Veðrið - 01.04.1966, Qupperneq 26
• C O 3 •
3. mynd. Þriggja daga keðjubundin meðaltöl mánaðameta úrkomunnar A sunn-
lenzkum stöðvum, jrá Reykjavik að Dalatanga, raðað eftir tunglaldri.
er eftir, sem sennilega reynist erfiðara, að finna það orsakasamband, sem þarna
leynist. Bein þyngdarálirif tunglsins á rigningu á sama hátt og á flóð og fjöru
eru tæplega talin koma til greina. Sumir hafa getið sér þess til, að tunglið hefði
áhrif á fall loftsteina (stjörnuhröp), en rykið frá þeim orki aftur á úrkomu.
Hér er þó sá hængur á, að stjörnuhröpin virðast ná aðeins einu liámarki á
hverju tungli, en úrkoman tveimur. Auk þcss efast margir um, að ryk frá loft-
steinum eigi nokkurn verulegan þátt í úrkomumyndum.
Og að síðustu er rétt að láta þau varnaðarorð fylgja, þótt sanna mætti með
tölfræði, að samband sé milli tunglaldurs og rigningar, er það áreiðanlega ekki
nógu skýrt til þess að það megi nota í veðurspám frá degi til dags. Hitt er
annað mál, að af þessari rannsókn kann að leiða nýjar uppgötvanir og ný
og betri veðurmerki. í því liggja hinir miklu verðleikar rannsókna, sem Jiafa oft
enga fyrirsjáanlega þýðingu, að þær leiða menn stundum eftir undarlegum og
krókóttum götum til mikilvægra uppfinninga.
26 --- VEÐRIÐ