Vikan - 31.12.1959, Qupperneq 5
/
I hléinu, sem varð á milli ísland farsælda frón ocf Ofan gefur snjó
á snjó, lauk málarinn við að syngja Bikarinn og hann var byrjaður
á Lindinni, þegar hljómsveitarstjórinn kynnti Krummann á skjánum
fyi'ii’ nokkru komnir upp á lyftinguna eitthvað
að dóta sig, sagði trésmiðurinn.
— Nú, sagði bóndinn. Honum sýndist, að fag-
mennirnir mættu ekki drekka meira. Þeir
bættu allir miklu á sig, meðan hann hafði
fataskipti.
— Eg ætla ekki að hlusta á hana, bara syngja
sjálfur, sagði málarinn, þegar hinir gengu út
úr fundarherberginu.
— Það er gott. Hann er fullur og gæti gert
skandala, sagði járnsmiðurinn, þegar þeir voru
komnir fram í anddyrið. Þeir settust aftarlega
i fullskipuðum salnum, svo að þeir kæmust út
án þess að vekja á sér athygli.
Bóndinn varð ekkert undrandi að sjá svo
margt fólk. Hann vissi, að það hafði ekki kom-
ið vegna tónlistarinnar, miklu fremur til að
sjá hljómsveitarmennina og liljóðfærin og
vegna nýlundunnar í tilburðum þeirra. Og
það bafði koinið til að sjá húsið, nú fagurlega
malaðan raunveruleika, i stað þess að vera
áhyggjur, erfiði og útgjöld.
Uin leið og hljómsveitarstjórinn steig upp
á lyftinguna, en áður en fyrstu tónarnir voru
slegnir, barst söngur málarans af fullum hálsi
um salinn.
Bóndinn greindi brosviprur á mönnunum
undir hljóðfærunum og niðurbældan hlátur
fólksins í sætunum fyrir framan sig skamma
stund, áður en hljómar sinfóniunar helltust
fram af lyftingunni og gnýr þeirra yfirgnæfði
allt.
Bóndinn barði taktinn ofan í gólfið með tán-
um, og hann langaði ekki í meira vín, meðan
á futningi hennar stóð.
í hléinu, sem varð á milli ísland farsælda-
trón og Ofan gefur snjó á snjó, lauk málarinn
við að syngja Bikarinn, og hann var byrjaður
á Lindinni, þegar hljómsveitarstjórinn kynnti
Krumman á skjánum.
•— Strax? sagði bóndinn.
— Já. Ég vil heldur hlusta á málarann.
Þeir gengu út í lok Ungversku dansanna.
ínni í fundarherberginu tók járnsmiðurinn
tappann úr síðustu flöskunni. Málarinn liafði
sopið drjúgan, meðan þeir voru á hljómleik-
unum.
Hljómsveitin" þarf að fá sér annan stjórn-
anda, þessi er hættur að geta slegið fyrir
hraðri tónlist, sagði járnsmiðurinn.
— Það er ekki einungis það, sagði málarinn.
— Meinarðu þetta með kórana? sagði bónd-
inn.
— Hann er of mikill þjóðernissinni í tón-
list, og Bakk er ekki til fyrir okkar kynslóð,
sagði málarinn.
•— Þú hefðir átt að sjá hann í Ungversku
dönsunum, sagði járnsmiðurinn.
— Var það Ijótt? sagði málarinn.
Éff hef ekki séð hæpnari brimlendingu,
sagði járnsmiðurinn.
— Hvað áttirðu við með kórana? sagði málar-
inn.
— Vitið þið það ekki? sagði bóndinn.
— Nei, sagði málarinn.
— Iiann hefur dauða þriggja kóra á sam-
vizkunni, sagði bóndinn.
— Ég veit um einn, sem honum hefur ekki
lánazt að drepa, sagði járnsmiðurinn.
— Hvað er það? sagði málarinn.
— Hann er ekki af þessum heimi, sagði
járnsmiðurinn. Flaskan fór tvær umferðir.
Framh. á bls. 16
Við blöndmn
voru viðtökurnar lakari hjá
honum, og lýsti hann sig reiðu-
búinn til að aðstoða VIKUNA
í vali á „áramótadrykkjum".
