Vikan


Vikan - 15.09.1960, Síða 25

Vikan - 15.09.1960, Síða 25
Slysið Framhald af bls. 7. — Nei, er það mögulegt, var það í Indlandi. — Nei, á Italíu. — Það var einkennilegt. Ég hef aldrei vitað að það væri stunduð villisvínaveiði á Italíu. Var faðir yðar þekktur pololeikari? Á sínum tíma trúlofaðist Jerome. Það var hvorki of seint né of snemma, það vissi hann sjálfur, því sem lög- giltur endurskoðandi hafði hann kynnt sér allt um meðalaldur og ann- að í hagskýrslunum. Hún var lagleg og heilbrigð stúlka, tuttugu og fimm ára gömul, og faðir hennar var lækn- ir í Pinner. Hún hét Sally, og eftir- lætisrithöfundur hennar var Dorn- ford Yiates og hún hafði alltaf elsk- að börn, síðan að hún, fimm ára göm- ul, hafði fengið fyrstu dúkkuna, sem gat bæði sofið og vætt buxurnar. Eins og vænta mátti af löggiltum endur- skoðanda, bar samband þeirra blæ af rólegri hamingju, laust við ólgandi ástríður. Enda hefði ekki annað sam- rýmst hagfræðiskýrslunum. En það var dálítið, sem Jeome hafði áhyggjur af. Þegar hann nú sjálfur, eftir meðaltali allra yfirlitsskýrslna, gat orðið faðir innan eins árs, óx ást hans til hins látna föðurs. Hann sá nú, hve mikil ást var falin í hinum litríku póstkortum. Hann fann hjá sér þörf til að standa vörð um minn- ingu föðurins, og hann vissi ekki hvort ást hans á Sally mundi þola þá raun, að sjá hana hlæja, þegar hún heyrði um það, hvernig faðir hans hafði dáið. E'n það var ekki hægt að komast hjá því að hún heyrði það, þegar hann faíri með hana I mið- degisverð til föðursysturinnar. Hann gerði margar tilraunir til þess að segja henni sjálfur frá þvi og hún hafði auðvitað mikinn áhuga fyrir öllu, sem viðkom honum. — Þú varst mjög ungur, þegar faðir þinn dó, var það ekki? — Eg var rétt níu ára. — Vesalings litli strákurinn, sagði hún. — Mér var sagt það, þegar ég var í skólanum. — Tókstu það mjög nærri þér? — Ég man ekki eftir því. — Þú hefur aldrei sagt mér, hvernig þetta vildi til. — Það kom mjög óvænt. Það var umferðaslys. — Þú ekur vonandi aldrei svo hratt, Jemmy? (Hún var farin að kalla hann Jemmy). — Þegar hann hafði gengið þetta langt, var of seint fyrir hann að nota hina aðferðina, þá, sem hann kallaði villisvinaaðferðina. Brúðkaupið átti að standa án allrar viðhafnar og síðan ætluðu þau til Tyrklands í brúðkaupsferð. Hann dró það þar til viku fyrir brúðkaupið, að fara með hana til frænku sinnar. En svo kom kvöldið, þegar ekki var hægt að draga það lengur. Hann vissi varla sjálfur, við hvort hann væri hræddari, það, að minning föðurins yrði lítils- virt, eða að ást hans biði skipbrot. Svo skeði þetta allt I einu vetfangi. — Er þetta faðir Jemmýs? spurði Sallý og tók myndina af manninum með regnhlífina. — Já, vina mín, sagði föðursystir- in. — Hvernig gaztu getið þér þess til? — Hann hefur sömu augu og enni og Jemmý, er það ekki? — Hefur Jerome lánað þér bæk- urnar hans? — Nei. — Þú skalt fá öll verk hans í brúðargjöf. Hann skrifaði svo fallega um ferðalög sín. Bezta bókin finnst mér „Völundarhúsið". Hann átti mikla framtið fyrir sér. Þess vegna var þetta hræðilega slys svo sorglegt. — Já? Jerome langaði mest til að fara út úr herberginu ,til þess að þurfa ekki að sjá andlit unnustu sinnar afskræm- ast af niðurbældum hlátri. — Ég fékk svo mörg bréf frá les- endum hans, eftir að svínið datt ofan á hann. 1 svona stuttu máli hafði hún aldrei skýrt frá þessu fyrr. En þá skeði kraftaverkið. Sallý hló ekki. Sally sat með galopin augu, full af angist, meðan föðursystirin sagði frá öllu saman, og Þegar því var lokið sagði hún: — Þetta var alveg hræðilegt. Það eru svona atburðir, sem vekja mann til umhugsunar um lífið. Ekki sízt, þegar þetta kemur svona eins og þruma úr heiðskíru lofti. Hjarta Jeromes dansaði af gleði. Það var eins og hún með þessu hefði rekið burt ótta hans að fullu og öllu. Þegar þau fóru heim í bílnum, kyssti hann hana af meiri ástríðuhita en nokkurn tíma áður og hún svaraði í sömu mynt. Það voru ungbörn í augum hennar, bláeygð börn, sem opnuðu og lokuðu augunum og vættu buxurnar. — Eftir eina viku, sagði Jerome, og hún þrýsti hönd hans. — Um hvað ertu að hugsa, ástin mín? — É^ er að hugsa um, sagði Sallý, hvernig fór fyrir vesalings svíninu. — Það hefur sjálfsagt orðið ágætis miðdegismatur, sagði Jerome ham- ingjusamur og, kyssti unnustu sína. -- ★ — Allt í lagi — hlauptu nú! Skíðaskálinn Framhald :;f hls. 11. Gerðum við samning við Kristján Jónsson frá Hveragerði um að sjá okkur fyrir góðum hestum handa þeim, sem áhuga hafa fyrir því að setjast upp á hest og sjá sig um hér í kring. Höfum við séð fólki fyrir hentugum nestiskassa i ferðina, en öllum er heimil þátttaka, hvort sem þeir eru gestir hér eða ekki. Hefur oftast verið farið hér upp í Marardal og upp á Hengil. Eru þetta ef til vill ekki stór skref til úrbóta, en við von- um, að þau verði ekki minni i fram- tíðinni og ekki langt á milli þeirra. — Eruð þið með eitthvað nýtt á döfinni núna? — Það er svo ótalmargt, sem hér má gera til þæginda og skemmtunar, að nógu er af að taka. Líklega liggur næst fyrir að laga hér til í kring um skálann, og höfum við hugsað okkur að steypa stétt hér fyrir framan, svo hægt sé að bera veitingarnar á borð úti undir beru lofti, þegar veður leyf- ir. Slíkt yrði mjög vel þegið af Þeim, sem vilja njóta sólarinnar um leið og kafisopinn er drukkinn, — Hefur aðsóknin ekki verið ágæt? — Jú, en þó langbezt um helgar, auðvitað. Þetta hefur allt gengið mun betur en við þorðum að vona, og við viljum biðja ykkur að færa öllum þeim, sem heimsótt hafa okkur hingað i Skíðaskálann, þakklæti og okkar beztu kveðjur. JOHNSON'S BÓN BEZTA HÚSHJÁLPIN MÁLARINN H.F. Sími H496 V I Ií A N 25

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.