Veðrið - 01.04.1966, Blaðsíða 11

Veðrið - 01.04.1966, Blaðsíða 11
Maí 23. 1. Þvernorðan skafrenningur um morguninn, en minnkaði um há- degi með logn og sólskin. 24. s. Landsunnan veður með bleytukafald. Snéri sér i útsuður með sól- skini, tók þá hreppstj. leiði. 25. m. Útsynningur hægur með kulda svo lítið þiðnaði. 2fi. þ. Um m . . . haegð með útsunnan fjúk um morguninn. Þá upptóku Litlahraunsmenn leiði. 27. m. Hægð með útsunnan fjúki. Birti upp milli, svo Litlahraunsmenn tóku leiði í Skógarnes. Kont Finnur og Jón í Görðum að sækja hey. 28. f. Logn og glaða sólskin svo þiðnaði mikið. Fæddist þá barn á Litla- hrauni. Vitjaði ég séra (B. . .?) að skíra það og fylgdi lionum út eftir u(nt kvöldið?) 29. f. Logn og dumbungsþíða útsunnan með hægð. Var þá embættað í Miklaholti og jarðaður Sigurður Guðbrandsson á Hömluh., kom þá M. . . 30. 1. Landsunnan þíða með liægum vindi. 1. s. Bjart veður, logn og bezta þíða. Gekk Þ.. . á Dalsmynni ofan að Litlahrauni með lík ... Þá komu líka Guðrún á Lh og Magnús í Landbrotum að sækja hey fyrir sig og Ólaf á . .. 2. m. Logn og þykkviðri með slyddu, unt kv... sunnan luíð. Var þá jarðað Litlalirfaunsbarnið] með öðru frá Gerðubergi frant á Rauða- m[el.] 3. þ. Sunnan hæg maraþíða. Kom enginn. 4. m. Sunnan þíða og góðviðri. 5. f. Bjart veður, logn og hlýviðri. Fór Fríð. . . fi. f. Enn nú sama veður og farið út að vin(na á?) 7. 1. Landsunnan vindur og sólskin. Geng . . . 8. s. Sunnan hríð og hlý leysing. Fæddist hje(r?) barn um nóttina. 9. m. Útsunnan hryðjur allan daginn. Kom H. . . 10. þ. Útsunnan smáregn urn morguninu, sólfar, hlýja. Sótti ég þá prest að skíra barnið. Hann iiér um nóttina ásamt Þorsteini í G(r<>f?) Þessu næst skulu nú nokkuð athuguð rnanna og bæjarnöfn, sem fram hafa komið, og þau tekin í réttri dagaröð. 12. april. Stúdent Benedikt í Krossholti var bóndi þar. Hann var sonur séra Björn Benediktssonar í Hítardal. Helgi hreppstj. í Vogi var Helgason síðar alþm. Mýramanna. Hann var langafi Bjarna Ásgeirssonar alþm. og ráðherra. Bróðir Ilelga í Vogi var Sigurður Helgason skáld og hrstj. á Jörva í Kolbeinsstaðahreppi. 19. april. Ekkert kunnugt unt Jón, sem þar er nefndur, en gæti þó verið Jón sá, er var annar bænda á Litlahrauni um þessar mundir, sem síðar segir. Guðmundur á Völlum, þ. e. Hítardalsvöllum í Kolbeinsstaðahreppi (Hítardals- sókn) var Sigurðusson, smiður í Hítardal 1816, fæddur að Saurbæ á Kjalarnesi um 1788. Bjó síðar í Hítarneskoti. Kona hans hét Sigríður Árnadóttir, jafnaldra bónda sínum, líklega fædd í Stafholtstungum. Hún dó í Hítarneskoti 1842. — 1 1 VEBRIÐ

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.