Vikan


Vikan - 31.12.1959, Blaðsíða 10

Vikan - 31.12.1959, Blaðsíða 10
 't 'chflU' *<?ei & Iirútsmerkiö (21. marz—20. apr.): Það virðist mikið ætla að ganga á í vik- unni, og ef til vill verður einhver breyt- ing á lifnaðarháttum þínum. Þetta gæti orðið til þess að leysa vandamál, sem valdið hefur þér talsverðum áhyggjum. Heilla- afmælisdagurinn er 20. apríl NautsmerJciö (21. apr.—21. maí): Ein- hver ókunnur maður eða kona tekur skyndilega að skipta sér af persónu- legum málefnum þínum. Þú skalt reyna að bægja honum (henni) frá þér, án þess að sýna þó ósvífni. Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Heimilið á hug þinn allan í þessari viku. Þessi vika verður án nokkurs vafa hjónum til heilla, og líklega munu ósk- ir þeirra einmitt rætast í vikunni. Fyrir ungt fólk verða lagðar ýmsar gildrur, sem erfitt verður að varast Krabbamerkiö (22 júní—23. júlí): Nú er rétti tíminn til þess að ráðast í verk- efni, sem setið hafa á hakanum til þessa. Eitthvert kvöldið munt þú koma að máli við náinn kunningja þinn, og þið munuð ráðast í verkefni, sem verður ykkur ofviða, ef þið leitið að minnsta kosti ekki til þriðja manns. Heillalitur blátt. Ljónsmerkiö (24. júii—23. ág.): Þú verður mjög virkur í öllu félagslífi í þessari viku. Lausmælgi kunningja þíns mun koma þér í talsvert klandur um helgina eða eftir helgi. Á mánudaginn kemur eitthvað mjög óvenjulegt fyrir, en ekki er ijóst, hvort það er illt eða gott. Vertu því við öllu búinn. Heillatala 4. Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Þetta verður vika síbreytiieikans. Þú munt þurfa að leggja hart að þér á vinnu- stað, ef allt á ekki að ganga í handa- skolum. Miðvikudagur og fimmtudagur eru Þýðingarmestu dagar vikunnar. Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Þér vegnar ákaflega vel í þessari viku. Ein- hver býðst til þess að hjálpa þér að ná marki, sem þú hefur lengi þráð að ná. Þetta tekst, ef Þið beitið ykkur af öll- um l;röftum. Hætt er þó við að þú verðir fyrir talsverðri gagnrýni í vikunni, en þú skalt reyna að láta það ekki bitna á fjölskyldu þinni. DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Ef þú metur almenningsálitið mikils, er þessi vika einmitt hentug til Þess að „ganga í augun á“ náunganum. Líklega rnunt þú koma frám opinberlega, og við það tækifæri standa þig með mestu prýði. Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Þú verður allt of fljótfær í vikunni — þér verður jafnvel á axarskaft, sem á eftir að draga dilk á eftir sér. Þú hefur verið nolckuð þunglyndur undanfarið, og væri þér hollast að ræða rnálið, sem angrar þig við einhvern náinn kunningja. Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þú skalt fyrir alla muni forðast að vera uppi á móti fjöiskyldu þinni í vikunni. Einhver í fjölskyldunni mun koma með hugmynd, sem þér fellur alls ekki í geð, en þú mátt alls ekki láta það bitna á hinum í fjölskyldunni. Um helgina berst Þér nokkuð ein- kennileg gjöf. Heillatala 5. ______ Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Einhver órói er yfir vikunni, jafnvel taugaveiklun. Þótt þú sért einungis ó- beinlínis valdur að þessum óróa náunga þinna, getur þú hæglega bætt úr þessu. Vikan er einkar hentug til þess að halda sam- kvæmi, og yfirleitt skaltu reyna að vera sem mest með íélögum þínum í vikunni. FiskamerkiÖ (20 feb.