Einnig þar fengum við „drykk
hússins“, sem heitir
er gamall og góður
ÍJ siður, að lyfta glasi á
r gamlárskvöld. Þess eru
meira að segja dæmi, að menn,
sem engin afskipti hafa af
Bakkusi á öðrum tímum, geri
undantekningu síðustu nótt
ársins. Okkur hérna á VIK-
UNNI fannst ekki úr vegi, að
leggja fram skerf til margum-
ræddar „drykkjumenningar" á
voru landi, með Því að kenna
mönnum að blanda vín sitt með
kúnstum fyrir þessi áramót.
Það lá beinast við að fara og
hitta að máli barþjónana í
einhverjum veitingahúsunum
hér, og urðu Lidó og Hótel
Borg fyrir valinu.
Það var ekki þröng á þingi
í Lidó, þegar við litum þar inn
og ámálguðum það við Daníel
barþjón, að hann gæfi okkur
upp einhverjar skemmtilegar
kokteiluppskriftir. Hann kvaðst
fús til að láta okkur hafa
nokkrar uppskriftir, þar á með-
al „drykk hússins" eða Lido-
special, eins og hann er kall-
aður. Menn skulu áminntir
um, að blanda í réttum hlut-
föllum, til þess að fá hið rétta
bragð. Hér eru svo uppskrift-
irnar:
ALEXANDER.
Vs Fresh Crearn
% Creme de Cacao
1 % Brandy.
H.B. SPECIAL.
% Bacarti (hvíturj
% Cineano (sceturJ
Kirsuber.
WHITE LADY.
Vi sítróna
% Triple sec.
2 Gin
Eggjahvíta.
Theodór benti okkur á ann-
an ágætan kokteil:
1: PETITE FLEUR,
% Grape juice
2/lf Bacarti
% Contreau
Iiirsuber
Hristist.
STINGER.
% Creme de Ment (grcennJ
% Gin.
GRASSHOPPER.
% rjómi
1 Creme de Cacao
1 Creme de Ment
Hristist.
-ug ioks gat hann okkur upp-
skrift af einum „long drink“,
en svo nefnast þeir drykkir,
sem drukknir eru í stærri
skömmtum úr háum glösum —
einkum ætlaðir þeim, sem gefn-
ir eru fyrir mikið magn.
Theodór hefir „samið“ þennan
drykk sjálfur, og- kallar hann
•• 2: SYLVIA.
4/6 Gin
1/6 Strega
1/6 Cinzano bianco
Kirsuber.
Nr. 3: St. VINCENT.
h/10 Gin
1/10 Bacarti
5/10 Sherry heering
Appelsínubörkur
Kirsuber.
Þetta er semsagt það, sem
drekka skal á nýja árinu, ef
maður vill vera i tízkunni, og
virðist, svo sem menn eigi að
gera sér mikið far um að snæða
kirsuber með drykk sínum, að
minnsta kösti fylgja kirsuber
öllum þrem kokkteilum ársins.
En nú þökkum við Daníel fyr-
ir elskulegheitin og höldum
niður á Hótel Borg.
Þar ræður ríkjum innan við
barborðið Theodór nokkur, eða
„Teddi á Borginni". eins og
hann er nefndur af kunningj-
unum, sem eru rnargir. Ekki
TEDDY'S SPECIAL.
2 Steinháger
Sítrónuskífa,
fyllt upp meS Lemon Sóda.
Við þetta höfum við ekki
öðru að bæta en
Daníel sagði okkur líka frá
því, að nýlega hefði verið hald-
ið barþjónamót í Kaupmanna-
höfn, og þar hefðu verið valdir
kokteilar ársins 1960. Voru þar
saman komnir fulltrúar frá 36
löndum, hver með sínar upp-
skriftir, þar á meðal nokkr-
ir frá Islandi. Þeir þrir kokteil-
ar, sem fyrir valinu urðu, ættu
því ekki að vera af lakari end-
anum, en hér eru þeir í þeirri
röð, sem þeir hlutu kosningu:
Nkál!
LIDO-SPECIAL.
% Gin
% Vodka
lVa Creme de Ment (grænn)
ALASKA.
% Gulur Chartreuse
2 Gin
Hri&tist.
VAVV//AVAW.V.VAW.W,WAV(MR
\\vA\\v.v.%vAv.v.v.y.v«w.v.y«M