Vikan


Vikan - 31.12.1959, Blaðsíða 19

Vikan - 31.12.1959, Blaðsíða 19
Himalaya Framhald af bls. 11. vita, að margir af löndum mínum muni verða fyrir vonbrigðum. 1 fávizku sinni telja þeir svo miklu varða, hvor hafi verið skrefinu á undan. En sé mér það skömm að hafa gengið skrefi á eftir Hillary, verð ég að bera hana. En ég skamm- ast min þó ekki fyrir það. Og ég skammast mín ekki heldur fyrir það að segja allan sannleikann. Við stóðum á tindinum. Draumurinn hafði rætzt. Okkur varð það fyrst fyrir að takast í hendur að hætti fjallamanna, þegar á tind er náð. En þar sem Everest er ekki neinn venjulegur tindur, létum við ekki þar við sitja, heldur tókum og hvor utan um annan og klöppuðum hvor öðrum á bakið, unz okkur þraut andrá þrátt fyrir súr- efnið. Svo tókum við að sviDast um. Klukkan var hálftólf, og aldrei hef ég séð jafnheiðbláan himin. Hæg gola stóð úr átt af Tíbet, og mjall- kófið, sem alltaf stendur af hátindum, var varla greinanlegt. Þarna lá Himalajafjallgarðurinn um Nepal og Tibet og hvarf sjónum í fjarska. Og nú gat maður litið niður á nálægustu tindana, hina himinbláu Lhotse, Nuptse og Makalu. Enn fjær gat að líta hvern tindinn öðrum frægari, sem frá okkur að sjá voru heldur lágkúrulegir og kollóttir. Slika furðusjón hafði ég aldrei áður séð og mun aldrei sjá aftur. Það var þó langt frá því, að ég fyndi til ótta. Til þess voru fjöllin mér of kær. Ég hafði þráð þessa miklu stund alla ævi, og mér þótti sem fjallgarðurinn og tindurinn mikli væri ekki dautt klettabákn, helköldum snævi hulið, heldur ylríkt og lífi gætt. Við tókum af okkur súrefnisgrímurnar. Jafnvel hér, þar sem hæst bar á mæni jarðar, gátum við dregið andann á eðlilegan hátt. ef við reyndum ekki á okkur um of. Við muldum klakann, sem setzt hafði á grímurnar, settum þær á okkur, en opnuðum ekki fyrir súrefnið, fyrr en við lögðum ■af stað niður aftur. Hillary dró ljósmyndavélina undan stakk sínum, en þar hafði hann geymt hana, svo að hún frysi ekki. Ég vafði fánana af hakaskaftinu, en þeir voru bundnir á eina linu. Hélt ég svo hátt öxinni, á meðan Hiilary tók mynd af mér, — jú, raunar tók hann þrjár í þeirri von, að ein mundi verða sæmilega skýr, sem mátti teljast gott miðað við aðstæður. Fáni Sameinuðu þjóðanna var efstur á linunni, þá brezki fáninn, fáni Nepals og indverski fáninn neðstur. Sumir, sem ekki hafa annað en þess háttar fyrir stafni, reyndu síðar að koma af stað pólitísku þjarki út af niðurröðun fánanna. Ég segi ekki annað en það, að mér kym sízt í hug póli- tík þá stundina, en nú er ég því feginn, að fáni Sameinuðu þjóðanna skyldi vera efst á stöng, því að þetta var ekki einkasigur okkar, heldur sigur alls mannkyns. Ég reyndi að gera Hillary skiljanlegt, að mig fýsti að taka ljósmynd af honum. Einhverra hluta vegna vildi hann það þó ekki, en tók nú að ljós- mynda niður fyrir sig i allar áttir. Á meðan hann var við það, efndi ég heit mitt. Ég dró sælgætis- pausann og blýantsstubbinn, sem Nima, dóttir mín, hafði beðið mig fyrir, gerði gjótu í hjarnið, lagði þar pausann og blýantinn og hugðist róta snjó yfir. En þegar Hillary sá, hvað ég hafðist að, rétti hann mér litla kisu, gerða úr ullardúk. Hún var svört með hvít augu, og hafði Hunt leiðangursstjóri fengið Hillary hana sem heilla- grip. Og nú lagði ég kisu lika þarna í gjótuna og jós mjöllu. 1 frásögn sinni farast Hillary svo orð, að þarna hafi verið um að ræða silfurkross á festi, sem Hunt hafi fengið sér til verndar og varðveizlu í þeim tilgangi, að krossinn yrði graf- inn i mjöll á hátindinum, ef við kæmumst alla leið. Ekki varð ég þess var. Og ekki lagði ég neitt annað í gjótuna en sælgætisoausann, blýants- stubbinn og svörtu kisu. Á meðan ég huldi fórn- argjafir mínar mjöll, bað ég bæn í hljóði, þakkar- bæn. Sjö sinnum hafði ég sótt heim hið helga fjall drauma minna, og í sjöunda skiptið hafði draumur minn rætzt. „Thuji chey, Chomolungma. Ég þakka ...