Vikan


Vikan - 05.02.1959, Page 14

Vikan - 05.02.1959, Page 14
Þessi frásögn er sönn, því miður. Hún fjallar um baráttu ungrar stúlku við grimm örlög. Hún fjallar um störf kvenlögreglunnar hér, og... Kl. 11.48 HÚN stendur fyrir utan dyrnar ura- vafin kuldalegu myrkri vetrarnæt- urinnar. Hún horfir i þöglum ótta á Ijós í glugga. Skuggum bregður fyr- ir innan húss, það er hennar fólk á ferli. Hún sjálf hefur verið þama inni, en nú stendur hún- ein á kaldri götu. Hún snýr sér hægt við og gegnur burtu frá lokuðum dyrum. Hún vefur kápunni þétt að sér, og gengur eilítið álút á móti stormin- um. Niður vanga hennar renna tár, og hún bítur þétt í neðri vör og kyng- ,ir kekkinum sem situr i hálsi hennar, En hann vill ekki fara og loks getur hún ekki barist á móti lengur, hún nemur staðar og gráturinn ber hana brúnum, hendur hans er sterklegar og skinnið er sprungið á handabök- unum. Hún stendur hreyfingarlaus rétt fyrir innan dyrnar, hár hennar er blautt og það falla dropar úr því niður á andlit hennar. —- Það er eins og hún sé að gráta, hugsar hann. — Ég er hræddur um að það sé langt að bíða eftir bíl. Hún svarar ekki strax. Hún horfir aðeins á hann. Svo segir hún. — Ég ætla ekki að bíða eftir bíl. Hann skynjar kuldann í rödd henn- ar og sér bak við sviplaust andlitið, umkomuleysið og óttann. v. Það er eitthvað að hjá) henni, Börn götunnar í oí'urliði. Hún grætur sárt, en engin heyrir til hennar nema vindurinn, einmanaleikinn hertekur hana og grátur hennar er reiði blandin. Hún stendur þarna ein á miðri götu, 14 ára stúlka, sem trúir vindinum fyrir sársauka sínum og sorgum. Og vind- urinn sér aumur á henni. Hann þurkar tárin af vöngunum, strýkur henni um rauðar kinnar og fer mjúklega um hár hennar, og hún gengur af stað, augun eru nú þurr, en hvarmarnir eru rauðir og sárir. En hún grætur ekki meir, hún mun aldrei framar gráta, því hún er nú eitt af börnum götunnar og þau gráta ekki . . . ... 00 ní, HANN er að Kl. UU.U2 skella -á með byl. Göturnar eru auð- ar, nema einstaka bíll brýst í gegn um snjóskafla sem skafið hefur upp í norðan storminum. Lágvaxin ung stúlka gengur eftir götu í úthverfi borgarinnar. Hún er illa klædd, þunnir sokkar veita litið skjól, og fætur hennar eru rauðir af kulda, en hún gengur áfram, hægt, og án markmiðs. ... -0 Á bifreiðastöð- MlI. UU.Io inni í úthverfinu er mikið að gera. Síminn hringir látlaust, menn biðja um bíla, en færðin versnar stöðugt, og bílstjórarnir eru að hætta akstri, hver af öðrum. Afgreiðslumaðurinn reynir eftir beztu getu að veita mönnum úrlausn, en ekki verður hægt að hafa stöðina opna mikið lengur. Hann stendur við símann og svarar, næstum þvi vélrænt. — Nei því miður, enginn bíll. Já, ég er hræddur um að það verði nokkuð löng bið. Það eru svo fáir bílar, það er að verða ófært um bæ- inn. Hann horfir út um gluggann á bylinn fyrir utan. Snjó hleður upp að húsinu og það hvín óhugnanlega í þegar vindhviðurnar umfaðma húsið. Skyndilega er hurðinni hrundið upp. Snjór veltur inn gólfið með gestinum. Blöð fyrir framan af- greiðslumanninn fjúka til, kaldur gustur leikur um afgreiðsluherberg- ið, svo er dyrunum lokað. Afgreiðslu- maðurinn horfir í undrun á gestinn. Hún stendur þarna ögrandi í fram- komu, rétt eins og hún vilji bjóða honum birginn. Hann er maður miðaldra, þrek- vaxinn og