Vikan - 03.12.1959, Page 22
MALLI MOLDVARPA
Sólin var að ganga nndir, þegar
Malli moldvarpa opnaði dyrnar á
húsinn sínu. Maili moldvarpa býr
niðri í jörðinni, eins og allar mold-
vörpur gera, og þess vegna eru dyrn-
ar á þakinu á húsinu hans. Malla er
ekkert vel við sólskinið, hann vill
heldur hafa myrkur. Sólin fer nefni-
lega í augun á honum, og hann er
alltaf með sóigleraugu.
„Hum-hum,“ sagði Malli, settist
á stein og kveikti í pfpunni sinni.
„Ég vildi, að ég hefði einhvern til
að tala við,“ sagði hann við sjálfan
sig. — Rétt í þessu kom Kalli kisa
gangandi. „Sæll, Malli moidvarpa,“
sagði Kalli og settist við hliðina á
Maila. „Það var svei mér gaman að
tetlav \ beimsókn
BARNAGAMAN
sjá þig,“ sagði Malli. „Nú skuium
við tala saman svolitla stnnd. Hef-
urðu haft mikið að gera í dag?“
spurði Malli moldvarpa. „Mjá,“ —
sagði Kalli kisa, „ég hef mikið að
gera. Ég var að elta rottur, spila
kúluspil, leika mér á hjóli og auð-
vitað að fljúgast á við köttinn ná-
grannans. Nú ætla ég heim til þess
að borða miðdagsmat." „Ojá,‘ sagði
Malli moldvarpa, „þú hefur haft
mikið að gera eða hitt þó heldur.
Ekki hef ég tíma til að leika mér
á hjóli, og svo kann ég það ekki
heldur.“ „Hvað hefur þú gert í dag,
Malli moldvarpa?" spurði Kalli.
„Það er heldur lítið,“ svaraði Malli,
„ég hafði það rólegt í dag.“ „Eitt-
hvað hefur þú gert,“ sagði Kalli
kisa, „því að þú ert í vinnugallan-
um þínum, og það er mold á hon-
um.“ „Ég var að grafa svlolítið,‘
sagði Molli moldvarpa. „Hvar varstu
að grafa?“ spurði Kalli kisa. „Nú
skal ég segja þér frá því,“ sagði
Malli moldvarpa. „Ég fór snemma
á fætur f morgun og ætlaði í heim-
sókn til frænku minnar. Hún heitir
Salla moldvarpa og býr í garðinum
á bak við múrinn." „Það er nú að-
‘ eins nokkra metra frá húsinu þínu,“
• sagði Kalli kisa.
1 „Já, já,“ sagði Malli moldvarpa.
•i»„Þess vegna fór ég í vinnugallann
®minn og tók með mér rekuna og
hakann." „En hvers vegna tókstu
með þér rekuna og hakann?“ spurði
Kalli kisa. „Ég ætlaði að grafa mér
Eins og þið sjáið, er fiskur 1 neðra liorninu til vinstri á
myndinni, en efst til hægri eru fjórar stengur, auðvitað með
önglum á. Einn af önglunum er kominn upp í fiskinn, og nú
er að finna, hvort það er fiskur nr. 1, 2, 3 eða 4. Það á að rekja
þræðina frá önglunum í áttina að fiskunum.
göng heim til Söllu moldvörpu,"
sagði Malli. „Ja, Malli moldvarpa,“
sagði Kalli kisa, „það er aðeins
nokkurra mínútna gangur, og svo
hefðirðu getað klifrað yfir múrinn.“
„Nei, ég kemst ekki yfir múrinn,“
sagði Malli moldvarpa, „ég verð að
grafa mér göng, og svo þori ég ekki
heldur að láta sjá mig ofan jarðar
á daginn. Ég þoli ekki sólarljósið,
mér verður illt í augunum, og svo
er ég hræddur við hundinn hérna í
húsinu.“ „Aumingja Malli mold-
varpa,“ sagði Kalli kisa, „mikið
þarftu að hafa fyrir þvf að komast
í heimsókn til hennar frænku þinn-
ar.“ „O, það gerir ekkert til,‘ sagði
Malli moldvarpa, „ég er vanur að
grafa, og mér finnst það gaman. Það
er ekki til ein einasta moldvarpa f
öllum heiminum, sem ekki þarf að
grafa.“ Nú fór Kalli kisa heim til
8Ín til þess að borða miðdagsmat-
inn, en Malli moldvarpa sat eftir
og reykti pípuna sína. Ef hann hefur
ekki farið uð grafa göng heim til
hennar Söllu moldvörpu, þá situr
hann þarna enn. ★
54.
MMAUNAKROKtíTJI
VIKUNNAR
Vikan veitir eins og kunnugt er verð-
laun fyrir rétta ráðningu á krossgát-
unni. Alltaf berast margar lausnir og
er þá dregið úr réttum lausnum. Sá
sem vinninglnn hefur hlotið, fær veíð-
launin, sem eru:
100 KRÓNUK
Veittur er þriggja vikna frestur til
að sklla lausnum. Skulu lausnir sendar
i pósthólf 149, merkt „Krossgáta".
Margar lausnir bárust á 52. kross-
gátu Vikunnar og var dregið úr rétt-
um ráðningum.
.Tóhanna María Sigurgeirsdóttir,
Turner 11,
Keflavíkurflugvelli.
hlaut verðlaunin, 100 krónur og má
vitja þeirra á ritstjórnarskrifstofu
Vikunnar, Skipholti 33.
Lausn á 52. krossgátu er hér að neðan:
° HAUSTUPPSKERAN0
GULRÓFUR°ÁNINGE°
RL°MN°ME T R A R E N O G
Ó D A UNN0>It0SLLI°NÖ
ÐA°L°ESTERLYNG°T
U ° SLATTI ° LEG °OAU
RÓT°UTAR°ÝTIN°LL
°JARÐAR°ÁTT°ÁSTÝ
SÓLA°RIM°TAPIаS
ÁN°UM°REKKA°RÓNI
RÁSFÁK°TAUTA°GEN
°SKILNINGSTRÉ°DG
°TENGÁRÓRA°KLSEF
°ADAM°OG°EVA°1°0
22
VIKAN