Vikan - 25.09.1958, Side 15
Frá vöruskiptalöndunum
útvegum vér eftirtaldar vörur:
LOFTÞJÖPPUK og LOFTHAMRA margar
stærðir og gerðir.
RENNIBEKKI og aðrar járnsmíðavélar.
VERKFÆRI alls konar fyrir járn og trésmíði.
LYFTUR í hús og vöruskemmur.
FLUTNINGABÖND, margar stærðir.
SMERGILSKÍFUR á borð, einnig HAND-
SLlPISKÍFUR
GÍJMMÍSLÖNGUR fyrir vatn og loft.
Leitið upplýsinga hjá oss um þessar vörur og aðrar,
áður en þér festið kaup annars staðar.
Fjalar h.f.
Hafnarstrœti 10—12 — Símar 179 75 & 179 76
Um Evrópusamkeppni í
Ijósmyndum unglinga
Eins og áður hefur verið sagt frá í blöðum og útvarpi
hafa Evrópusamtökin þrjú, Evrópuráðið, Efnahags-
samvinnustofnun Evrópu og Evrópusamfélagið svo-
nefnda, efnt til samkeppni meðal evrópskra ljósmynd-
ara, sem yngri eru en tuttugu ára. Keppni þessi átti að
standa til 15. september, en skilafrestur hefur nú verið
lengdur til 19. október, 1958, fyrir áskoranir margra
aðila.
Efni keppninnar er: „Evrópa, ein og hún kemur mér
fyrir sjónir“, og eiga myndirnar að lýsa að einhverju
ieyti hugmynd þátttakanda um sameiningu Evrópu.
Myndirnar eiga að vera svart-hvítar, ekki minni en 9x9
cm og ekki stærri en 18x24 cm. Þátttakandi velur mynd
sinni heiti og ritar það aftan á myndina ásamt nafni
sínu, heimilisfangi aldri og þjóðerni. Ennfremur á að
fylgja myndinni stutt setning er lýsi hugmynd þátttak-
enda um sameiningu Evrópu og á hún ekki að vera
lengri en tuttugu orð.
20 þúsund verðlaun eru í boði, þeirra á meðal flugferðir
innan Evrópu, liósmyndavélar og ýmiskonar útbúnaður
til myndatöku.
Myndirnar skulu sendar til „Evrópusamkeppninnar í
Ijósmyndum,“ c/o Aðalskrifstofa Ríkisútvarpsins,
Thorvaldsensstræti 4, Reykjavík, fyrir 19. október
næstkomandi.
Ríkisútvarpið
Ritvélar fyrir skóiafóik:
Eigum fyrirliggjandi í heildsölu:
UMSLÖG með og án glugga, 11,5x16,2 cm.
á kr. 35,80 og 40,00 pr. þús.
STENCILPAPPÍR kr. 101,35 pr. 48 stk. kassi.
NUMERATORAR.
Borgarfell h.f.
Klapparstíg 26 — Sími 11372
BERGEN DIESEL
Getum útvegað frá A/S Bergens Mekaniske Verk-
steder, Bergen, hinar viðurkenndu BERGEN DIESEL
bátavélar.
Stærðir 250—660 hestöfl,
545/600 HK 4-gengis BERGEN DIESEL.
BERGEN DIESEL fæst með fastaskrúfu eða skipti-
skrúfu. Skiptiskrúfu-útbúnaðurinn er af hinni víð-
kunnu Liaaen-gerð með vökva kúpíingu og skipti-
búnaði.
BERGEN DIESEL er hin fullkomna fiskibátavél með
nýjustu endurbætur á sviði véltækninnar!
Allar upplýsingar gefur:
Vélawerksfæði Sig. Sveiitbjör^ssom bi.
S:mi 15753. — Reykjavík.
VIKAN
15