Vikan


Vikan - 09.07.1959, Blaðsíða 19

Vikan - 09.07.1959, Blaðsíða 19
•»s )V> CHIC ef!^ V0UMÍÍ^ Dúkkudátinn Tumi getur blístrað BARNAGAMAN Dag nokkurn gekk Tumi dúkkudáti út á mitt gólfið í barnaherberginu og hrópaði: Hlustið öll á mig! Eg get blístrað! Ef kanarufuglinn hefði sagt, að hann ætlaði að blístra, hefði enginn tekið eftir því. Ef Trítill mús hefði sagt, að hann ætlaði að blístra, hefði engum fimdizt það mntalsvert. Og ef strákur eða stelpa eða jafnvel kaffikanna hefði sagt, að hún ætlaði að blístra, hefði það heldur ekki verið svo undar- legt. En af því að það var tindáti, sem sagðist ætla að blístra, hættu allir við það, sem þeir höfðu fyrir stafni og lögðu eyr- un við. Enginn hafði heyrt tin- dáta blístra fyrr. Og enginn hafði heyrt tindáta blístra fyrr. Og enginn hafði heldur búizt við að heyra það nokkum tíma. Kristján kom út úr húsi sínu bak við bókahilluna með Júlíu konu sinni. Uppstoppaði bangsinn Bjössi kom skríðandi undan sófanum. Ása tuskudúkka, sem lá undir borðinu, kom undan því. Uss, Tumi dúkkudáti ætlar að blístra, sagði Ása. Glúmur tröllkarl kom út úr felustað sínum bak við glugga- tjöldin og Hermann trébrúða kom á eftir Glúmi. Hm, hann ætlar að blístra, sagði Glúmur. En ég skil ekki, hvemig hann getur það, sagði Hermann. Gauksfrúin gægðist út úr hesthúsinu og imgfrú Mjöll postulínsbrúða kom tifandi út úr fallega brúðuhúsinu sínu. Og Karl og María komu út úr eldhúsinu, þar sem þau höfðu verið að borða morgunverð. Þau litu hvert á annað og sögðu: Heldur þú, að hann geti það? Tumi dúkkudáti stóð graf- kyrr á miðju gólfi. Loksins, þegar allir vom þögulir og kyrrir og voru ekki með nein ólæti, fór Tumi að hlæja og sagði: Jú, sannarlega get ég blístr- að. Ég get blístrað. Ég get blístrað mjög fallega. Já, satt að segja get ég blístrað betur en nokkurt ykkar. Þegar Tumi dúkkudáti sagði það, horfði hann þýðingarmiklu augnaráði á kanarífuglinn og Gauksfrúna og síðan á kaffi- könnuna. Heyrðu bara, hvað hann gort- ar, sagði Bjössi bangsi hvísl- andi við Hermann trébrúðu. Ég þori að veðja um, að hann getur ekki blístrað einn einasta tón. Ég hef aldrei heyrt talað um tindáta, sem gat blístrað. Ekki heldur ég, hvíslaði Her- mann aftur. En þeir vildu ekki, að Tumi heyrði, hvað þeir sögðu. Jæja, sagði Gauksfrúin, kann- ske hann reyni að blístra. En hvernig mun það hljóma ? Segðu mér það. Hvemig hljóm- ar það? Byrjaðu þá! Byrjaðu, Tumi dúkkudáti! Leyfðu okkur að heyra, hve fallega þú blístrar, hrópuðu Kristján, Júlía og Ása tuskudúkka. Já, Tumi dúkkudáti, sagði kanaríufuglinn ofan úr búrinu sínu, ef þú getur blístrað, láttu okkur þá heyra! Við bíðum öll! Þegar Tumi heyrði þetta, stakk hann hendinni í vasann og dró upp langt strá. Hann bar það að vörunum og byrjaði að blása . . . og hvernig haldið þ:ð, að það hafi hljómað? Það var fegursti, tærasti og hrein- asti tónn, sem nokkm sinni hafði heyrst! Það var ekki eins og þegar kanaríufuglinn söng og ekki eins og Trítill mús. Það var ekki eins og þegar strákur eða stelpa blístra. Ekki heldur eins og kaffikanna. Það var engu blístri líkt, sem heyrzt hafði. En ef þú hlustar reglulega vel, getur þú kannske heyrt mjóan, skæran og hreinan tón blístraðan. Ef þú heyrir hann, getur þú verði viss um, að það er Tumi dúkkudáti, sem er að blása í stráið sitt. VIKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.