“ Við höfðum nú staldrað við allt að því stundar- fjórðung á tindinum. Það var kominn timi til að halda til baka. Þar sem ég þurfti á ishakanum að halda á leiðinni niður, leysti ég fánalínuna af skaftinu, lagði hana um þvera hjarnbunguna og gróf báða endana í hjarnið, eins djúpt og unnt var. Fáum dögum siðar flugu nokkrar flugvélar úr indverska hernum yfir tindinn og tóku ljós- myndir, en ekki kváðust flugmennirnir hafa séð þess nein merki, að nokkuð hefði verið eftir skilið á hjarnbungunni. Ef til vill hafa þeir ekki flogið nógu lágt yfir, eða þá að vindurinn hefur feykt fánanum af bungunni. Það er ekki að vita. Við svipuðumst um enn einu sinni á bungunni, áður en við lögðum af stað niður. Höfðu þeir Mallory og Irvine komizt alla leið hingað, áður en þeir fórust? Var hugsanlegt, að þess mætti finna nokkur sannindamerki? Við gátum ekki fundið þau. En títt varð mér hugsað til þeirra í Þessari ferð, til þeirra og allra, sem höfðu ár- angurslaust keppt að þessu sama marki siðast- liðin þrjátíu og þrjú ár, — allra þeirra djörfu og dugmiklu fjallagarpa, sem beðið höfðu ósigur og um leið gert okkur sigurinn mögulegan með reynslu sinni og þekkingu. Eftir að heim kom, hef ég verið spurður hinna fáránlegustu spurninga, og það er síður en svo, að þær hafi allar snúizt um stjórnmál. Margar þeirar hafa aftur á móti verið trúarlegs eðlis eða beinzt að því yfirnáttúrlega. „Var guð Búddha á tindinum?" hefur fólk spurt. Eða: „Sástu drott- in Shiva?“ Margir frómir menn og heittrúaðir hafa spurt mig í þaula og beinlínis krafizt þess, að ég Iéti uppskátt við þá, hvaða sýn hefði borið fyrir mig uppi á tindinum eða hvaða opinberun ég hefði fengið uppi þar. Og vitanlega hef ég valdið fólki vonbrigðum, einnig að þessu leyti. En ég hlýt að segja hið sanna: Ég varð ekki var við neitt yfirnáttúrlegt eða ofurmannlegt þarna á hátindinum. Sjálfum þótti mér sem ég hefði kom- izt þar næst guði, og það var mér nóg. Við opnuðum fyrir súrefnið og héldum af stað. Og enda þótt okkur væri báðum mjög í mun að komast niður sem fyrst, fórum við okkur hægt og gætilega, því að nú vorum við þreyttir og við- brögð okkar þvi ekki eins örugg og áður. Ein- mitt það veldur flestum slysum í fjallgöngum, að menn eru þreyttir, þegar þeir halda til baka, og Því ekki eins: aðgætnir og skyldi. Við gengum í slóð okkar eftir klettahryggn- um, og yfirleitt dugði okkur sú fótfesta, sem við gerðum okkur á leiðinni upp. Þegar kom að hamrinum, varð okkur auðveldara fyrir en á uppleiðinni. Ég kleif spöl niður af syllunni og lét mig svo detta. Síðan héldum við enn í slóð okkar um klettakambinn. Hillary gekk alltaf á undan, ég á eftir og strengdi línuna i hvert skipti, sem skreipt var eða tæpt. Báðir vorum við þreytt- ir, en alls ekki að lotum komnir. Það var þorstinn, sem þjáði okkur mest. Vatnið í ferðapelunum var frosið, og snjó vildum við ekki eta, þar eð slíkt gerir aðeins illt verra, þegar þannig stend- ur á. Við námum staðar og hvíldum okkur um stund, áður en við lögðum niður hjarnskriðuna, sem var enn hættulegri og erfiðari niður að fara. Hillary fór á undan, hægt og gætilega, en ég sparn við fótum á brúninni og gaf eftir línuna, gætti þess vandlega, að aldrei slaknaði á henni, þvi að ef skriður hefði komið á fönnina og Hillary, var hvergi viðnám fyrr en á Kangchung-jökli 30Ö0 m neðar. Loks vorum við þó báðir komnir heilu og höldnu niður á neðri kambinn. Við fundum súr- efnisgeymana, og mátti með sanni segja, að þeir hefðu verið skildir eftir á hentugum stað, því að súrefnið í geymum okkar var þá á þrotum. Við komum í tjöldin um tvöleytið. Þar hvíldum við okkur um hríð, og ég hitaði okkur sætt sitrónu- bland. Það var fyrsti drykkurinn, sem við fengum frá því um nóttina, og urðum við honum fegnir, enda vorum við eins og nýir menn á eftir. Og enn lögðum við af stað niður brattann . .. -ic Gler framtíðarinnar stendur yður þegar til boða GAGNVART ÞRÝSTINGI GAGNVART HITA Fjölbreyttar gerðir og litir. Spyrjið um það i öllum sérverzlunum og verzlunarhúsum. Hert gler, hámarks þol BÆHEIMSKT GLER — EINUNGIS FRA TÉKKÓSLÖVAKlU.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.