Vikan


Vikan - 15.09.1960, Blaðsíða 5

Vikan - 15.09.1960, Blaðsíða 5
maðurinn eldist mun hægar að hraða ljóssins. Þetta er aðeins byrjunin. Áður en við gætum farið að koma næstu vetrarbraut, Andromedaþok- unni, fyrir á likani okkar, yrðum við að ganga 30000 km. i eina áttina. Og þannig áfram, eftir liverja 30000 km. kæmi ný vetrarbraut. Þegar við svo værum búin að koma hinum 75 milljónum vetrarbrautum fyrir, sem þegar eru þekktar, hvað gizkið þið þá á að líkanið sé orðið stórt? Hvorki meira né minna en 20 milljónir kílómetra í hverja átt, með jörðina eins og títuprjónshaus í miðju. Frá þessum órafjarlægðum berst ljósið til okkar og sést í stærstu stjörnusjónaukum. En nú skutuð þið ekki halda að líkanið sé full- gert. Ef að það á að sýna gjörvallan alhe'iminn, verðum við að stækka það og stækka, en þó ekki óendanlega. Eftir að við höfum ferðast yfir nokkr- ar milljónir kílómetra á likani okkar, komum við aftur að staðnum sem lagt var upp frá. Heimurinn er ef til vill óendanlegur, en við hugsum okkur hann sem risavaxinn hnött. Til þess að gefa þó svolitla hugmydn um fjar- lægðina til næstu nábúa jarðarinnar, gætum við hugsað okkur að Ingólfur Arnarson hefði stigið upp í fljúgandi disk og siðan farið ineð slíkum ofsahraða sem 4,3 milljón kílómetrum á klukku- tíma til Alfa Centauri, sem er næsta sól. Það hljómar ótrúlega, en þó er það svo, að fyrst um þessar mundir kæmi diskurinn á áfangastað. Svo er það Andromedaþokan, næsta vetrarbraut. Hana getum við rétt séð sem lítinn Ijósan blett á norðanverðum himni. Útvarpsbylgjurnar eru fljótasta leiðin til að hafa samband við fjarlæga staði. Þær fara, eins og ljósið, með 300.000 km hraða á sekúndu. Ef loftskip kæmist þangað væri ekki Framhald á bls. 29. Gervihnettir þeir sem nú eru á brautum umhverfis jörðu eru barnaleikföng miðað við þá farkosti, sem menn hafa til geimferða eftir nokkur ár. En það verða áhættusamar ferðir.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.