Veðrið - 01.09.1970, Blaðsíða 8

Veðrið - 01.09.1970, Blaðsíða 8
lengi skammt austur af landinu. Um miðjan mánuðinn brá þó út af þessu og gerði útsynning í tvo daga. Hinn 20. var hlýjasti dagur júní í 500 metra hæð. Þá er líka farið að nálgast sólstöður, og loftið, sem að barst, komið skemmstu leið suðaustan frá Bretlandseyjum. Hinn 25. snerist vindur í norðrið og hélst á þeirri átt eða af vestri til mánaðamóta. Júlí var tiltölulega kaldasti mánuður sumarsins. Næst jörðu var tveim stigum kaldara en í meðallagi, og í tveggja km hæð munaði 1,7 stigum. Þrátt fyrir kuld- ann var sólskin meira í Reykjavík en áður hefur mælzt. Það er norðanáttin, sem hér segir til sín, því að hún er eðlilega bæði svöl og sólrík á suðvestur horni lands- ins. Háþrýstisvæði lá lengstum yfir Grænlandi og Grænlandshafi, svo að það loft, sem til Isands lagði, kom jafnan frá íshafinu undan austurströnd Græn- lands. Þó sést á hitaritunum, að þrisvar sinnum í mánuðinum hefur slakað á kuldanum, en í þau skipti barst inn yfir landið loft, sem hafði ylnað yfir hafinu suður af landinu. Þetta gerðist fyrstu dagana, um miðjan mánuðinn og í byrjun fjórðu vikunnar. Agúst-mánuður var nálægt hálfri gráðu kaldari en í meðallagi í neðsta kíló- metranum, en rétt við meðallag, þegar komið var upp í 1500 m hæð. Venjulega er ágúst kaldari en júlí, en í sumar var hann nálega heilli gráðu hlýrri í neðsta tveggja kílómetra loftlaginu. Vindátt var síbreytileg. Lægðir voru á sveimi nálægt landinu og dokuðu sjaldan lengi við, svo að lítið komst til landsins af lofti frá rnjög suðlægum svæðum. Hlýjustu dagarnir voru liinn 5. og 23. í fyrra skiptið var hér á ferðinni loft alllangt sunnan af hafi, en í seinna skiptið náði Norðursjávarloft til suðurhluta landsins. í september var hitinn við jörð rúmu stigi lægri en meðallagið og rúmlega hálfu öðru stigi lægri en það í tveggja km. hæð. Er það eini mánuður sumars- ins, sem er hlutfallslega kaldari eftir því sem ofar dregur. Ef litið er á liita- ritin, kemur í ljós, að seinni liluti mánaðarins er lilýrri en sá fyrri, öfugt við það, sem við má búast um haustmánuð. Fyrstu tvo dagana var vindur norðlægur, og hitinn í 500 metra hæð nálgaðist frostmarkið. Næstu daga var austan eða norðaustan átt og loftkuldi lieldur minni. En í annarri vikunni ríktu norðlæg- ir vindar á ný, svo að liitinn féll niður að frostmarki í 500 m hæð. Upp úr miðjum mánuðinum tók fyrir norðlæga loftstrauma, og í fjórðu vikunni ríktu suðlægir vindar, því að hæð var þá yfir Norðurlöndum, en lægðir suðvestur af fslandi. í lok mánaðarins tóku hitalínurnar að stefna niður á við, enda barst þá að svalara loft með útsynningi vestan um Grænlandshaf. Hinn lági sumarhiti liefur að vonum komið fram með ýmsu móti. Má þar nefna lélega grassprettu í flestum héruðum landsins. Þá er ekki ólíklegt, að bráðn- un jökla hafi orðið minni en í meðallagi, þó að loftkuldi væri tiltölulega minni á jöklum og háfjöllum en þegar neðar kom. Og fannir í Esju hurfu aldrei allar í sumar. Smáskaflar urðu eftir í Gunnlaugsskarði og einnig í Kerhólakambi. 44 — VEÐRIÐ

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.