Vikan - 17.09.1959, Side 12
EITT ANDIAT - TVÆRIKKJUR
Þessar hilliir eru byggðar npp á þann hátt, að málmlistar eru skrúf-
aðir á vegginn meff meters millibili. Þeir eru gataöir og hillufesting-
urnar eru látnar i götih. Neffst er komiff fgrir skrifboröi á sama hátt.
Þctt undarlegt kunni að virðast, var hinn kunni bandaríski
rithöfundur John McPartland í rauninni tveir gerólíkir menn.
Tilvera hans var tvískipt, og hann átti sér tvær fjölskyldur
— í einu!
Það er alkunna, að lífið skrifar
tiðum sína sorgarleiki, — við sjáum
það daglega í öllum blöðum. En
stundum tekur það^ einnig upp á því
að skrifa gamanleiki og Þá svo bráð-
snjalla, að sérhver rithöfundur hefur
ærna ástæðu til þess að verða grænn
af öfund.
Aðalpersónan í þessum gamanleik
var reyndar ekki rithöfundur gaman-
leikja. En hann var alkunnur sem
höfundur fjölda leynilögreglusagna.
Bækurnar, sem John McPartland
skrifaði, höfðu selzt í milljón eintök-
um. Einkum seldist bókin No Down
Payment vel i Bandaríkjunum.
Eitt andlát — tvær ekkjur.
Þessi gamanleikur hefst ekki eins
og venjulegir gamanleikir: Hetjan
sjálf deyr nefnilega næstum áður en
tjaldið er dregið frá. Hinn 47 ára
gamli McPartland var nýkominn heim
úr ferðalagi, Þegar hann lézt skyndi-
lega úr hjartaslagi. Samkvæmt dánar-
tilkynningunni lét hann eftir sig
ekkju og fimm börn. En þetta var
ekki nema hálfur sannleikurinn, eins
og við komumst brátt að.
Kona hans og börn tóku sér þetta
auðvitað ákaflega nærri, eins og lög
gera ráð fyrir. En smám saman tóku
blöðin að kynna sér málið nánar, og
það kom upp úr kafinu, að McPart-
land hafði ekki verið við eina fjöl-
ina felidur.
Daginn eftir andlát McPartlands
hurfu ekkja hans, Eleanor, og börn
hennar skyndilega. Lögreglan tók nú
að leita þeirra, og nú rak hver at-
burðurinn annan.
Lögreglan í heimabæ McPartlands,
Monterey í Kaliforníu, tók nú að
rannsaka málið, en hvergi sást targ-
ur né tetur af hinni 45 ára gömiu
Eleanor og börnum hennar fimm.
Blöðin tóku nú að skrifa um þetta
dularfulla hvarf, og árangurinn varð
bessi: í litlum bæ nálægt tvö hundru'5
kilómetrum sunnan við Monterey kom
kona nokkur að máli við lögrsgiuna
og sagðist vera Ida McPartland.
— Ég er ekkja rithöfundarins, Johns
McPartlands, og þetta er sonur hans,
sagði hún og benti á tíu ára gamlan
snáða, sem komið hafði með henni.
— Eruð þér frú Eleanor McPa."t-
land? spurði lögreglumaðurinn.
— Frú Eleanor McPartland er ekk:
til, sagði konan. — Ég heiti Ida Mc-
Partland, og ég giftist hinum látna
í Texas árið 1943
— Þér eruð þá fyrri kona hans?
- Nei, eina kona hans.
— En hvað þá um frú Eleanor Mc-
Partland?
— Ég segi, að maðurinn minn hafi
aldrei verið giftur annarri konu!
Lögreglan taldi, að kona þessi væri
hreinn svikari, og hún varð að leita
á náðir lögfræðinga til þess að sýna
mönnum fram á, að hún var sú, sem
hún þóttist vera: ekkja hins vinsæla
rithöfundar Johns McPartlands. Það
kom upp úr kafinu, að hann hafði
átt tvær fjölskyldur og lifað með þess-
um tveimur konum sem könnuðust
miög vel hvor við aðra. En hann var
aðeins giftur annarri þeirra, Idu Mc-
Partland.
