Vikan


Vikan - 05.02.1959, Blaðsíða 11

Vikan - 05.02.1959, Blaðsíða 11
TENNUR: Hvenær fóruð þér síðast til tann- læknis? Ef svarið er fyrir meira en sex mánuðum eða enn verra, að þér vitið það ekki, skuluð þér strax í dag panta tíma hjá tannlækni. Að þvi er tönnum viðkemur er aðalatriðið, að þær séu heilbrigðar. Á því bygg- ist fegurð þeirra, svo að þér eyðið tíma yðar til einskis við að reyna að verða falleg, ef þér gleymið tann- lækninum. Flestir tannlæknar ljúka viðgerð á því að hreinsa og pússa tennurnar, og sá árangur ætti að hvetja yður til að halda áfram heima að halda tönnunum fallegum. Byrjið á því að nota burstann rétt bæði á tennur og góm. Notið hring- hreyfingu frá góm til tanna og mun- ið, að ætlunin er að herða góminn engu síður en að hreinsa tennurnar. Ef alltaf blæðir úr tönnum við burstun, ættuð þér sem fyrst að tala við tannlækni. Notið réttan bursta, mjúkan eða meðalmjúkan bursta, (notið ekki mjög harða bursta, hann rífur aðeins góminn) bíðið ekki eftir að hann gangi úr sér vegna of- notkunar. Endurnýið hann a. m. k. á þriggja mánaða fresti. Bezta tannkremið er það, sem yður finnst bezt bragð að, það, sem hvet- ur yður til að hreinsa tenmu'nar reglulega. Tvisvar á dag er nauðsyn- legt og þrisvar ágætt. Gleymið ekki, að það er ekki aðeins gaman að sjá fallegar tennur heldur einnig þægi- legt að finna góðan andardrátt. Ef þér borðið fæðu með réttum hlutföllum, ættu tennur yðar að fá næga næringu, maturinn, sem þér borðið, hefur meiri bein áhrif á tenn- urnar en að byggja þær upp. Melting- in hefst í munninum og of mikil sætindi orsaka of miklar sýrumynd- anir, sem skemma glerunginn á tönnunum. Ef þér getið ekki minnk- að súkkulaðiát, ættuð þér að reyna að neyta þess eftir málítðir og skola tennurnar vel á eftir. Allt sem er hart og stökkt, herðir góminn og glerunginn á tönnunum. Eskimóakonur, sem nota tennurnar til alls frá því að borða hrátt skinn og til að mýkja húðir, þekkja ekki orðið tannpína! Ef þér takið með yður glas af mjólk i rúmið, skuluð þér skilja eftir kexkökuna. Brauðmylsna í rúminu er óþægileg, en ekki alvarleg — á tönnunum getur hún unnið miklar skemmdir á einni nóttu. Ef þér fylgið þessum reglum í sex vikur, verða þær orðnar að vana og þér munuð ekki geta hætt við þær. NEGLUR: Já, ég veit, hvað er að nöglunum yðar. — Stökkar, naglabönd þurr og með gular skellur. Ef þær eru mjög slæmar eru þessar sex vikur aðeins Fegurð á 6 vikum FAGRAR TENNUR OG NEGLUR undirbúningurinn. — Þér verið að halda áfram meðferð í sex mánuði, þann tíma, sem það tekur að láta alveg nýjar neglur vaxa. En sex vik- ur er nógu langur tími til að lag- færa venjulegar veilur. í>ér skuluð byrja á því að setja til hliðar naglalakksglösin yðar í sex vikur. Jafnvel hið bezta lakk veldur dálitlum erfiðleikum, sem eru mein- lausir fyrir heilbrigðar neglur, en eru of miklar fyrir veikar (þess má geta, að því dekkri, sem liturinn á lakkinu er, því meira tjón vinnur það). Hafið þér hugleitt orsakir veik- þarfnast áburðar til að laga þau. Er gott að bera góðan áburð á neglurn- ar á kvöldin og eins, þegar þér þvoið hendurnar. Hrufóttar neglur stafa líklega af veikindum eða kalkskorti. Talið við lækni um það. Haldið nöglunum hreinum með mjúkum bursta og volgu vatni. Heitt vatn og málmþjöl munu ekki reynast betri og geta auk þess skemm negl- urnar. Skæri eru til margra hluta nyt- samleg, en ekki til að klippa neglur. Notið langa smergilfjöl og sverfið frá hliðum að miðju og hafði egg- laga myndun í huga, ekki hvassan brodd. Við lok sex vikna ætti að vera ó- hætt að lakka þær neglur, sem betur voru farnar. Hafið það á tyllidögum fyrst í stað, en þegar þér farið að notað það að staðaldri, ættuð þér að hvíla neglurnar frá því við og við eina eða tvær vikur í senn. Munið, þegar þér takið naglalakk- ið af: nuddið því ekki umhverfis nöglina og i naglaböndin með því að nudda það lengi með bómull. Notið stóran hreinan bómullarhnoðra fyrir hverja nögl, látið hann hvíla við nöglina í eina mínútu og strjúkið síðan lakkið af. Þá ættu neglur yðar að vera alveg hreinar. Þetta á einnig við um neglur á tánum með einni undantekningu: þær verður að klippa beint. leikans ? Hafði þér athugað heilsu yðar? Notið þér sterk þvottaefni? Hafði þér ánægju af garðyrkju? Pikkið þér á ritvél ? Notið þér gúmmí- hanzka við hvers konar þvotta, mjúka leðurhanzka við garðyrkjuna, sláið þér laust á ritvélina? Stökkar neglur og þurr naglabönd VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.