Vikan


Vikan - 28.08.1958, Side 2

Vikan - 28.08.1958, Side 2
STJÖRNUSPÁ Helga og Erla spyrja um heimilisföng eftirtalinna leik- ara: Tommy Sands, Tab Hunter, Harry Belafonte, Pat Boone Qg Sal Mineo. Heimilisföng hinna tveggja síðast- nefndu höfum við því miður ekki, en til þess að skrifa hinum þrem er nóg að skrifa eftirfarandi utan á umslag- ið: 20th Century Fox Studios, 10201 West Pico Buolevard, Los Angeles 35, Calif. USA. Kæra Vika, Viltu gjöra svo vel að segja mér af hverju leikarar svara ekki alltaf bréfum sem maður sendir til þeirra. Og hafa allir leikarar í Hollywood einkaritara? með þakklæti — B. SVAR: Lcikara eru oftast önnum kafnir allan daginn við störf sín og þar að auki berst þeim slíkur aragrúi bréfa hvaðanœva að úr heiminum að það vœri margra manna verk að svara þeim öllum. Hitt er i rauninni að- dáanlegra að leikarar skuli sjá sér fœrt að svara ein- hverjum hluta bréfanna. Flestir HoUywooá leikarar hafa einkaritara cða umboðsmenn. Birting á nafni, aldri og heim- ilisfangi kostar fimm krónnr. María E. Jónsdóttir 20—25 ára, Gili, Dýrafirði, og Heiða Jónsdóttir, Eyri, Ögursveit N.-ls., 16—20 ára. ftiafn LoffEeiða orðið kunnugf beggja vegna AtEanfshafsins Nokkru eftir að I^oftleiðir hófu millilandaflug sitt í júlí- mánuði 1947 tók félagið að íeitaifyrir sér um leyfi til þess að fá að halda uppi áætlunarflugferðum milli Islands og Bandarikjanna. Sumarið 1948 var þetta leyfi veitt og sam- kvæmt því var farið héðan í fyrstu áætlunarflugferðina tii Bandaríkjanna 25. ágúst 1948. Fyrstu árin voru flugferðirnar til Bandaríkjanna ekki reglubundnar og um tíma lögðust þær niður, en frá árinu 1952 hefur félagið stöðuglega haldið uppi áætlunarflugi til og frá New York, fyrst vikulega en síðar daglega. Frá 1938 til 1952 flutti félagið tæplega 1700 farþega til og frá New York, en frá og með 1952 hefur farþegatalan verið þessi: Árið 1952 1.036 farþegar. Árið 1953 3.419 farþegar. Árið 1954 7.079 farþegar. Árið 1955 9.135 farþegar. Árið 1956 13.963 farþegar. Árið 1957 17.704 farþegar. 1. janúar til 25. ágúst 1958 13.235 farþegar. Félagið hefur þvi á þessu tíu ára tímabili flutt samtals 67.250 farþega til og frá New York, en sá hópur er álíka fjölmennur og íbúar Reykjavíkur reyndust við siðasta mannta. Yfir Norður-Atlantshafið liggja einhverjar fjölförnustu flugleiðir í heimi, en fyrir þvi er baráttan mjög hörð um hina miklu markaði þeirra. Þó að þar eigi ójafnan leik fjársterk flugfélög stórþjóða og hið litla íslenzka flugfélag, þá hefur Loftleiðum tekizt að afla svo mikilla vinsælda, að flugvélar félagsins hafa verið þéttsetnari að undan- förnu en tíðkast hjá öðrum þeim flugfélögum, sem halda uppi áætlunarferðum milli Evrópu og austurstrandar Bandaríkjanna. Má í því sambandi geta þess, að fyrri- hluta sumars var hvert sæti skipað í þeim flugvélum Loft- leiða, sem fóru frá New York og nú hefur ekki reynst unnt að verða við öllum þeim farbeiðnum, sem borizt hafa til New York með þeim ferðafjölda, sem áætlaður var, en fyTir því hefur orðið að leigja flugvélar til allmargra