Kostur góffs mannorffs.
Þegar John McPartland giftist Idu
árið 1943 í smábænum Tyler í Texas,
var hann í hernum og hafði ekki skrif-
að eina iínu. Stuttu eftir striðslok
hætti hann í hernum Áður hafði hann
verið bókhaldari. en nú hafði hann
einsett sér að verða rithöfundur.
1 fimm ár lifði hann fremur ömur-
legu lífi í bænum Mill Valley í
táaliforniu. Þá skrifaði hann bókina
No Down Payment, sem seldist gífur-
iega næstu mánuði. Hann var skyndi-
lega orðínn vel efnaður maður. Sama
ár — 1948 — ól hin fagra kona hans,
Ida. honum son.
Nú börðust. bókaforlög. dagblöð.
tímarit og aðrar stofnanir um að vinna
hann á sitt band. Hann fór nú í fyrir-
Á siöústu áram liafu
þungir bókaskápar
og fastar végghillur
þokaff fgrir ýmsum
qerffum af lausum
vegghillum. Þaff er
miklu léttara gfir
þeim og auðvelt aff
bregta þeim, þar sem
sjálfar hillurnar eru
lausar og fœranlegar.
Ilér er lítiff skrifborff
ásaml hillum fgrir
btvkur og timarit.
lestra- og upplestraferð. Þá kom hann
einnig við í Monterey, gömlum bæ,
þar sem Spánverjar höfðu setzt að,
þegar þeir fluttust til Kaliforníu, en
þar er ákaflega fallegt og sólríkt.
Annars er bærinn þekktur sem fæð-
ingarbær hins fræga rithöfundar
Johns Steinbecks.
Kona nokkur á fertugsaldri var
potturinn og pannan í öllu viðskipta-
lífi staðarins. Eleanor hét hún og var
formaður i kvennasamtökum staðar-
ins, leshring Monterey, Fimmtudags-
klúbbnum og, að því er virðist, fjölda
annarra félaga. Auk þess var hún
flokksforingi yfir skátastúlkunum i
borginni.
Eftir fyrirlestur og upplestur Johns
McPartlands í Monterey hélt formað-
urinn, Eleanor, honum samkvæmi
heima í litla, notalega húsinu sínu.
Þegar fyrirlestraferðin var á enda,
settist McPartland að í Monterey, i
litla, notalega húsinu, þar sem hann
hafði fengið svo gómsæta máltíð fyr-
ir skemmstu. Enginn efaðist nú um,
að Eleanor væri nú orðin frú Mc-
Partland. Ekki einu sinni þegar fyrsta
barn þeirra fæddist, — fyrr en búizt
var við, — varð sá atburður til þess
að gefa kjaftakerlingum smáborgar-
innar tilefni til að iðka listir sínar.
Það var skoðun manna, að þau hefðu
ef til vill verið gift lengi, — i Ameríku
er það ósjaldan, að frægt fólk giftist
á laun.
Kjörin „Móðir ársins“.
Ef einhver hefði vogað sér að
gefa í skyn, að þetta væri ekki allt
með felldu, hefði McPartland orðið
fátt um svör. Lif hans var næsta
furðulegt. Frú Eleanor hafði þó
greinilega lagt honum lífsreglurn-
ar: Hann varð fyrirmyndar eigin-
maður. Það kom engum á óvart, að
Eleanor var fyrirmyndar-eiginkona.
Eftir sex ár voru komin fimm
börn i litla, notalega húsið. Og með
jafnreglulegu millibili birtust nýjar
bækur eftir McPartland, — metsölu-
bækur, sem seldust eins og volg brauð.
John McPartland lét eftir sig nálægt
fimm milljónum króna.
John M'cPartland varð mikill at-
kvæðamaður í borginni, heiðursfor-
maður i fjölda félaga, þar á meðal í
foreldrasamtökum Monterey, og lét
þar mikið að sér kveða. Þegar
stjórnmálamenn komu til bæjarins i
kosningaleiðangri, var það sjálfsagt að
búa hjá MePartlands-hjónunum, hvort
12
YIK A N