Veðrið - 01.09.1970, Blaðsíða 13

Veðrið - 01.09.1970, Blaðsíða 13
um efnum og mengar þau. Rakastigið ræður því, hve viðloðun mengunarinnar er mikil. Úrkoma: Urkoma (regn eða snjór) verka oft sem skolvatn, sem skolar burt mengunarefninu af mannvirkjum eða gróðri. Mengunin flyzt þá til úr loftinu eða frá yfirborði jarðar niður í jarðveginn eða í ár og grunnvatn. Sólskin: Sólargeislarnir eru stundum livatar, sent valda því að mengunarefni í loftinu blandast öðrum efnum loftsins og myndast þá móða eða mistur (smog), sem særir augun. Þetta gerist venjulega í stórborgum, þar sem útblástur frá allskonar farartækjum er livað mestur. Þetta eru helztu þættir veðurfarsins, sem eru ríkjandi, þegar loftmengunar- bættan er mest, en oftast nær verða þeir að verka saman tveir eða fleiri til Jtess, að liættuástand skapist. Hitastigið eitt út af fyrir sig er ekki einhlýtt. Venjulega verður eðlisástand lofthjúpsins að vera þannig, að kalt loft liggi við yfirborð jarðar en efra sé hlýrra loft, sem liindrar þá uppstreymið. Þegar hitafarið er svona er sagt, að loftið sé í stöðugu jafnvægi. Útblástur og út- streymi mengunarefna í lofthjúpnum takmarkast Jtá við neðstu 100 til 500 metrana, og mengunin verður margfalt meiri en venjulega. Það hefur skapast hættuástand. Auðvelt er að sjá, Jtegar hitafari lofthjúpsins er Jtannig farið, Jtví að Jtá myndazt venjulega dalalæða eða þoka við jörð. Verksmiðjureykur og reykur úr reykháfum íbúðarhúsa leggur ekki beint upp í loft heldur breiðist út og liggur yfir öllu. í sjávarþorpum hér á landi liggur reykjarmökkurinn frá fiskimjölsverksmiðjunum yfir næsta nágrenni, öllum til ama og ójtæginda ef ekki jafnvel til heilsutjóns. Rykmökkurinn á Jtjóðvegunum blandaður benzín- stybbu er þá stundum svo dimmur, að bifreiðastjórar verða að aka með ljósurn um hábjartan dag. Ef til vill er mengun lofts hér á landi meiri en margur hyggur. Eins og áður var minnzt á, verða tveir eða fleiri Jtættir veðurfarsins að verka saman til Jtess að hættuástand skapist. Sterkur vindur myndi t. d. orsaka svo mikla kviku í loflinu að mengunarinnar ntyndi gæta síður. Mikil úrkoma myndi skola mengunarefninu burt úr lofthjúpnum. Lífssvið jarðarinnar (biosphere), Jtar sem allt líf eins og við þekkjum Jtað hrærist nær aðeins í 10—15 km. lofthjúp upp á við frá yfirborðinu. Aftur á móti spannar Jtað allt yfirborð jarðar. I þessumi örjtunna hjúp býr fjöldi tegunda dýra og jurta. Hin lífræni og ólífræni hluti Jtessa sviðs myndar lífssviðið og hefur á óralöngum tíma skapað jafnvægi í náttúrunni. Jafnvægi [tetta er misjafnlega hvikult, og fer Jtað eftir linattstöðu og árstíð, hve hvikult Jjað er. Jarðlífsfræði rnætti kalla Jjá vísindagrein, sem nú ryður sér til rúnis og felst í Jjví að rann- saka þetta jafnvægi náttúrunnar og innbyrðis sambúð jurta og dýra. Gerist ein tegundin heimtufrekari, raskar hún jafnvæginu, en Jiað er einmitt það, sem mannskepnan hefur gert í krafti tæknijjróunar og mannfjölgunar. Loftmengun getur verið margvísleg. Hún getur verið langvarandi og staðbundin eða skamm- vinn og spannað yfir hálfan hnöttinn. Hún getur stafað af hugsunarleysi eða græðgi, vegna slysa eða náttúruhamfara. Dænti um víðfeðma en frekar skamm- vinna loflmengun af mannavöldum er geislavirka rykið frá kjarnorkusprenging- um. Krakatá-eldgosið spúði svo mikilli gosösku upp í háloftin, að hún sveif VEÐRIÐ -- 49

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.