Vikan


Vikan - 17.09.1959, Page 21

Vikan - 17.09.1959, Page 21
Nokkrum dögum áður en við færum inn í bankann, átti Sjöfn að flytja i húsið, sem stóð úti í hrauninu. Um kl. 10 myndi Sjöfn vera farin að hátta, en um kl. 11 myndi hún fara út um gluggann, búin sem karlmaður. Hún hafði tamið sér svo árum skipti, tvö karlmannsgervi. Annað var maður með ofurlítinn herðakistil öðru megin, rauðhærður og freknóttur og með mjög dökkar tennur. H^itt var maður með yfirskegg, mórauður í andiiti, og með tvær gull- tennur. (Það var tönnum sinum, sem hún breytti svona, það voru engar lausar tennur i henni). Sá fyrri var jafnan búinn sem verkamaður, hann stamaði ofurlítið; hinn var vel búinn og talaði með ofurlitlum vestur- heimskeim. Hún var venjulega hálf- tima að taka á sig hvort þessara gerfa, en gat gert það á miklu skemmri tíma, þegar hún vandaði sig ekki. Eftir ráðagerð okkar, átti hún að fara til Reykjavíkur með áætlunarbíl, og vera komin þangað kl. hálf tólf, en kl. hálf sex átti hún að fara til Hafnarfiarðar á vörubifreið, sem hún skildi eftir all-langt þar frá, sem hún bjó. En Hlíðarhúsa-Jón (sem búinn var að læra á bifreið) átti siðan að fara með fyrsta áætlunarbil til Hafn- arfjarðar og sækja bifreiðina. Rétt fyrir páskana ætlaði Sjöfn að leggi- ast í rúmið og láta hjúkrunarkonu úr Reyk.iavík, sem hún vissi að hún mátti treysta, vera í fremra herberginu, svo hún gæti vottað, ef með þyrfti, að Sjöfn hefði ekki farið út gegnum her- bergið frá því á laugardagsmorgun, Þar til á páskadagskvöld. En Sjöfn átti að fara út um gluggan eins og veniulega. og halda til Reykjavíkur en um nóttina ætluðum við í bank- ann. Á páskadagsmorgun yrði svo Siöfn komin aftur fyrir lýsingu inn um gluggann. Stúlkan átti hins vegar ekki siálf að vita hvað Sjöfn hefðist að, þó Siöfn vissi, að hún mætti treysta henni. En það var sama stúlkan og hjúkraði henni, þegar hún lá í fótbrot- inu svokallaða, sem var taugaveiki, en þvi hafði hún leynt. Hún hafði ekki verið Þungt haldin og því getað gert þær ráðstafanir sem þurfti að gera, svo sem að tilkynna mér frá Jóni á Klapparstígnum, að hann og með- starfsmenn minir (,,Guðmundur“ og ,,Mundi“) væru farnir úr bænum. Hún hafði kallað til sín Þorbjörn Jónsson lækni, sem Ingólfur i Hliðarhúsum hafði kostað til náms; hafði hún með nokkrum fortölum fengið hann til þess að segja að hún hefði fótbrotnað, en af þvi að enginn mátti heimsækja hana, hafði gosið upp sá kvittur, að hún mundi hafa eitthvað á sinninu. Þar eð undirbúningstími veikinnar er hálfur mánuður til þrjár vikur, gerði hún ráð fyrir þvi, að við værum kom- in með göngin langt fram hjá, þar sem taugaveikissmitunin hafði verið (sem líklegast er að hafi verið í mold- inni ofan á sandinum, þar sem við hóf- um gröftinn), og lét hún Jón sótt- hreinsa skúrinn, þrepin og göngin En hún hafði búizt við, eins og líka reynd- ist, að ég myndi vera búinn að taka smitun, ef ég á annað borð tæki hana. Við höfðum aðra vörubifreið í skúr uppi í Þingholtum, og var hún máluð rauð. Á henni ætluðum við að aka burt með fenginn. Við snerum okkur nú aftur að göng- unum í Austurstræti 5. og komum fyr- ir í þeim verkfærum. sem við ætluð- um að nota við að bora með sprengi- götin i Landsbankamúrinn. Líka kom- um við fyrir rafmagnssögum, til þess að saga sundur með eikarstafina á veggjunum á nokkru svæði i göngun- um, þvi ætlast var til að þau féllu saman, þegar við værum búin að fara í bankann. Páskarnir nálguðust nú Við vorum að útbúa hvellkúlurnar og ætluðum að hafa þær uppi á þökum Ingólfshvols, Edinborgar, verzlunar Egils Jacpbsens, og ef unnt væri Landsbankans. Auk