góðlegur. Augun liggja djúpt undir óvenjulega loðnum hugsar hann, það er eitthvað mikið að. — Viltu ekki koma hingað inn fyr- ir. Það er hlýrra hér hjá ofninum. Hún hlýðir honum eins og i leiðslu og sest á harðan stól. Ósjálfrátt rétt- ir hún fram bláar og þrútnar hend- urnar til að fá varma. ... LOKAÐAR dyr. Kl. UU.JU Það er ekki leng- ur ljós í glugga. Það ríkir þögn í húsinu. Allir sofa nema móðirin. Hún vakir og grætur. Níu ung börn hennar eru loksins fallin í faðm svefnsins, sem hjálpar þeim að gleyma um stund hörmung- um hins daglega lífs. En tíunda bar. 1- ið hennar, næst elsta stúlkan hennar er útl í storminum. En hvar? Smá- vaxinn likami hennar titrar frá hvirfli til ilja af sorg og reiði. Það er nú svo komið að hægt er að kúga hana til þess að horfa á er drukkinn mað- ur hennar rekur barn þeirra að heima. Móðirin reynir að gleyma aug- um dóttur sinnar, þegar hún horfði á föður sinn, og hlustaði á skammaryrði hins drukkna manns með sársauka í hverjum drætti í hinu unga andliti. — Þú ert ekkert annað en hóra, heyrirðu það, Hóra HÓRA HÓRA! Móðirin snöktir upphátt og grúfir andlitið niður í koddann og tekur höndum fyrir eyrun. Hún er það ekki, hún er það ekki, grætur móðirin ofan í svæfilinn. Hún er dóttir mín, ég hefi alið hana, hjúkrað henni, fylgst með þroska hennar, ég hefi elskað hana. En önnur rödd segir. Já hún er dóttir þín, en þú ert huglaus. Þú hefur horft upp á mann þinn mis- þyrma henni, allt frá því að hún var lítil hnáta með liðaða lokka. Og þú gast ekki horft í stóru bláu aug- un hennar, sem svo oft spurðu þig af hverju pabbi væri svona vondur. Af hverju? Af hverju? Hvenær mistókst mér ? Hvenær bAást ég henni ? I Mínúturnar líða hægt og sáVsauka- fullt, en svefninn líknar ekki jmóður- inni. Hún vakir ein, og myiatrið er þrungið ednurminningum liðinna ára. -x. lögreglukon- Kl. ÖU.40 ÁN stendur þreytulega á fæt- ur. Þetta hefur verið langur og strangur dagur. Hún gengur út að glugganum. Þarna úti í snjókomunni eru börn þessarar borgar. Sum hjálparþurfi. Já, svo mörg hjálparþurfi. Hún hefur nú starfað að lögreglumálum í rúmt ár, og á þessum tíma hefur hún kynnst lífinu meira en margur ann- ar. Hún hefur miklu mest séð skugga- hliðamar, hún hefur í rauninni lifað og dvalist í forsælu borgarlífsins, þennan tíma. Það er oft, þegar erill dagsins er liðinn, og hún er ein eftir á skrif- stofunni, að hún lætur hugann reika. Oft hefur hún spurt sjálfa sig, hvort hún sé fær um að inna af höndum þetta starf. Hún hefur all lengi haft með unglinga að gera, og það var henni dýrmæt reynsla að starfa á uppeldisheimilinu í Danmörku. Þegar hún kom heim var leitaö eftir þvi við hana að hún tæki að sér starf kvenlögreglu. Hún andvarpar. Það versta er að starfsskilyrði eru svo bágborin. Oft hefur hún verið komin að því að gefast upp, varpa allri ábyrgð frá sér. Hún minnist atviks, þegar hún fór um borð i skip nokkurt, til þess að sækja þangað unga stúlku sem var þar að skemmtun. Stúlkan vsir utan af landi, saklaus sveitastúlka, sem mölin gerði skemmtanasjúka og lausa á kostum. Hún minnist þess að þegar hún leiddi stúlkuna niður landgöngubrúna og niður á bryggj- una, vissi hún ekki hvað hún átti að gera við hana. Ekki gat hún sett hana i kjallara lögreglustöövarinnar, sá kjallari var án efa þéttsetinn, og ekki þannig að