Veðrið - 01.04.1966, Síða 15
PÁLL BERGÞÓRSSON:
r
Hitafar og búsæld á Isiandi
Saga íslands einkennist a£ harðri baráttu þjóðarinnar fyrir tilverunni. Á árun-
um 1600—1800 og jafnvel lengur komu hvað eftir annað harðæri, sem ollu veru-
legu mannfalli, svo sem um 1690—1700, og um 1750. Yfirleitt stafa harðærin af
hafís og kulda, nema þá móðuharðindin, svo sem alkunna er. Líf íslenzku þjóð-
arinnar hefur því verið afar næmt fyrir hitabreytingum, enda eru þær meiri hér
en í flestum löndum, að minnsta kosti ef bornar eru saman aldir, og ennfremur
er ekki hægt að neita því, að hitasdgið er hér með því lægsta, sem nauðsynlegt
má teljast til landbúnaðar.
í þessari grein er ætlunin að leita að einhverju tölulegu sambandi hitastigs og
búsældar á fslandi. Aðferðin, sem notuð verður, er þessi. Fyrst er athugað, hvort
greina megi tengsl lofthita við gróður- og beitarskilyrði á landinu síðustu ára-
tugi, eftir fáanlegum heimildum. Þegar þessi tengsl eru fundin, er reynt að gera
sér grein fyrir, hverju það hefði valdið um afurðir landbúnaðarins árin 1931 —
1960, ef þá hefði verið eins kalt og var á öðru mun kaldara tímabili, 1873—1922
Niðurstaðan verður sú, að annar eins kuldi og var 1873—1922 hefði rýrt afurðir
landbúnaðarins árin 1931—1960 um h. u. b. 22% að verðmæti. En vegna þess að
hér er átt við brúttóafurðir, en ekki jtann arð, sem í hlut bændanna kemur, verð-
ur þessi skerðing í rauninni enn tilfinnanlegri en þessi tala segir. Má segja, að af
hverjum þrem krónum, sem bændur liafa fengið milli handanna á þessum síðustu
árum, hafi ein verið beinn ávöxtur af loftlagsbreytingunni, sem varð frá 1873—
1922 til 1931-1960.
Hitafarið 1873-1922 og 1931-1960.
í Veðráttunni, mánaðarriti Veðurstofunnar, hafa verið birtar meðtaltölur hita
einstakra mánaða ársins á þessum tveimur tímabilum. Hér fer á eftir meðaltalið
í hverjum mánuði á 53 stöðvum árin 1931—1960, en þessar stöðvar eru dreifðar
víðsvegar um byggðir landsins. Ennfremur er hér sýnt, hversu mikið liiti hvers
mánaðar hefur liækkað frá 1873—1922 til 1931—1960, samkvæmt samanburði á 34
stöðvum, sem hafa meðaltöl á báðum tímabilum:
J F M A M J J Á S O N D Ár
1931-60 - 1.1 -1.2 0.2 1.7 5.6 8.5 10.2 9.7 7.6 4.0 1.7 0.0 3.9
Hlýnun 1.4 1.4 2.4 1.0 1.4 0.4 0.5 1.0 1.1 1.2 1.9 2.1 1.3
Það kemur í ljós, að allir mánuðir ársins hafa hlýnað, veturinn þó meira en
suntarið. Sé árinu skipt í fjórar árstíðir, eins og Veðurstofan gerir, vetur (desem-
ber—marz), vor (apríl—maí), sumar (júní—september) og haust (október—nóvem-
ber), verður liitabreytingin frá 1873—1922 til 1931—1960 þessi:
Vetur 1.8, vor 1.2, sumar 0.8, haust 1.6.
VEÐRIÐ
15