Vikan - 17.03.1960, Blaðsíða 31
Heillabjallan
Framhald aí bls. 7.
Daginn eftir skrifaði Svale gim-
steinasali að vanda konu sinni bréf.
Hann skrifaði meðal annars:
„Þú hefur víst þegar lesið um þetta
i morgunblöðunum. en þú þarft ekki
að óttast neitt, því að ekkert alvar-
legt gerðist. Annars var þetta bráð-
snjallt áform. Þessi Svendsen, sem
heitir víst reyndar eitthvað annað.
vissi, að öryggistækin voru ekki not-
uð um þessar mundir og að ég svæfi
á skrifstofunni inni af verzluninni.
Hann gerði ráð fyrir, að ekkert mundi
tefja hann, þar eð ég væri meðvit-
undarlaus af lyktarlausri lofttegund-
inni, sém streymdi frá „sýningartösk-
unni“. En ég komst af tilviljun að
þvi, að ioftið var eitrað. Þar sem
lofttegundin var þyngri en loftið,
seig hún niður að gólfinu og steig
smám saman upp. Ég kallaði á lög-
regluna á elleftu stundu. Nú, ég get
sagt þér frá þessu öllu siðar. En
hafðu engar áhyggjur. Eg er núna
að gera skartgrip handa Ingerlise.
Hún á afmæli í næsta mánuði, er
það ekki? Ég ætla að gera henni litla
nælu úr litlum roðasteinum með ör-
smáum svörtum perlum. Það á að
tákna maríuhænu. Heldur þú ekki,
að henni þyki vænt um þetta? Hún
sagði mér, að maríuhænur væru
mönnum til heilla, og ég held næst-
um, að hún hafi haft á réttu að
standa ...
KÁLFABJÚGU
okkar eru hálfsoðin
★
Þau eru landsfræg fyrir gæði.
★
ÞAÐ
ER
TRYGGAST
AÐ
KAUPA
HJÁ
TÓMASI.
Kjötverzlanir
Tómasar Jónssonar
Laugavegi 2. — Sími 11112.
Laugavegi 32. — Sími 12112.
SKÁKÞÁTTUR
Skozki leikurinn
Skozka byrjunin er mjög gömul,
hún var fyrst rannsökuð 1763 af
skákmeistara, Lolli að nafni. En hún
var í fyrsta skipti tefld opinberlega
1824 í bréfaskákkeppni milli I.on-
don og Edinborg og byrjunin fær
nafn sitt vegna liinnar góðu tafl-
mennsku Skotanna. Byrjunin er ekki
hættuleg svörtum enda ekki mjög
mikið notuð í keppnum, en hún er
heppileg ef hvítur vill reyna að
tryggja jafntefli. Eftirfarandi skák
sýnir hve hættuleg hún getur verið
jafnvel fyrir livítan.
Hvítt: Förster, Svart: Innbusch,
tefld um 1900. 1. e4, e5, 2. Rf3, Rc6,
3. d4. Nú er komin fram hin eigin-
lega skozka byrjun. 3. — exd4, 4.
Rxd4, Rf6, 5. Bg5, Bc5, 6. Rxc6,
Bxf2f! Svartur fórnar hér skemmti-
iega, ef nú 7. Kxf2, þá nær svartur
ágætri stöðu eftir 7. —• Rxe4 og síð-
an Dxgo. 7. Ke2, bxc6, 8. BxRf6?
Dxf6, 9. Rc3, Ba6f. 10. Kd2, Df4 mát.
Brcgðum okkur siðan til Ame-
ríku, á því herrans ári 1958, en þar
var næsta skák tcfld og ennþá er
Skozki leikurinn notaður.
Hvitt: Boatner, Svart: Patteson,
1. e4, e5, 2. Rf3, Rc6, 3. d4, exd4,
4. Rxd4, Bc5, 5. Rxc6. Þessi leikur
auðveldar einungis taflið fyrir
svörtum, sterkari leikur er 5. Be3.
5. — bxc6, 6. Bc4. Betra er Rc3.
6. — d5 Þvi nú gat svartur byggt
upp góða stöðu með 6. — Dh4, 7.
Df3, Rf6, 8. Rc3, 0—0, 9. 0—0, d5. 7.
exd5, Bxf2f. Þessi leikur lítur vel út,
en ætti ekki að gefa árangur að sama
skapi. 8. Kxf2, Dh2t, 9. g3, Dxc4,
10. Hel, Re7, 11. b3. En nú átti hvít-
ur að leika 11. Rc3, t. d. 11. — Bg4,
12. Dd2, l)c5, 13. Kg3 og næst ef til
vill Dg5 og hefði þá góða stöðu.
11. — Dxd5, 12. De2, 0—0. Eftir 12.
—Be6 hefði hvítur ekkert i staðinn
fyrir peðið, sem liann hefur fórnað,
en núna springur bomban! 13. Dxe7,
Dd4f. Á þennan leik hefur svartur
byggt sina von. 14. Be3, Dxal, 15.
DxHf8f!! KxDf8, 16. Bc5t, Kg8, 17.
He8 mát. Motto: Það er síðasti af-
leikurinn sem gildir!
Mörg brögð af því tagi eru til,
sum æfagömul önnur yngri og víst
munu þau verða á vegi hvers manns
sem ætlar eittlivað að iðka skák
og ættu allir þeir að kynna sér nokk-
ur þeirra að minnsta kosti. Margir
munu einnig hafa gaman af að vita,
hvað sé hið styzta tafl, er teflt verði.
Það mun mega finna í mörgum
kennslubókum í skák. Það heitir
„fíflsmát" (á ensku „fool‘s mate“,
á þýzku ,,narrenmat“) og er það
þannig: 1. e4, f6, 2. Bc4, g5, 3. Dh5
mát eða 1. f4, e5, 2. g4, Dh4 mát.
Þá er einnig til fjögurra leikja skák;
það mát er kallað „smalamát“ eða
„heimaskítsmát“. (Á ensku „schol-
ar‘s matc“, á þýzku „schafermatt").
Það er svona: 1. e4, e5, 2. Bc4, Bc5,
3. Df3, d6, 4. Dxf7 mát. Þá
er enn til eitt mjög stutt tafl,
kallað Legalsmát, eftir Legal, fræg-
um frönskum taflmanni á 18. öld.
Það er þannig: 1. e4, e5, 2. Bc4, d6.
3. Rf3, Rc6, 4. Rc3, Bg4, 5. Rxe5,
BxD, 6. Bxf7f, Iíe7, 7. Rd5 mát.
Skemmtileg cr gildran, sem svartur
leggur i næstu skák: 1. e4, e5, 2.
Rf3, Itc6, 3. Bc4, Rd4. Svartur gefur
peðið á e5 fyrir að því er virðist
ekk neitt. 4. Rxe5, Dg5. Svartur
skeytir engu hótununum Rxf7 eða
Bxf7t, heldur beinir D sinni bæði að
Rc5 og g2. 5. Rxf7, I)xg2, 6. Hfl,
Dxe4t, 7. Be2, Rf3 mát.
HÚSEIGENDUR!
ÚTI
INNI
HANDRIÐ
HLIÐ
GRINDUR
VÉLVIRKINN
SIGTÚN 57 - SÍMI 32032
VIKAN
31