Vikan


Vikan - 09.07.1959, Side 26

Vikan - 09.07.1959, Side 26
Hver hlýtur flugferð til Kaupmannahafnar og heim aftur? VIKAN efndi til smásagnakeppni fyrir hálfum mán- uði og var þá ýtarlega greint frá henni. Frestur til að skila sögum er til 15. sept. Sögurnar verða að vera frumsamdar og mega ekki hafa birzt áður. Æskilegt er að handrit séu vélrituð, en ekki er það skilyrði. Dómarar í keppinni verða Andrés Björnsson mag- ister, Sigurður A. Magnússon blaðamaður og Gísli Sigurðsson ritstjóri. 1. verðlaun: Flugfar til K.hafnar og heim aftur. 2. verðlaun: 2000 krónur. 3. verðlaun: 1000 krónur. Freistið gæfunnar og sendið VIKUNNI sögur Ferð til Hafnar og frœgðin að auki Olivetti Multi- summa 22 sam- lagningar og marg földunarvélin er nýjasta vélin frá Olivetti. Hún er afar hraðgeng (220 snúningar) og margfaldar á afar einfaldan hátt. Vér erum sannfæðrið um ,að þér gerið beztu kaupin, er þér kaupið Multisumma 22 því sú vél hefur svo marga kosti fram yfir aðrar vélar hér á markaðnum. En sjón er sögu ríkari. Komið og sjáði sýnishorn hjá okkur af Multisumma 22 og öðrum skrifstofuvélum frá Olivetti Einkaumboðsmenn G Helgason & Melsted h.f. Hafnarstœti 19 Sími ll§kh Polish Foreign Trade Comp- any for Electrical Equipment Ltd. Warszawa, Czackiego 15/17, Poland. Símnefni: ELEKTRIM WARSZAWiA. Jafnstraums rafsuðuvélar og rafsuðuspenna. Gjörið svo vel að leita nánari upplýsinga hjá: Pólska Sendiráðinu, Hofsvallagötu 55, Reykjavík, fsland. V í S U R eftir Hjálmai- Þorsteinsson á Hofj, f. 5. sept. 1889. Hjálmar kveður svo um æviraun sína: Þó ég ekki hafi hitt haldið rétta á taumnum, ef þú velur vaðið mitt varaðu þig á straumnum. Eitt sinn skrifaði Hjálmar þessa vísu á skattaskýrsluna sina: Minn er allur auður hér, engu svo ég halli: ofurlítið kvæðakver og krakkar átta á palli. Skáldið litur yfir farinn veg: Eftir víða farin fjöll fækka þýðu vorin; seinast hríðar yfir öll ævitíðarsporin. Hjálmari er stakan ofarlega í huga: Út við sundin ægis blá enn skal bundin staka, fram að blundi ef ég á eina stund að vaka. Um andstæðu æsku og elli er þessi vísa kveðin: Ellin stýrir innri mið, ytri flýr hún strauma. Æskan býr og unir við ævintýradrauma. 26 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.