Vikan - 15.09.1960, Síða 12
5 POSTULINN Á TORGINU
Dr. Matthías Jónasson skrifar
hér um prédikarann sem
knúinn er áfram af innri
fjörf og selur himnaríki við
útsöluverði
Postulinn á Lækjartorgi er ekki einstætt
fyrirbæri. Flestar raeiri háttar borgir hafa sinn
postula og sitt trúboðstorg, og eflaust þætti
mörgum nokkur sjónarsviptir að því, ef torg-
predikarinn hyrfi úr svipmynd borgarinnar.
Postulinn á torginu gegnir margþættu hlut-
verki og ekki ávallt þakklátu. Hann verður að
sýnast vera innblásinn af heilögum anda og
predika í krafti guðlegs valds. En þegar gázka-
fullir unglingar hafa hópazt í kringum hann
og henda gaman að illa leiknum eldmóði hans,
þá er eins og úr honum dragi hinn guðlega
innblástur og af honum rennur eldmóðurinn.
Andvaraleysi og háð áheyrendanna er sá
hreinsunareldur, sem postulinn á torginu verð-
ur að þola. En þeir eru kannske fæstir, sem
bera gæfu til að skírast í honum.
Sannur predikari er knúinn áfram af sterkri
þörf til þess að boða villuráfandi sálum fagn-
aðarerindið. En boðunaraðferð hans er mis-
jafnlega vænleg til árangurs. T. d. tryggir em-
bættistitillinn honum ekki alvarlega hlustandi
áheyrendur; hins vegar getur staða og titill
lokkað út í predikarastarfið menn, sem ekki
eru til þess fallnir né útvaldir af andanum.
Það eru ekki hlunnindi né ytri ljómi em-
bættisins, sem leiða postulann út á torgið. Hé-
gómagirni hans gengst fyrir öðrum ginning-
um. Hann styðst sjaldan við rækilega undir-
búningsmenntun; skilningur hans á þvi fagn-
aðarerindi, sem hann boðar, er því oftast grunn-
fær og þröngur. Þess vegna rígheldur hann í
nokkrar yfirboðslegar kennisetningar og álitur
í einfeldni sinni, að jafn auðvelt muni vera að
fanga aðra inn í þær. Þetta er hin sálræna
ástæða fyrir því, að postulinn á torginu vekur
miklu tíðar kátinu og háð en hrifningu og
trúarvilja.
SAUÐIR OG HAFRAR.
Postulinn á torginu býður ávallt upp á auð-
velda leið inn i sæluvist himnanna. Honum er
léð sú list að þvo okkur í einni svipan hrein
af allri synd. Áreynslulitið lætur hann okkur
snúa baki við fornum breyzkleika eðlisins og
frelsar okkur af allri synd. Með sama geiglausa
örygginu og markaðssalinn býður okkur sápu,
sem yngi okkur upp, eða rakvélarblað, sem
aldrei sljóvgist, þannig býður postulinn á torg-
inu frelsun, syndalausn og sáluheill við útsölu-
verði.
í þessari torgsölu paradisarsælunnar gleym-
ir postulinn sér og verður broslegur. Nútíma-
maðurinn veit, að engin verðmæti fást, nema
eitthvað komi þar á móti. Jafnvel hinnar guð-
legu náðar getur sá einn orðið aðnjótandi, sem
þráir hana heitt og leitast við að gera sig henn-
ar verðan. Skyndifrelsun og trúarjátning var-
anna þokar okkur ekki feti nær hliði para-
dísar.
Þessi hindrun verður postulanum á torginu
aðeins að litlu leyti Ijós. Þvi grípur hann í van-
mætti sínu til gamalkunnrar aðferðar til þess
að þrýsta óheyrendum sínum að jötunni. Hann
lýsir örlögum hinna óguðlegu, hinni seinvirku
slátrun hafranna. Þar sýnir hann tilþrif, sem
Framald á bls. 24.