Vikan


Vikan - 05.02.1959, Page 7

Vikan - 05.02.1959, Page 7
Liturinn sem alltaf er í tízku Fyrsta myndin sýnir kjól úr svörtu, möttu flaueli eða þykku satíni, með hvítum bryddingum að framan og slaufu í háls- málinu. Hann nýtur sín bezt á ungum stúlkum eða vel vöxn- um ungum konum. Kjólinn er hægt að nota í minni háttar samkvæmi, á dans- staði, leikhús og i stærri veizlur og vera þó alltaf vel klædd. „Klæðnaður með einföldu sniði og í litum, sem aldrei fara úr tízku er fyrir þær konur sem ekki hafa mikil peningai-áð“. Þetta er setningin sem mun lengst lifa af öllu því sem hinrt frægi framliðni tízkufrömuður Dior hefir látið birta og hafa eftir sér. Allt annað sem birt var eftir þennan dánumann og yfirleitt birt er í tízku- heiminum,. er miðað við það að vera stundar fyrirbrigði og ekki til þess ætlast að það verði annað. Þessir kjólar sem myndir birtast af hér á tízkusiðunni, eru fyrst og fremst ætlaðir þeim sem óska ekki eftir mikilli sundurgerð í klæða- burði, en vilja vera vel og viðeigandi klæddar hverju sinni. Kjólarnir eru samkvæmt nýjustu tízku, en þó ekki þannig að hætta sé á að þeir verði farnir úr móð næsta vetur. Á öllum aldri er konan vel klædd í svörtu og enginn litur á betur við virðulegan klæðnað. Hverri mynd fylgir smá teikning er sýnir baksvip kjólsins. Annar kjóllinn sem sýndur er er einnig svartur að lit úr ullar-georgette eða kashmir og hentar betur fullvöxnum konum, en barn- ungum stúlkum. Eins og hann er sýndur. á efrti myndinni er hann frambærilegur hvar sem er. Allt frá cocktail-veizlu kl. 5—7, í leikhús og í kvöldsamkvæmi þótt dansað sé. Þar er einnig hægt að nota treyju eins og sýnt er á neðri myndinni og er hún brydduð með svörtu satíni á ermum og að neðan. Þá væri eins hægt að nota kjólinn til hádegis-verðar í spilaklúbbinn og víðar. Hvítir háir hanskar eru notaðir við þessa svörtu kvöldkjóla, en sé treyjan höfð við kjólinn eru svartir stuttir lianskar notaðir. VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.