Vikan


Vikan - 12.02.1959, Blaðsíða 19

Vikan - 12.02.1959, Blaðsíða 19
Matseðill Mánudagur. Ný ýsa, hrogn og lifur, kartöflur. Skyr með rjóma. Þriðjudagur. Steikt dilkalifur, meS lauk og soðnum kartöflum. Hrísgrjónagrautur með rús- ínum. Kanel er borinn meS. Rjómi, mjólk eSa saft er haft út á. \ Miðvikudagur. Steiktur fiskur meS kok- teilsósu. SoSnar kartöflur bornar með. Sítrónusúpa. Fimmtudagur. Spaghetti með eggjum og osti. Súrmjólk með púður- sykri. Föstudagur. Kjöt, rófur og gulrætur. Kjötsúpa. I>íuigardagur. Fiskbollur, kartöflur, smjör, (tómatsósu). Mais- anagrautur með saft. Simnudagur. Bláberjasúpa, með tvíbök- um. Beinlausir fuglar. Súkkulaðibúðingur. (Pakkabúðingur). Þeyttur rjómi. vikunnar Steikt dilkalifur: 750 gr. lifur, 1 tsk. salt, i/3 tsk, pipar, 4 tsk. hveiti, 60 gr. feiti (smjörl.), 31/3 di. mjólk, 8'/2 dl. vatn, 75 gr. laukur, 75 gr. laukur, sósulitur. Skerið lifrina í sneiðar. Veltið þeim í salti, pipar og hveiti. Brúnið þær í feit- inni og leggið þær í pott. Hellið sjóðandi mjólk og vatni yfir og látið sjóða í nokkrar mínútur. Brúnið laukinn og látið hann sjóða með síðustu mínúturnar. Jafnið sósuna með meira hveiti, ef hún er of þunn. Spaghetti: Spaghetti er soðið annað hvort heilt eins og það kem- ur úr pökkunum eða niður- brotið, allt eftir stærð ílát- anna. Það er látið ofan í sjóð- andi vatn, vel salt, og látið sjóða loklaust í 9—10 mín. Nauðsynlegt er, að nóg vatn sé í pottinum, spaghetti má ekki liggja þétt saman. Eftir suðuna er því hellt í sigti og vatnið látið renna af. Síðan er smjörbiti bræddur í pottinum og spaghetti látið þar saman við og velt í því dálitla stund. Dálítil tómatsósa er sett saman við. Það er síðan borið fram með eggjum og rifnum mjólkurosti. Gott er að borða smurt hveitibrauð með spaghetti. Kokteilsósa. 1 skammtur mayonnaise, ensk sósa (H.P. sósa), tó- matsósa, þeyttur rjómi, sherry. öllu blandað saman eftir smekk. Sítrónusúpa. 1(4 1. vatn, 2 msk. (50 gr. hveiti), 1 msk. smjörliki, 4 msk. sykur, 1 egg, safi úr 2 sítrónum, börkur af V2 sítrónu. Sjóðið gula börkinn af hálfri sítrónu í 10 mín., bakið svo upp súpuna. Þeyt- ið eggið og hellið súpunni í. Kjötsúpa. 2 kg. kindakjöt (frampartur), 3 1. vatn, 120 g. hrísgrjón, 2 kg. gulrófur, _ 3 lauksneiðar, 250 g. gulrætur, hvítkál, salt, grænkál eða steinselja. Brytjið kjötið smátt og setjið yfir í sjóðandi saltað vatn og sjóðið. Látið hrís- grjónin út í ásamt gulróf- um, gulrótum, lauk og hvítkáli. Látið grænmetið ekki sjóða lengur en þarf. Raðið gulrófunum á fatið með kjötinu, en brytjið gul- rætumar og látið þær í súpuna. Berið kartöflur með. Fiskbollur. Mótið flatar bollur með skeið og brúnið þær í feiti. Látið þær sjóða í nokkrar mínútur á pönnunni, svo að þær steikist i gegn eða brúnið bollurnar og sjóðið þær fáeinar minútur í salt- vatni. Leggið bollurnar á fat og berið kartöflur og brætt smjör og tómatsósu með. 100 g. laukur, 50 g. smjörlíki, 1/2 1. vatn, 30 g. hveiti. Sneiðið kjötið og berjið. Skerið fleskið í ræmur, og veltið þeim í salti og pipar. Leggið eina ræmu á hverja sneið, og vefjið sneiðina saman. Vefjið utan um með seglgarni, og brúnið fugl- ana. Hellið vatninu yfir og sjóðið. Jafnið sósuna. Blómkálssúpa. Nál. y2 kg. blómkál, 2 1. vatn eða kjötsoð, 50 gr. smjörlíki, 50 gr. hveiti, 2 eggjarauður, salt, pipar. Sjóðið blómkálið, og skiptið því í litlar hrjslur. Búið til ljósa, jafnaða ;þúpu, og hafið í hana bæði kjöt- soðið og blómkálssoðið. Lát- ið blómkálið út í. Ágætt er að blanda vatnið eða kjöt- soðið með mjólk. Maisenagrautur. 2 1. mjólk, 200 g maisenamjöl, 2 msk. sykur, 1 sléttfull tesk. salt. 1(4 1. af mjólk er soðinn. Maisenamjöl og sykur er hrært út í því, sem eftir er af mjólkinni. Þessu er síðan hellt út í mjólkina, þegar hún sýður, og hrært vel í á meðan. Grauturinn er látinn sjóða í 2 mín. Pottur- inn er tekinn af og saltið sett í. Grauturinn er borinn fram heitur með kanel og sykri og saft. Bláberjasúpa. 1(4 1. vatn, 100 g. þurrkuð bláber, 125 g. sykur, 25 g. kartöflumjöl, 1 dl. kalt vatn. Leggið berin í bleyti yfir nótt. Setjið þau yfir til suðu í kalt vatn ásamt bleyti- vatninu. Sjóðið þar til þau eru meyr, og blandið sykri og kartöflumjölsjafningi saman við. Beinlausir fuglar. 11/2 kg. nauta-, lamba-, hesta- eða hvalkjöt, salt, pipar, 100 g. flesk, & ,\h § 5 ára ábyrgð SVefnsóíar SP & •X* í® f * & 5? # 1 £ OS JSP ÍsBíl3KlM 1 HaP^Ar PET|jr5S0maF LA UGA VEG 58 (Bak við Drangey) Sími 13896 VIKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.