aukaferða vestur um haf í þessum og næsta mánuði. Á þeim áratug, sem nú er liðinn hefur sá ávinningur e. t. v. orðið verðmætastur, að fyrir tíu árum könnuðust fáir við nafn félagsins, en nú er það orðið góðkunnugt beggja vegna Atlantshafsins og hefur eignast fjölmennan hóp öruggra viðskiptavina. Fyrir því standa nú vonir til, að félagið geti haldið áfram að eflast til aukinna sigra á þeim alþjóðlega leikvangi flugsins, sem farið var inn á með fyrstli Ameríkuferðinni 25. ágúst 1948. I’ENNAVINIK VA TNSBERAMERKIÐ (20. janúar—18. febr). Fyrir næstu mánaðarmót verðið þér að taka ákvörð- un í máli, sem hefur mikla þýðingu fyrir yður og yðar nánustu. — Það er því um að gera að hugsa það ræki- lega áður en ákvörðun í því er tekin. — Þér hafið feng- ið loforð um stóra peninga- upphæð næstu daga, en þar sem það getur brugðist, skulið þér fara varlega í peningamálum og ekki hlaupa til og kaupa allt mögulegt upp á krít. — Samvinna á vinnustað mun verða mjög góð. FISKAMERKIÐ: (19. febr.—20.. marz) Einstaklega góður mán- uður, þar sem þér kynnist öllu því bezta í fari með- bræðra yðar og systra og sérlega góðum hug og hjálpsemi í öliu yðar starfi. — En gleymið samt ekki, að sumir hafa áhyggjur og þurfa á hjálp að halda, sem þér getið veitt. — Þér munið ferðast og koma víða við og kynnast mörgum. HRXJTSMERKIÐ: (21. marz—20. apríl) Síðast í mánuðinum verð- ið þér i mikilli veizlu og þér hafið það á tilfining- unni að þér séuð iitilfjörleg og ómöguleg í alla staði og ekki laust við að þér verðið hálf smeykar inn um allt þetta pírumpár. — En ef þér eruð bara eins og yður er eðlilegast og kurteis, þá hverfur þetta alveg og þér munið skemmta yður af- bragðs vel. — Þér hittið vin, sem þér hafið ekki séð í mörg ár, en sem þér hafið mikið saknað. Einnig mun- ið þér eignast vináttu manns, sem verður yður til góðs i framtíðinni. NAUTSMERKIÐ: (20. apr.—20. mal) Nemið staðar augnablik. — Eins og þér sjáið, þá er tilgangslaust að þjösnast svona úr einu í annað, án nokkurs takmarks og þér komist ekkert áfram. — Nemið því staðar og haldið yður við vinnuna í róleg- heitum, en ákveðinn, þá getið þér farið að átta yður á hiutunum og farið að leggja áætlun um framtíð- ina. - Það virðist eitthvað ósamkomulag á milli yðar og nokkra vina yðar, en ef þér eruð hreinskilinn við sjálfan yður, þá sjáið þér að sökin er yðar. Talið því við þá og þér munið eign- ast þá aftur. TVlB URAMERKIÐ: (21. maí—20. júní) Þér hafið erfitt vandamál, sem þér verðið að leysa úr. Fyrir nokkrum árum lentuð þér í álíka erfiðleikum og komust úr þeim. Notið því fyrri reynslu. — Þér ættuð að taka yður nokkra hvíld frá störfum því taugarnar eru ekki í sem beztu ásig- komulag. Sýnið fólki, sem þér umgangist meiri nær- gætni en þér hafið ger und- anfarið. KRABBAMERKIÐ: (21. júní—20. júlí) Yðar takmark núna, er að hjálpa einn manneskju, með í’áðum og dáð og gerið það af heilum hug. En það getur verið að það sé mis- skilið af öðrum, jafnvel af henni sjálfri. Gerið ekkert, sem getur orðið til að vekja upp slúðursögur um yður þvi það gæti komið