Vikan


Vikan - 12.02.1959, Blaðsíða 8

Vikan - 12.02.1959, Blaðsíða 8
FORSAGA: • Julie de Carneilhan er glæsileg kona, fertug að aldri, af tignum ættum og var gift aðalsmanni. Þau skildu og hann gifti sig aftur til fjár og gerðist umsvifamikill á stjórnmálasviðinu. Júlía tekur fullan þátt í samkvæmislífi Parísarborgar, hún á sér ung- an og ríkan elskhuga en endurgeldur ekki ást hans, í leynum hugsans elskar hún ennþá fyrrveraudi eiginmann sinn og hann er henni síður en svo frábitinn. En örlögin spinna lifsþræði þeirra á ýmsa vegu. Júlía á í fórum sínum skuldaviðurkenningu frá fyrrverandi manni sínum upp á eina miiijón og á í harðri baráttu við sjálfa sig hvort hún eigi að krefj- ast fjárins, því hún er fátæk og hefur varla í sig og á. „AIls ekki! Svo að mér líður mun betur, eins og þú skilur! Ég meina vegna þess sem ég ætla að gera.“ „Hvað þá?“ Julie gróf tennurnar í rúnstykkið og leit bjart- sýnisaugum yfir Clichy-torgið. Það var rykfallið og autt í ágústhitanum, eins og krossgötur uppi í sveit. „Eitthvað. Einhverja vitleysu. En, þú veizt, skynsamlega vitleysu í þetta sinn.“ „Julie, þú ætlar ekki að giftast Coco?“ „Hvað segirðu?" Lucie hailaði sér skelfd upp að stólbakinu. „Þetta var ékki mín hugmynd, Julie. Coco er alltaf að segja: „Ég er hræddur um, að þetta sé einmitt kona fyrir mig!“ Ygldu þig ekki svona; það afskræmir þig. En trúir þú því, sem hún spáir, Julie?“ „I fimm mínútur. Síðan hætti ég að hugsa um það.“ Henni fannst hyggilegra að ljúga ekki meir. Hún var að hugsa um næstu daga og þennan óvelkomna gest. Jafnvei Toni Hortiz, sem var staddur einhvers staðar uppi í ölpum, velt að ná sér eftir sjálfsmorðstilraunina, og frú Ella hafði séð fyrir óijósa mynd af stigum og ferðalögum. Hið innra með sér andaði hún léttara yfir áunnu frelsi, frelsi, sem hún ein myndi njóta, þegar sá tími kæmi, og hún var að hugsa um, hvert yrði hennar síðasta glappaskot. En hversvegna síð- asta? hvíslaði stolt hennar. Alltaf þegar mikið gekk á fjrrir henni, eða þegar hún var óþolin- móð, herptust lærvöðvar hennar saman, eins og hún væri á hestbaki. „Farðu og legðu þig,“ sagði hún við Lucie Albert. „Hvað geturðu sofið lengi?“ „Fjögur, fimm. Einkum þar sem ég er búin að borða. Ég þarf aðeins að klæða mig og snyrta." Viðkvæmar nasir Julie grunuðu litlu stúlkuna um að þvo sér ekki of vel; hár hennar hafði misst Ijóma sinn vegna langra kvölda í sígarettu og vindlaþoku. Hörund hennar var fölt og rakt. „Auminginn,“ sagði hún. „Ég skal ná í bíl.“ Stóru augun, sem aðeins gáfu til kynna fjölda svefnlausra nótta urðu enn stærri. „Ó, Julie, Julie. Það endar með því, að þú verður að sofa á hálmi.“ „Hálmi? Þú hefur ekki hugmynd um hve hálmur er dýr!“ Julie hló. „Vertu sæl. Það getur verið að ég líti inn í kvöld og fái hjá þér glas.“ „Gerðu það endilega, Julie. Ég skal leika fjrir þig fallega, litla lagið úr Les Biches. Lofarðu að koma?“ Julie hélt til næturklúbbsins einhvern tíma milli klukkan ellefu og eitt um morguninn. Hún var ein sins liðs, klædd svarta, klæðskerasaum- aða kjólnum sínum. Hún settist við örlítið borð, fékk sér að drekka og dró óspart að sér athygli — hnarreist, með gula nellikku í hárinu og skin- andi blá og sakleysisleg augu. Hún brosti öðru hverju til litlu vinkonu sinnar sem hafði farið frá afgreiðsluborðinu að píanóinu, til þess að leika lítinn fallegan lagstúf úr Les Biches. Eftir miðnætti lék hún undir söng stjörnunnar, sem átti staðinn. Þessi þröngi salur var í engu frábrugðinn öðr- um þröngum sölum, þar sem sungið var og drukkið. Reykmökkur loddi við lágt loftið, og stærð salarins gaf ekki tilefni til íburðar. Lucie beið eftir merki frá Julie, áður en hún gekk til hennar og fékk sér í glas. „Ó, Julie, þú ert gullfalleg, veiztu það?“ framhaldssaga „Ég verð að vera það,“ sagði Julie hugsi. Hún reyndi að halda uppi samræðum. En hún fann ekki til raunveruleikans, nema ef skyldi vera þurrabragðið r.f gininu hennar. Allt annað var ekki annað en innantómur bakgrunnur gerða hennar: hún hafði tekið vatnsmerkta bréfið úr perlumóðuröskjunni, umbrotið það, bætt við orð- unum, „Gerðu það sem þú vilt,“ og skrifað undir það „Youlka," og sent það til Herbert Espivant. Hún undraðist yfir þessu athæfi sínu. En hún sá ekki eftir ákvörðun sinni; og hún sá enn ekki eftir henni, meðan hún lá andvaka, þessa nótt. Hún efaðist aðeins í svefnrofunum um, að hún hefði nokkurn tíma gert þetta, og þessi efi vakti hana á ný. Henni varð rórra, þegar hún sá, hve gott veðrið var orðið, og sjálfri sér til mik- illar undrunar fór hún að syngja, og morguninn leið eins fljótt og á varð kosið. En hvað það er auðvelt að biða, þegar maður er í rauninni að bíða eftir einhverju eða einhverjum. Hún sló í viðinn undir borðinu þrisvar sinnum. Síðan varð hún að svara í símann Það var Coco. Hún rejmdi að hrista hann af sér, sem fjrrst. „Nei, góði minn ég get það ekki. Það er heil- agur sannleikur. Nei, nei, þetta er ekkert dular- fullt, láttu ekki eins og kjáni. Bróðir minn . . . Já, hann aftur, eins og þú segir. Bróðir minn er búinn að selja ■— hvað heitir það nú? — bú- slóðina sína, Auk anda og svína eru líka hús- gögn, sem verður að selja á að minnsta kosti hundrað og fimmtíu, en aumingja L'éon hefur ekki hundsvit á því, hvernig hann á að selja þetta, svo að ég verð að gera það. Nei, nei, ekki á morgun. Á morgun verð ég í Avi'ey allan dag- inn. Hringja í mig þar ? Nei, elskan, sambandið hefur verið slitið í þrjá mánuði. Það er ekki búið að borga reikninginn. Já, bróðir minn er einkennilegur fugl. Till allrar hamingju á ég bara einn. Hvað þá? Koma hingað strax? Nei, nei, góði minn. Nei, nei . . ég mjmdi aldrei . . .“ Óþolinmóð rödd heyrðist endurtaka í simann. „Hversvegna? Hversvegna þá?“ Julie hugsaði sig 8 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.