Vikan - 17.03.1960, Blaðsíða 34
Illllllllllll
FRÁ BRÖDREIVE SENDE, SPJELKAVIK.
Allskonar plastvörur til útgerðar, svo sem:
Bjarghringir, nótaflár, línubaujur, plastbelgi, þorskanet,
flothringi og allskonar smærri netjaflár.
Kristján Ó. Skagfjörð h.f.
Tryggvagötu 4. — Sími 24120
^oandledf^
Níu boðorð
ástarinnar
Svör af bls. 11.
MINNA EN 100 STIG:
Þú ert ekki gædd(ur) áberandi
hæfileikum til að tjá ást þína. Ef
til vill gerir þú þér ekki fyllilega
grein fyrir því, hvað ástin er enn
þá. En eitt er víst, að þú þarfnast
ástar og þarft að elska. „Hvers vegna
get ég ekki elskað?“ kannt þú að
spyrja. Þú gleymir því, að þar sem
þú þráir að vera elskaður, verður
þú einnig að elska. Þú gerir þér ekki
grein fyrir þvi, að þú verður að
fúrna þér fyrir ástvin þinn og
gleyma því, að þú sért til. Þetta
er ef til vill skiljanlegt, þar sem þú
verð líklega miklum tíma i vinnu
þína. Þess vegna sýnir þú bæði sjálf-
um þér og öðrum ekki næga tillits-
semi. Þú krefst ástar án þess að
sýna sjálf(ur) ást. Og það er stað-
reynd, að þú getur sjálfum þér um
kennt. Þú verður að læra að elska.
Hugsaðu um hin „níu hoðorð ástar-
innar“ á hverjum degi. Reyndu að
hegða þér samkvæmt þeim, og
sannaðu til, — þú munt uppskera
rikulega.
101—200 STIG:
Flestir munu vera þannig skapi
farnir. Þeim mun færri stig sem þú
færð, því minna leggur þú upp úr
gildi ástarinnar. En það þýðir ekki
að gagnrýna örlögin, — það gerir
lifið einungis grátt og innantómt.
Vertu vinum þínum sannur vinur,
og leggðu meiri rækt við sjálfa(n)
þig. Vertu umfram allt bjartsýn(n)!
Og reyndu að fylgja „boðorðum
ástarinnar“, að minnsta kosti þegar
þú velur þér lífsförunaut. Þú verður
að sýna meiri viljafestu!
201—250 STIG:
Þú átt sannarlega lof skilið, —
þvi að þú ert gædd(ur) prýðilegum
hæfileikum til þess að elska! Þú
veizt, hvað ástin er, þú kannt að
elska án allrar eigingirni. Þú getur
orðið ástvini þínum allt — án þess
að skerða hlut þinn hið minnsta.
Þú ert ástvinurinn, sem við erum
alltaf að leita að, en finnum svo
sjaldan. Vonandi verður þú svona
framvegis. Og enn eitt: Þú skalt ekki
sóa ást þinni á einhvern, sem er
hennar ekki verðugur, því að að
öllum líkindum verður þú þá fyrir
sárum vonbrigðum.
250 STIG:
Hæfileiki þinn til þess að elska
er aðdáunarverður og til fyrirmynd-
ar. Ást þin er sönn og óeigingjörn.
Þú skalt fara að öllu með gát í ásta-
málum þínum, því að mest er um
vert, að þú eignist verðugan maka.
Hætt er við, að náunginn notfæri
sér ást þína af mikilli eigingirni.
Líklega finnur þú alls ekki, að ást
þín er misnotuð. Það er ekki auð-
ve-lt að vera í þínum sporum. Lífið
getur orðið þér unaðslegt, ef þú
finnur þér maka, sem er enginn
sérfræðingur um ástina. Ef ástvinur
þinn getur endurgoldið ást þína
ríkulega, ertu sannarlega öfunds-
verð(ur)!
PAPPÍRSVÖRUR
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
SkipkoH Vr
SKIPHOLTI 1 REYKJAVfK
Sími 2-37-37.
Stílabækur, þrjár þykktir
Stílabækur, 12 línur
Stílabækur, tvístrikaðar
Iteikningsbækur, þrjár tegundir
Glósubækur
Teikniblokkir, fjórar stærðir
Skrifblokkir, fimm stærðir
Rissblokkir, þrjár stærðir
Rúðustrikaðar blokkir, tvær stærðir
Spíralblokkir, fimm stærðir
★
Frumbækur í tvíriti og þríriti
Reikningseyðublöð, tvær stærðir
Kvittunarhefti
Kvartbækur, þrjár stærðir
Kladdar
Pappírsmöppur
Plastmöppur
*
Sellofanpappír
Smjörpappír
Hvítar serviettur
Umslög
Litabækur, margar teg.
Strokleður
Reglustikur
Kalkipappír
VIKAN