Vikan


Vikan - 05.02.1959, Blaðsíða 3

Vikan - 05.02.1959, Blaðsíða 3
LÆRIÐ AÐ TEFLA Hin ágæta kennslubók í skák, er þeir Friðrik Ólafsson stórmeistari og Ingvar Ásmundsson hafa samið, fæst hjá öllum bóksölum og beint frá útgefanda. Fæst í tvenns konar bandi, á kr. 85.00 og kr. 95.00. Send gegn póstkröfu um land allt. Bókaútgáfa Menningarsjóðs Mjög gagnleg handbók handa ungum konum og verðandi mæðrum. Flytur margvíslégan fróðleik, sem allir, er ann- ast þurfa ungbörn og smábörn, ættu að tileinka sér. Fæst í tvenns konar bandi, verð kr. 80.00 og kr. 95.00. Send gegn póstkröfu um land allt. Bókaútgáfa Menningarsjóös 1wgéj’jÆe?'' ‘‘ Ph§|||:-. . v RH|k '-';S MADUR Arsins 1958 Stórmeistarinn okkar fæddist í Reykjavík 26. janúar 1935. Hann hefur mestan hluta ævi sinnar átt heima á Laugavegi 134, en býr nú á Kleppsvegi 50. Friðrik er Austurbæingur, en samskipti hans við Vesturbæinga hafa ver- ið mjög vinsamleg. Eitt sinn tók hann þátt i frjálsíþróttanám- skeiði fyrir drengi, sem haldið var á vegum KR og hefur verið hollvinur félagsins síðan. Þótti hann því snemma sigurstrangleg- ur í lífinu. Iþróttaáhuginn hefur enzt Frið- riki fram á þennan dag. 1 Gagn- FRIÐRIK ÓLAFSSON, stórmeistari. fræðaskóla Austurbæjar var hann í stjórn íþróttafélagsins, í Menntaskólanum í Reykjavík var hann í handknattleiksliði sins bekkjar og sem háskólastúdent fylgdizt hann vel með knatt- spymu og frjálsíþróttum. Sagt er, að iþróttamennskuna hafi Friðrik frá móður sinni Sigrxði Símonardóttur, en tónlistar- gáfu hefur hann þegið frá föður sínum, Ólafi Friðrikssyni. Friðrik hefur ágæta söngrödd (bary- ton) og hefur mikið yndi af klassískri tónlist. Hann á ágætt plötusafn, m. a. sinfóníur Beet- hovens og nokkrar ópexur. Og eins og allir vita er skák bæði list og iþrótt í senn. Faðir Friðriks kenndi honum mannganginn, en naut skamma hríð þess veraldargengis að vera lærimeistari sonar sins, því Friðrik tók skjótari framföium í skáklistinni en menn höfðu áður spumir af hérlendis. Vakti skákstíll hans mikla athygli og mátti fljótt sjá, að skákhæfileikar hans voru óvenju ríkulegar. En ýmsir vom furðu lengi að koma auga á þetta og fannst þeim Friðrik ekki skákmannlega vaxinn. Keppnisrétt- indi í meistaraflokki vann hann sér innan ferm- ingaraldur, en var samt ekki undrabam á borð við Reshewsky eða Fischer. Árangur Friðriks er ekkl ávöxtur mikilla þrá- setu við skákborðið. Á blómaskeiði hraðskákmótanna, þegar mestu skákáhugamenn Reykjavíkur notuðu laugardags- kvöldin til að auka við þjálfxm sína, fór Fi’iðrik Ólafsson á dansleiki. Hann kann vel að skemmta sér í hópi góðra félaga, en hefur aldrei verið haldinn óhóflegri skákdeliu. En hann hefur frábært keppnisskap og teflir hverja skák til vinning. Engu máli skiptir við hvern hann teflir eða hvort hann hefur hvítt eða svart. Þessi eiginleiki hefur fært honum marg- an glæstan sigur, en veldur því líka, að hann kollsiglir stundum, þegar örugg jafnteflishöfn virðist framimdan. Þetta er ekki ljóður á ráði hans, heldui- þvert á móti. Svona tefla þeir, sem miklir eru í skákheiminum. Á skákmótum má oft sjá á svip manna, hvort gæfan er þeim hliðholl, en fáar svipbi’eytingar verða greindar I andliti Friðriks Ólafssonar, þeg- ar hann situr við skákborðið, rólegur en einbeitt- ur. Hins vegar þykjast glöggir áhorfendur geta séð á handahreyfingunum hvernig honum er innanbi’jósts. Þegar hann var yngri, lét hann hökuna hvíla á krepptum hnúunum, ef hann var ánægður með stöðuna, en fól andlitið í höndum sér, ef taphætta blasti við. Nú strýkur hann hök- una í hraðskákum og þegar ekki þarf að hugsa neitt sérlega djúpt, en fari hann að fitla við barkakýlið, er eitthvað mikilvægt í aðsigi. Friðrik teflir ekki oft á skákmótum hér heima, en enginn þarf að vera í vafa um, hver sigur- inn hreppir, ef hann er meðal keppenda. Friðrik hefur ekki tapað kappskák fyrir Islendingi síðan 1953, en þá lagði Sveinn Kristinsson hann að velli. Fi-iðrik keppti i fyrsta skipti á erlendri grund á unglingameistaramóti í Birmingham árið 1950. Hann var þá 15 ára og hafði aldrei til útlanda komið, kunni ekki ensku og var einn á ferð. En erindum sínum kom hann fram. Hann hafði með sér að heiman nokkur pappaspjöld og á þau var letrað á íslenzku og ensku nauðsynlegustu setn- ingar. Friðrik gerði sig skiljanlegan með því að sýna það spjald, sem við átti hverju sinni. Þarna var ekki við aukvisa að etja. Þá reyndu þeir Larsen með sér í fyrsta sinn og hafði Friðrik sigur. Fararefnin voru rýr og frammistaðan ekki sérstök, miðað við það sem síðar varð, en mjór er mikils vísir. Nú er mikil reisn yfir ferðum Friðriks Ólafssonar, en líklegt er, að hann hefði aldrei orðið stórmeistari ef hann hefði ekki það skap, sem þurfti til að áræða í förina til Birm- ingham. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.