hún gæti með góðri samvisku lokað inni unga stúlku. Fangahúsið á Skólavörðustígnum kom heldur ekki til greina. Eng- inn uppeldisskóli fyrir stúlkur á glap- stigum er til. Það væri margt öðruvisi ef þess- um nauðsynjamálum, byggingu hegn- ingarhúss, og stofnun uppeldisskóla fyrir stúlkur, hefði verið hrundið fram. Það vantaði ekki að um þessi mál hafi verið fjallað, en . . . ARIÐ 1954 ,,(74. löggjafaþing) — 14. mál. Frumvarp til laga um vistheimili fyrir stúlkur. Flm.: Gísli Jónsson. ED. 1. gr. Hefja skal þegar undirbúning að stofnun og rekstri vistheimilis fyrir stúlkur samkvæmt fyrirmælum 37. gr. laga. nr. 29, 9. april 1947, um vernd barna og ungmenna ... Gr einar ger ð. Með lögum nr. 29 9. apríl 1947, um vernd barna og ungmenna, er svo fyrirmælt, að ríkissjóður skuli koma upp að minnsta kosti tveimur vist- heimilum fyrir unglinga, sem lent hafi á glapstigum, þegar fé sé til þess veitt á f járlögum___ Með því að mál þetta allt er mjög aðkallandi, er þess vænst, að frum- varpið nái fram að ganga á sem allra skemmstum tíma.“ ÁRIÐ 1957 „(77. löggjafarþing) —- 64. mál. Tillaga til þingsályktunar S.Þ. um uppeldisskóla fyrir ungar stúlk- ur. Flm.: Ragnhildur Helgalóttir Alþingi ályktar að skora á ríkis- stjórnina að hefjast þegar handa um starfrækslu uppeldisskóla fyrir ung- ar stúlkur. Greinargerð. Um nokkurra ára skeið hefur verið starfrækt vistheimill fyrir drengi að Breiðavík í Barðastrandarsýslu. Ár- angur af þvi starfi hefur verið mjög mikill — aðeins 1 drengur af 18, sem þaðan hafa komið, liefur að ráði lent út á afbrotabraut að nýju. Nú háir það mjög starfi þeirra, sem við ungmennavernd fást, að ekki skuli vera til annað slíkt vistheimili fyrir stúlkur. . . . Barnaverndarnefnd og kven- lögreglan fá nú aftur og aftur til meðferðar mál ýmissa telpna, sem ógerlegt er að hjálpa, nema til sé fyrir þær vistheimili. Siðastliðin 10 ár hefur ríkisstjórn- inni verið skylt lögum samkvæmt að stofna og reka slíkan uppeldisskóla, þegar fé er veitt til þess á fjárlög- um . . . Á síðasta Alþingi felldu þingmenn stjórnarflokkanna tillögu um fjár- veitingu til uppeldisheimilis fyrir ungar stúlkur, en samþykkt var hinsvegar heimild til kaupa á landi til að reisa þar uppeldisskólann. . . . Nú hefur ríkisstjórnin látið undir höfuð leggjast að nota þessa heimild, svo aðkallandi sem þetta mál er og hefur lengi verið." mr■ ft. lft AFGREIÐSLU- Kl. U1.1U MAÐURINN horf- ir um stund á stúlkuna. Hann hefur reynt að tala við hana en ekki tekist. Hún situr hreyfingarlaus við ofninn með sam- anbitnar varir, og augun horfa eitt- hvað langt í burtu. Hún er horfin á vit minninganna. Afgreiðslumaður- ir.n gerir sér ljóst að hér er eitthvað að ske sem hann getur ekki ráðið við. Stúlkan við ofninn tekur ekki eftir því að hann tekur upp tólið og hringir . _.. SlMINN er að Kl. U1.U hringja. Hún heyr- ir hávaðann í svefnrofunum. Hún stendur hálfsof- andi á fætur og gengur að símanum. Dimm og róleg karlmannsrödd segir: — Er þetta sími kvenlögreglunn- ar? Þetta er á bifreiðastöðinni .... það er hér hjá mér ungur gestur, sem ég held að sé hjálpar þurfi. Hvað er hægt að gera? — ÍÉg kem innan stundar. Vinsam- legast haldið henni hjá yður þar til ég kem. Hún stendur við símann litla stund. Enn ein. O jæja, þannig er starfið. Hún tekur upp simatólið og hringir á