar
Gleðilegt sumar!
h/fOFNASMIÐJAN
IINNOLTI 10 - MVIIAVfl -'ftlANOt
Gleðilegt sumar!
JíaZpCLhí
Gleðilegt sumar!
Verzlunin PFAFF
SKÓLAVÖRÐUSTlG 1
Gleðilegt sumar!
Timburverzlun
Árna Jónssonar & Co. h.f.
VIKAN
13