Veðrið - 01.09.1970, Qupperneq 14
2. mynd. Veðurtunglamynd 21. sept. 1970. Eldgos ú Jan Mayen. Gosskýið bersl
með norðvestan vindum i háloftunum en Jan Mayen sést sem hvitur depill, þar
sem skýið byrjar. Island rétt neðan miðju myndarinnar, en Grœnland vinstra
megin.
umhverfis norðurlivelið. Staðbundin og skammvinn loftmengun kom íyrir 1
Surtseyjargosinu, jiegar gosefnin menguðu drykkjarvatn Vestmannaeyinga. Það
sama gerðist í síðasta Heklugosi, er fluormenguð askan, sem barzt með loft-
straumum ailt norður í Húnavatnssýslu, grandaði Jjar búpeningi. Smásprengingar
í kjarnorkuverum hafa orsakað svipaða mengun, er geislavirkt ryk hefur borizt í
næstu sveitir og gert búpening og búsafurðir geislavirkar, svo að Jiað hefur orðið
að eyða þeim. Hin langvarandi loftmengun, sem stafar af tækniþróuninni, er
samt hættulegust, [iví að hún hefur verkað áratugum saman og oft án þess,
að fólk gerði sér grein fyrir hættunni. Það er jiessi loftmengun, sem verður að
stemma sligu fyrir áður en það verður um seinan. Því lengur, sem það dregst að
gera ráðstafanir gegn henni, Jjví dýrar verður jiað síðar meir.
Við Faxaflóa hafa jicgar risið Jirjár verksmiðjur, sem orsaka einhverja loft-
mengun, auk þess sem jiar eru flestar bifreiðarnar. Það er því ekki úr vegi að
íhuga jiað, livort fyrirhuguð olíuhreinsunarstöð væri ekki betur staðsett einhvers-
staðar annarsstaðar.
Þegar áætla skal mengun jiarf auðvitað að vita, hve mikils magns mengunar-
efnis er að vænta á vissu tímabili. Slík jrekking er næsta sjaldan fyrir hendi
50 ---- VEÐRIÐ