Vikan - 04.09.1958, Síða 3
Pósthúsið fær
aukið húsrými
og betri aðstöðu
Pósthúsið í Reykjavík var byggt
árið 1915, þegar íbúar bæjarins voru
aðeins 14000 eða um fimmti hluti af
því, sem nú er. Þegar fyrir tveim
áratugum var farið að bera á mikl-
um þrengslum, sem síðan hafa farið
vaxandi og valdið miklum örðugleik-
um á greiðri afgreiðslu og nauðsyn-
legu öryggi. Vegna þrengslanna var
mjög erfitt um allt viðhald, þar sem
hvergi var hægt að rýma um stund-
arsakir, án þess að stórtruflun yrði
á póstrekstrinum.
Pyrir allmörgum árum var farið
að leita að lóð undir nýtt pósthús á
hentugum stað, en miklar tálmanir
hafa orðið í þvi máli, ekki sízt vegna
þess að ekki hefur verið gengið end-
anlega frá skipulagi miðbæjarins.
Þegar sýnilegt þótti, að lóðamálið
mundi dragast á langinn, og að eins
og nú væri ástatt mundi verða erfitt
að fá hið mikla fé, sem þyrfti til
byggingar nýs pósthúss, var ákveð-
ið að reyna að leysa úr hinum óþol-
andi þrengslum til bráðabirgða á
annan hátt og jafnframt að fram-
kvæma nauðsynlegar endurbætur á
pósthúsinu.
Framkvæmdir hófust með þvi að
Fyrsta íslenzka Calypsolagið
Hér birtum við textann við fyrsta íslenzka Calypso-lagið. Það heitir
„Nú liggur vel á mér“ og er eftir Óðinn G. Þórarinsson og hlaut fyrstu
verðlaun i keppni félags íslenzkra dægurlagahöfunda i apríl s.l. Textinn
er af léttara taginu og er eftir Núma Þorbergsson. Pálkinn h.f., hljóm-
plötudeild gefur lagið út á plötu. Ingibjörg Smith, sem þegar er orðin
þjálfuð dægurlagasöngkona, syngur. Undirleik annast hljómsveit Magnúsar
Ingimarssonar. Á næstunni eru væntanleg 7 íslenzk dægurlög á hljómplöt-
um frá Fálkanum. Haukur Mortens, Ingibjörg Smith og Erla Þorsteina
syngja þessi lög og eru þau lika væntanleg á ,,Extended-play“-plötum.
Stína var lítil stúlka í sveit
stækkaði óðum, var rjóð og heit
hún fór að vinna varð margt að gera
lærði að spinna, látum það vera
svo var hún úti sumar og haust
svona var lífið, strit endalaust.
Samt gat hún Stína söngvana sína
sungið með hárri raust.
Nú liggur vel á mér, nú liggur vel á mér
gott er að vera léttur lund
lofa skal hverja ánægjustunud. :,:
Gaman fannst Stínu glettast við pilt
gaf hún þeim auga, var oftast stillt
svo sá hún Stjána, það vakti þrána
hann kom á Grána út yfir ána
sæl var hún Stína, saklaus og hraust
svo fór hann burtu koldimmt um haust.
Samt gat hún Stína söngvana sína
sungið með hárri raust.
Nú liggur vel á mér, o. s. frv.
Nú er hún Stína gömul og grá
getur þó skemmt sér dansleikjum á
situr hún róleg, horfir á hina,
hreyfast í takt við dansmúsikina
alltaf er Stína ánægð og hraust
aldrei finnst henni neitt tilgangslaust.
Enn getur Stina söngvana sína
sungið með hárri raust.
Nú liggur vel á mér o. s. frv.
Númi Þorbergsson.
Nýi salurinn í pósthúsinu.
bögglapóststofan var flutt úr kjall-
ara pósthússins í rýmra húsnæði,
sem var tekið á leigu í neðstu hæð
Hafnarhvols. Síðan var kjallarinn
gerður vatnsþéttur með þvi að steypa
nýtt járnbent gólf í hann. Bréfber-
ar voru fluttir til bráðabirgða af 2.
hæð niður í kjallara, frímerkjasala
og endurskoðun var svo flutt af ris-
hæð á 2. hæð. Síðan var rishæðin
innréttuð fyrir bréfberana og þeir
fluttir þangað úr kjallaranum. Þá
var almenningsafgreiðslan ásamt
bréfadeild og blaðadeild flutt af 1.
hæð niður í kjallara, á meðan gagn-
gerðar breytingar fór fram á 1. hæð.