—20. marz): Þú þarft svo sem ekki að kvarta þessa vik- una. Reyndar gerist ekkert stórmerkt, en lífið gengur sinn vanagang, alger- lega hnökralaust. Ef þér gefast marg- ar frístundir, skaltu verja þeim til þess að sinna því, sem þú hefur vanrækt undanfarið — ef til viil bréfaskriftir eða annað. ■>& Snjallir Badmintonleikarar Tv.eir afl)urðasnjallir íþróttamenn heiðruSu ísland með heimsókn nú í haust. Þeir leika badniinton af svo inikilli leikni, að fáir eru i heiminum, sem standa þeim á sporði. Annars er ævinlega erfiðara að meta getu manna í knattleikjum en til dæmis sundi og frjálsum íþrótíum, þar sem málbandið og klukkan tala sínu máli. Þeir Henning Borch og Jörgen Hammergaard eru danskir, og Danir og Indó- nesiiimenn þykja einna sterkastir í badminton. Þeir höfðu báðir tekið þátt i heimsmeistara- keppni, og allir, sem sáu ])á leika, undruðust leikni þeirra. Hammergaard er eldri og tekn- ískari, en skortir bæði hraða og þol á móti hin- um tvdsnögga Boreh, sem er aðeins tvítugur. Borch er á myndinni til liægri. Hann kvaðst lrifa æ"t frá 10 ára aldri. Hann sagði, að það væri talsvert dýrt að iðka badminton í Dan- niirku. Þeir félagar keppa þar sainan og æfa tvisvar i viku átta mánuði ársins. Badminton er vinsæl íþrótt í Danmörku, og töldu þeir, að um 30 þúsund manns iðkuðu það að staðaldri. i’eir liáðu einvígi hér í Reykjavík, og var mjög Betrumbætur Himala/a Framhald af bls. 7. við máttum, eins og vera bar. Það var ekki þannig, að annar hefði forystuna og hinn fylgdi. Við unn- um saman. Við hvíldum okkur stutta hríð á klettasyllunni, enda vorum við báðir óneitanlega dálítið móðir, en jöfnuðum okkur skjótt. Ég horfði upp eftir. Nú er skammt á tindinn, og hjarta mitt berst af eftirvæntingu. Enn leggjum við af stað; þverhnípi á aðra hönd, snjóhengjan á hina sem fyrr, en ekki eins bratt. Þegar við eigum um þrjátíu metra spöl ófarinn upp á tindinn, verður fyrir okkur síðasti auði Jú, þetta er Maria Callas — á báðum myndunum. Hún var í feitara lagi í eina tíð, eins og myndin sýnir, en með járn- vilja hefur henni tekizt að fjarlægja spikið. Það sýnir,, hvað hægt er að gera í þess- um efnum, ef viljinn er nægur. mjótt á mununum. Þá spiluðu þeir tvíliða- leik með islenzkum keppendum, en um keppni við íslendinga var naumast að ræða. Til þess voru yfirburðir þeirra allt of miklir. Annars er badminton að verða mjög vinsæl íþrótt h’é.r, enda bæði * ho 1 og skemmtileg. En það er eins og i \ Danmörku, að tímarnir kosta allmikið: . tólf hundruð krónur einn timi í viku yfir / vetrartímann, en um það geta verið, hvort se;n viii, tveir tða fjórir. Afsakið, hvao ég er seint á ferð! bletturinn á klettakambinum. Þar mætti koma fyrir tveimur smátjöldum, og mér dettur í hug, hvort menn muni nokkurn tima reisa tjöld sín þar uppi á mæni jarðar. Svo lýt ég niður og tek upp nokkra smásteina, sem ég sting i vasann til minja. Einstigið liggur í boga fram hjá noltkrum hjarnbungum, og loks er hin siðasta fram undan — og hin efsta, — ekki oddmyndaður tindur, held- ur aflíðandi hjarnbunga og ekki breiðari en svo,- að tveir menn geta staðið þar hlið við hlið. Við nemum staðar andartak og höldum svo áfram síðustu skrefin. Lengi hef ég hugleitt það, sem nú skal frá skýrt: hvernig það bar að, er við gengum á tind- inn. Eftir á var mikið og heimskulega um það

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.