þess var áformað að láta sumar kúl- urnar springa á milli þessara húsa, og láta ganga á þessum sprengingum meðan við værum að sprengja Lands- bankamúrinn, svo því yrði ekki veitt eftirtekt. Miðvikudaginn fyrir páska var allt tilbúið. Við höfðum gert ráð fyrir, að Sjöfn yrði að koma á nóttunni til Reykjavíkur í karlmannsbúningi, en þess var ekki þörf, því allt var til. Þessir síðustu dagar, sem við höfð- um ekkert að gera, voru ekki lengi að liða, þvi við Sjöfn vorum saman allan daginn, ýmist á skrifstofunum, eða hjá Sigurþór og Isleifi. Við fór- urn vanalega yfir allar ráðagerðir okk- ar, og reyndum að gera okkur í hug- arlund hvað fyrir gæti komið, og hvernig við þá gætum látið krók á móti bragði. Við höfðum tvöfaldar lagnir af sprengjum, þanhig, að ef ekki tækist í fyrstu atrennu hjá okk- ur, að við gætum gert hávaða aftur, án nýs útbúnaðar. Ennfremur höfðum við þrjár hvellkúlur. sem áttu að gera svo háan hvell, að heyrðist um mik- inn hluta borgarinnar, en þær voru ekki með öllu hættulausar, og átti að- eins að nota, ef við þyrftum að gera sprengingar eftir að við værum kom- in inn í bankakjallarann. Við höfðum nokkuð nákvæman uppdrátt af þess- um húsum, og á uppdráttinn dregin hvellkúlukerfin. 32. ÁRÁSIN Laugardagurinn fyrir páska fannst mér allerfiður, þó ég hefði ekkert að gera, og Sjöfn sá ég ekki, því hún var „rúmföst" i Hafnarfirði, eins og til var ætlazt. Virtist mér dagurinn aldrei ætla að líða. Klukkan hálf ellefu um kvöldið var harið á dvrnar hjá mér í íbúðinni við litla sundið, og var þar kominn maður með yfirskegg. Hann var með harðan hatt, gráan yfirfrakka, á röndóttum buxum, og með staf i hendi. Þetta var annað karlmannsgerfi Sjafnar. „Ég hef verið að sálast af eftir- væntingu í dag“, sagði hún. Við fórum yfir sundið og inn á skúra-lóðina. Inni í skúrnum hittum við Hlíðarhúsa-Jón. Við Sjöfn fórum eftir göngunum, alveg að Landsbank- anum, og létum borvélarnar fara að bora göt fyrir sprengiefnið. En Jón íór að gera annað, sem gera þurfti, og miðaði það I þá átt að gera göngin torsóttari, ef lögreglan færi að grafa þau upp fyrsta sólarhringinn eftir sprenginguna, sem reyndar var harla ósennilegt. Þegar við byrjuðum að bora, datt mér í hug, að öruggara væri að fara upp á götuna, leggja þar hlustirnar að Landsbankanum til þess að vita hvort nokkuð heyrðist til borvélarinn- ar upp í bankann. Ég fór því út. Loftið var þrútið og rigningarlegt, og var slökkt í flestum búðum, og þvi drungalegt á götunni, en einstaka maður sást þó á gangi. Ég iagði eyrað upp að veggnum á Lands- bankanum, þar yfir sem ég vissi að göngin lágu, og fann ég þá ofurlítinn titring, en hann var svo lítill, að það lá við að ég héldi að það væri ímynd- un. Ég vissi að enginn maður var á neðri hæð bankans, og heldur ekki uppi á lofti í þeirri hlið, sem sneri út að Austurstræti, svo mér datt i hug að íara inn um vestri dyr bankans, þar sém stigínn liggur upp á loftið, og hlusta þar við þilið. Þær dyr eru oft- ast ólæstar. en verið gat að þær væru lokaðar nú, vegna stórhátiðarinnar. Ég tók i snerilinn; dyrnar voru ekki læstar, og ég fór inn. Ég lagði eyrað upp að þilinu og gat hiustað miklu betur þarna en úti. Hávaði heyrðist enginn, en aðeins ofurlítill titringur. Ég opnaði hurðina og fór út. En þá varð mér meira en lítið hverft við, þvi tveir lögregluþjónar voru rétt Framh. á bls. 24. <7 %Í0|ör breyting? Vél: 41 hestafl — Toppventlar. Gírkassi: Fjögurra gíra. Leitið nánari upplýsinga. Ford- ninltoðið lilfi. KICISTJAXSSOA IIF. Suðurlandsbraut 2, Reykjavík Sími 3-53-00 VIKAN 21

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.