Veðrið - 01.09.1970, Qupperneq 29
Úr bréfum
FRÁ HELGA Á FAGURHÓLSMÝRI
Fagurhólsmýri, 1. apríl 1968.
Herra veðurfræðingur Páll Bergþórsson, Reykjavík.
Hálfdan bróðir minn skrifar mér frá Hornafirði nýlega:
„Það er eitt, sem gaman væri að athuga, þ. e. hvort veðurfræðingar hafa
athugað í sambandi við vetrarsólhvörf. Ég tel mig muna rétt, að pabbi sagði,
að oftast mundi draga úr frosti um sólstöðudaginn, — og sagðist hafa fylgzt
með þessu og virzt það korna fram, og það sama hefur mér fundizt. Ég lield
ég muni rétt, að pabbi hafi sagt, að oftast dragi úr frosti út úr hádegi,
og gæti það svo aukizt út úr kl. 2."
Mér þætti vænt um, ef þú gætir gjört svo vel að skrifa mér um, hvort þú
álítur, að þetta hafi við rök að styðjast, og ef svo er, hvort veðurfræðingar vita
um orsakir.
Faðir minn, Ari Hálfdanarson Fhm., var fæddur 19. sept. 1851, d. 26. apríl
1939.
Með beztu kveðju. Helgi Arason.
Ari Hálfdanarson var lengi veðurathugunarmaður á Fagurhólsmýri, fyrst fyrir
dönsku veðurstofuna 1903—1919, síðan fyrir þá íslenzku til 1934. Hann hefur
greinilega veitt því athygli, hvað það er skammur tími á hverjum degi, sem
frostið linar, þegar sólin er lægst á lofti. Allan þann langa tíma sólarhringsins,
sem þá er eftir, er hitinn að jafnaði nokkurn veginn sá sami, svo að varla
munar broti úr stigi í meðaltölum. Til gamans hef ég reiknað meðalhitann
í Reykjavik í desember á mismunandi tímum sólarhringsins á tveggja stunda
fresti, árin 1925—1934, og er hann þessi:
KI..... 02 04 06 08 10 12 14 16 18 20 22 24
Hiti .. 1.48 1.42 1.38 1.55 1.56 1.77 1.80 1.65 1.58 1.55 1.41 1.39
Hér kemur aðeins fram dálítill fjörkippur í liitanum klukkan 12 og 14. Þessi
liádegishiti ætti að koma um 20 mínútum fyrr á Fagurhólsmýri en í Reykjavík,
sólin er þar fyrr í hádegisstað. Varla er ástæða að ætla, að þessa fyrirbrigðis
gæti meira á sjálfan sólstöðudaginn en yfirleitt í desember. En lýsing Ara er
býsna nákvæm, miðað við, hvað hér er um lítinn hitamun að ræða, sem iðulega
hverfur mjög í skuggann af hitabrigðum frá degi til dags.
P. B.
VEÐRIÐ --- 65