Veðrið - 01.09.1970, Síða 12
1. mynd. l.ágþoka og reykjarmökkur i baksýn sýna stööugt ástancl lofthjupsins.
Ljnsm.: fíorgþnr H. Jnnsson.
mörgu reykháfum hefur minnkað svo, að nú er raunverulega hægt að sjá og
skoða borgina sér til yndisauka.
Sir Graham Sutton fyrrverandi veðurstofustjóri brezku veðurstofunnar hefur
unnið mikilvægt starf á sviði rannsókna á dreyfingu reyks frá verksmiðjureykháf-
um, enda er verksmiðjureykur frá iðnaðarsvæðum Bretlands stór þáttur í loft-
mengun í Bretlandi.
I>að er ekki úr vegi að minnast hér á nokkra þætti veðurfarsins, sem eru
mikilvægir fyrir loftmengun. I>að má segja, að stundum séu þessir þættir alls-
ráðandi, þegar mengunin verður iífshættuleg.
Vindur: Vindátlin ræður j>ví í hvaða átt mengunarefnið berst frá uppsprettu
mengunarinnar. Vindhraðinn ræður hinsvegar hve langt það berst, og sé vind-
hraðinn nógu mikill, J>á dreifist mengunarefnið svo mikið, að mengunin verð-
ur ekki mikil. Segja má að sé vindhraðinn nógu mikill, þá er loftræsting í Jrað
góðu lagi í næsta nágrenni mengunaruppsprettunnar, að samþjöppun meng-
unarefnisins á sér ekki stað.
Hitafar: Hitastigið ákvarðar oft útstreymi mengunarinnar. Mörg mengunar-
efni eru Jryngri að vetrarlagi en að sumarlagi, en það er einmitt að vetrar-
lagi sem mengunin eykst vegna upphitunar húsa með kolum eða olíu.
liakastig: Rakainnihald loftsins er mikilvægur Jráttur, sem ákvarðar hversu
mjög og hvernig mengunarefnið sezt á mannvirki og gróður eða blandast öðr-
48 — VEÐRIÐ