Þar hefur almenningsafgreiðslan ver-
ið stærstækkuð, margir veggir tekn-
ir burtu, en járnsúlur og bitar settir í
staðinn, og komið þar fyrir nýjum
afgreiðsluborðum. Verður nú hægt að
hafa allt að 14 menn við afgreiðslu í
stað 5 áður.
Afgreiðsluborðin eru af alveg nýrri
gerð, sem er nú óðum að ryðja sér
til rúms á Norðurlöndum, sérstak-
lega i Svíþjóð.
Inni í borðinu er færiband, sem
flytur öll bréf, er á það falla gegn-
um bréfarifu í borðinu, yfir á annað
aðalfæriband, sem liggur niður í
kjallara til bréfdeildarinnar þar. Til
sama staðar fara öll bréf, hvort held-
ur þau eru látin i bréfarifur innan-
húss eða í útikassann Pósthússtrætis-
megin. 1 bréfadeildinni eru bréfin
svo vélstimpluð og þar fer fram
fyrsti sundurlestur.
1 lofti afgreiðslusalarins eru hljóð-
einangrunarplötur, og lýsingin hef-
ui verið bætt, og almennings síma-
klefi er i salnum.
Auk hinnar venjulegu afgreiðslu
allskonar bréfa, ávísana, póstkrafa
o þl., verður þar einnig afgreiðsla
fyrir orlofsmerki og sparimerki, sem
áður hefur verið á 2. hæð. Hinsvegar
verður blaðaafgreiðslan í kjallaran-
um.
Ýmsar fleiri nýjar innréttingar eru
nú í pósthúsinu.
Við nefndar framkvæmdir hafa
margir komið við sögu, aulc starfs-
manna póstsins. Fyrir milligöngu
húsameistara ríkisins var leitað til
húsameistarans Gunnlaugs Pálsson-
ar og byggingameistarans Björns
Rögnvaldssonar. Gunnlaugur Pálsson
sá aðallega um teikningar og lagði
á ráð um ýmiskonar tilhögun, en
Björn Rögnvaldsson sá um sjálfar
framkvæmdirnar. Afgreiðsluborðin
og básarnir eru að miklu leyti smíð-
uð af Gottfred Nilsson í Málmey eft-
ir fyrirmynd frá sænskum pósthús-
um, en aðalhlutirnir hafa verið sett-
ir saman hét. Sigurður Thoroddsen
verkfræðingur hefur annast járna-
teikningar. Jón Skúlason yfirsmíða-
verkfræðingur hefu rteiknað raf-
lagnir og ráðið lýsingu, Gunnar Theo-
dórs innanhúsaarkitekt hefur teikn-
að innréttingar aðrar en í afgreiðsl-
ur.a, Ólafur Pálsson múrarameistari
sá um múrverk, h.f. Hamar sá um
uppsetningu járna í bita og súlur,
gerði tillögur um endurbætur hita-
lagna, Johan Rönning h.f. sá um raf-
lögn og lyftu, Trésmiðjan h.f. smíðaði
ýmsar innréttingar, Ólafur Guð-
mundsson sá um dúklagnir, Osvald
Knudsen og Valdimar Bæringsson
um málningu og Páll og Benedikt
um miðstöðvalögn.
Með hinu bætta húsrými skapast
ýmsir möguleikar til endurbóta á
skipulagningu við sundurlestur bréfa
og útburð þeirra, og má vænta um-
bóta þar á, þegar henni er lokið.
Því miður er notkun frimerka-
sjálfsala nú miklum vandkvæðum
bundin, þar sem stærsta myntin,
sem við höfum, tveggja lcróna pen-
ingar er ekki einu sinni nægileg fyrir
frímerkjum á einfalt bréf innan-
lands eða til útlanda. Strax og stærri
mynt verður á boðstólum, mun nýtt
viðhorf skapast í því efni og unnt að
koma við meiri sjálfsafgreiðslu.
Það er eitt, sem gerir póstskil mjög
erfið hér, og sem almenningur ætti
að hjálpa til við að leysa. Það er, að
bréfrifur eða bréfakassa vantar á
nálægt 60% af heimilum i Reykja-
vík, því að oft er seint eða ekki
svarað, þegar bréfberinn hringir eða
ber að dyrum. Við þessar tafir tap-
ast árlega tími, sem svarar til vinnu
margra bréfbera, og afhending
margra bréfa tefst af þessum sökum.
3
VIKAN