lögreglustöðina. Hún talar við varð- stjórann og biður um lögreglubíl. — Síðan klæðir hún sig út í nóttina . . . _ _ SNJÓKOMAN hef- Kl. UI.Jo ur aukist. Lög- reglujeppanum er ekið hægt eftir þungfærum göt- um og stefnt í úthverfið. Lög- reglumaðurinn sem ekur bílnum rýn- ir út um framrúðuna, hann verður að gæta þess að festa ekki bílinn í ein- hverjum skaflinum. Lögreglukonan við hlið hans er þögul. Enn ein stúlk- an er í vandræðum. Og hvar ætlast þeir svo til að ég komi henni fyrir ef hún er heimilislaus ? Við skulum vona að hér sé ekki á ferðinni erfitt vandamál. Stelpan kannski búin að vera á flakki og þorir ekki heim. Venjulegast er það svo í slikum til- fellum, að foreldrarnir eru guðsfegnir að fá barnið sitt heim aftur, stundum auðvitað, of oft, er það svo, að það er ekki lausn á vandanum að aka stúlkunni heim. En bezt er að sjá hvað setur. ms o ft< on ÞAÐ er búið að Kl. U1.J2 loka stöðinni. Bíl- stjórarnir eru all- ir hættir akstri. Afgreiðslumaðurinn er einn eftir með gestinum. Hún sit- ur enn hreyfingarlaus við ofninn, og hefur ekkert sagt. Hann hefur ekki reynt meira til þess að halda uppi samræðum við hana. Hann biður með henni. Svo sér hann bílljósin. Þau færast nær, og bíllinn staðnæm- ist fyrir framan dyrnar. Hurðin er opnuð og þau koma inn. Lögreglu- maðurinn lokar hurðinni en lögreglu- konan gengur til stúlkunnar. Hún horfir á hana litla stund. Ein ný. — Hvað heitir þú? Ekkert svar. Afgreiðslumaðurinn veit ekkert, hann segir hvenær hún hafi komið. Meira getur hann ekki sagt. — Hvar áttu heima? — Hvergi. Röddin er hörð. — Ertu utan af landi? Ekkert svar. Lögreglukonan sest fyrir framan stúlkuna. — JSg er hér til þess að hjálpa þér. Stúlkan lýtur upp. — Það getur enginn hjálpað mér. — Víst er hægt að hjálpa þér, en þú verður að segja mér hvað þú heitir, hvar þú átt heima, og af hverju þú ert hér um hánótt. — Pabbi rak mig út. — Og af hverju rak hann þig út? — Hann rak mig út, endurtekur stúlkan, eins og hún trúi ekki sín- um eigin orðum. — Hann kallaði mig hóru. — Hefurðu verið mikið úti? — Eg þurfti stundum að flýja hús- ið. Hann lagði hendur á mig. Hann barði mig þegar hann var fullur, og hann er oftast fullur. — Hvar áttu heima? Það var nokkur þögn áður en stúlkan svarar. Lögreglukonan stendur á fætur. — Við skulum kóma vinkona, heim til þín. — Nei. Ég vil ekki, ég vil ekki. — Svona svona, það verður allt í bezta lagi, við komum með þér heim. Þau ganga að dyrunum og hverfa út í snjókomuna. Tvær fullorðnat manneskjur með ungling á milli siii Afgreiðslumaðurinn horfir á eftir þeim og hristir höfuðið. Vonandl lagast þetta. Svo eru þau horfin. Afgreiðslumaðurinn klæðir sig • í frakkann, slekkur ljósin, og læsir dyrunum. Það er meira veörið þettá, hugsar hann. Hann heldur heim já leið og gengur boginn móti stornii- inum. Heima bíður hans kaffi á hitar brúsa, það verður gott að hita sép við ilmandi kaffi og reykja eina pipú í friði og ró áður en hann fer að sofsí. Og innan stundar er hún gleymd, unga stúlkan sem kom til hans út úr snjókomunni, svo torráð og ögrandi í umkomuleysi sínu, og sat þögul við ofn hans, stutta næturstund. j VIKAIM færir lögreglustjóranum í Rsykjavík beztu þakkir fyrir aðstoð hans í sam- bandi við greinafiokk þennan. VIKAN VIKAN 15

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.