Vikan - 15.09.1960, Blaðsíða 13
:
,
ÉÍpÉÉ
Bgigiissg
L ;••*: ■
ý:iíS
Húsgögn og tvær kynslóöir
Myndirnar tvær, sem hér fylgja
með, sýna betur en orð geta lýst,
hver breyting hefur orðið á hús-
gögnum og húsbúnaði síðustu tvo
áratugina og þó einkum síðan 1950.
Tökum fyrst gamla tímann; hann
sjáum við á myndinni.að ofan. Þetta
eru sallafín gömul húsgögn í
Chippendale-stíl. Þeir sem komnir
eru á miðjan aldur eða meir, kunna
vel við sig innan um þess háttar liús-
gögn, ýmist af vana og ýmist
fyrir þá hégómulegu hugsun, að
einungis slík húsgögn prýði hýbýli
gamalla og íhaldssamra aristókrata
og herragarða í útlöndum. Þeir
halda því frarn — og það með réttu
— að'vinnan á þessum húsgögnum
sé ákaflega vönduð og þeim finnast
þessi gömlu barokafkvæmi vera
merki um hagsæld og gróinn bú-
skap.
Unga kynslóðin hefur fengið nýja
lífsskoðun, sem er allt öðruvisi
en feður hennar og mæður höfðu.
Hún ber enga virðingu fyrir herra-
garðsstíl og henni finnst það ekk-
ert gildi hafa fyrir eina tegund hús-
gagna, þótt bankastjóri eða heild-
sali kunni að hafa þau á heimili
sinu. Ungu kynslóðinni hefur verið
kennt, að einfaldleikinn búi yfir
fegurð. iHenni hefur líka verið
kennt, að stilstælingar og gamlir
Framh. á bls. 31.
VTKAN
, .•!
WSvNsvÍísw