sér illa fyrir atvinnu yðar. Þér fáið peninga í happdrætti, reyndar ekki stóra upphæð, en þó peninga. LJÓNSMERKIÐ: (21. júlí—21. ágúst) f ér fáið tilboð um að skifta um vinnu og það virðist í fljótu bragði mjög freistandi. En hugsið yður vel um áður en þér takið því. — Þér lendið í orða- sennu við vin yðai' og óskið honum norður og niður, verðið ofsareiður og gleym- ið alveg, að þér sjálfur eruð ekki gallalaus með öllu. Um mánaðarmótin munuð þér fá hið langþráða bréf, sem færir yður gleðifréttir. ME YJA RMERKIÐ: (22. ágúst—22. sept.) Föstudagur í næstu viku virðist eitthvað misheppn- aður. Ekki ólíklegt, að þér gerið einhverja vitleysu i bókhaldinu. — En þar sem þér vitið það hér fyrirfram þá ættuð þér að vera viðbú- inn. Að öðru leyti líður mán- uðurinn án þess að um á- hyggjur eða leiðindi sé að ræða, en farið varlega í umferðinni, þér virðist vera hálfgerður glanni með bil- inn. V OGAMERKIÐ: (23. sept. — 22. okt) Þér trúið á peningaflóð yður til handa þennan mán- uð og ekki að ástæðulausu, því þér hafið minnst loforð um þá frá þeim. En þeir bregðast og þér viljið helzt gefa allt upp á bátinn. — En ef þér leggið alla krafta yðar í að koma áformum yðar í gegn, þá tekst það með glæsilegum árangri. SPORÐDREKINN: (23. okt. — 22. nóv.) Þér eruð með óþarfa á- hyggjur, sem gera ekki annað en að lama krafta yðai'. Þetta eru bara smá- munir, eins og þér munið sjá eftir nokkra daga. Þá hittið þér kunningja yðar, sem gefur yður glæsilegt tilboð um góða atvinnu. —- Vegna þess að þér lítið svo svörtum augum á lifið, þá finnst yður hann uppá- þrengjandi og leiðinlegur og viljið ekkert á hann hlusta. En þér komist að raun um, að hann er einlægur vinur og vill yður vel og þér mun- ið ekki sjá eftir að fara að hans ráðum. BOGAMANNSMERKIÐ: (23. nóv. — 23. des.) Það verður stór viðburð- ur í næstu viku: Þér munið mæta manneskju, sem yður hefup lengi langað að hitta aftur eftir langan aðskiln- að. Það verður mikill fagn- aðarfundur og úr því verð- ur hjónaband. — Þar að auki fáið þér óvænt pen- inga og það verða efni á að kaupa margt og mikið, sem yður hefur lengi dreymt um. — Happadag- urinn er 6. september. STEINGEITARMERKID: (21. des. — 19. jan.) Þér eigið mjög góðan vin, sem mun opna augu yðar fyrir einum stórum galla í fari yðar, cn sem þér viljið ckki viðurkenna í byrjun. En augu yðar opnast og þér sjáið hvílíkt glapræði þér höfðuð ætlað að fremja og verðið honum innilega þakklát. — Annars virðist þér nokkuð fljótfær í um- gengni yðar við fólk. Það getur komið sér mjög illa og reynið þvi að hafa meiri stjórn á yður. Síðustu dagar i þessum mánuði verða mjög skemmtilegir. FORSÍÐAM Litla stúlkan á forsíðunni heitir Guðbjörg Geirs- dóttir og er 2ja ára að aldri. Eftir myndinni að dæma virðist matarlystin í bezta lagi, en eliki vitum við þó hvort þessi skammtur er hennar daglega brauð. Myndina tók Geir Herbertsson. Utgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarma )ur: Jökuii Jakobsson, Tjarnargötu 4, sími 15004, pósthólf 149.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.