Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2009, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 04.12.2009, Qupperneq 4
4 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR Ranghermt var í Fréttablaðinu í gær að bílarnir hér að ofan væru í eigu SP-fjármögnunar. Myndin er frá umráðasvæði fjármögnunarfyrirtækis- ins Lýsingar við Hafnarfjarðarhöfn. LEIÐRÉTTING FULLT HÚS JÓLAGJAFA 39.900 kr. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 20° 6° 4° 7° 8° 6° 3° 7° 7° 22° 8° 17° 12° 18° 1° 7° 19° 6° Á MORGUN 10-15 m/s, lægir er líður á daginn. SUNNUDAGUR Hvasst sunnan og vestanlands. 2 -1 -1 -1 0 2 0 4 2 6 -3 8 12 12 9 5 8 3 9 11 15 5 4 1 3 4 5 4 0 2 5 3 VINDASÖM HELGI Horfur eru á strekk- ingi víða við suður- og vesturströndina í dag en hægari vindi annars staðar. Laugardagurinn heilsar með úrkomu en síðan léttir til suðvestan- og vestanlands er líður á daginn. Á sunnudaginn verð- ur þurrt að mestu N- og V-til. Soffía Sveinsdóttir Veður- fréttamaður EFNAHAGSMÁL Guðbjartur Hannes- son, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir til greina koma að leggja á nýtt hátekjuþrep í tekju- skatti við endurskoðun skattkerfis- ins sem á að ljúka við fyrir árið 2011. Jón Steinsson, lektor í hagfræði við Columbia-háskóla í New York, sagði í grein í Fréttablaðinu í gær að erfitt væri að skilja af hverju þær skattatillögur ríkisstjórnarinnar, sem bíða meðferðar Alþingis, geri ekki ráð fyrir „fjórða skattþrepi á tekjur yfir einni milljón króna á mánuði og ef til vill fimmta skatt- þrepi á tekjur yfir svo sem 2,5 millj- ónir króna á mánuði.“ Hann segir íslenska skattkerfið hið hægrisinn- aðasta meðal efnaðra ríkja innan OECD og langt til hægri við skatt- kerfi Bandaríkjanna. Guðbjartur segir rétt að skatt- kerfið hafi verið afar hægrisinnað undanfarin ár: „Það dró í sundur með þeim sem höfðu minni tekur og þeim sem höfðu betri tekjur í skattkerfinu eins og það var áður.“ Guðbjartur telur að tillögur ríkis- stjórnarinnar um auðmannaskatt og hækkaðan fjármagnstekjuskatt séu til bóta hvað þetta varðar. Hann segir að nýtt þrep í hátekju- skatti gæti tekið gildi 2011 að lok- inni þeirri heildarendurskoðun skattkerfisins sem fram undan er. Þetta hafi ekki verið gert í þessari atrennu enda sé mikilvægt að endur skoða kerfið í heild og kanna áhrif persónuafsláttar á skattbyrð- ina. Hann vill ekki nefna prósent- ur og fjárhæðir sem miða eigi við. „Eitt af því sem mikilvægt er að skoða er hvernig tekjuskiptingin er í dag. Hún hefur breyst mikið í hruninu.“ Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, er ósammála og segir að lýsing Jón Steinssonar á íslenska skatt kerfinu sé ekki rétt enda vanti inn í hana að tekið sé tillit til áhrifa per- sónuafsláttar. „Sambland persónu- afsláttar og skattprósentu gerir að verkum að íslenska tekjuskattkerfið er stighækkandi; því hærri tekjur, því hærri prósentu greiðir fólk í skatt.“ Guðlaugur Þór vísar líka á bug flokkun Jóns Steinssonar í hægri- og vinstrisinnuð skattkerfi. Fáein ár séu síðan vinstriflokkar á Íslandi kvörtuðu undan háum jaðar sköttum í íslenska skattkerf- inu. Nú séu ríkisstjórnarflokkarnir að endurvekja jaðarskattana. „Ef þessar skattkerfisbreytingar ríkis- stjórnarinnar ná fram að ganga munu þær þýða hækkun skatta á allar tekjur,“ segir Guðlaugur Þór. peturg@frettabladid.is Vill nýtt skattþrep á háar tekjur frá 2011 Formaður fjárlaganefndar vill skoða nýtt skattþrep að lokinni endurskoðun skattkerfisins. Gæti tekið gildi árið 2011. Ríkisstjórnin endurvekur jaðarskattana, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. SKATTBYRÐI Upplýsingar um tekjuskiptingu á Íslandi eftir hrunið liggja ekki fyrir. Þeirra verður aflað við endurskoðun skattkerfis- ins, sem á að ljúka á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt 22 ára karl í 18 mánaða fangelsi, þar af 15 á skilorði, fyrir að hafa samræði við tólf ára stúlku í júlí 2007. Honum er gert að greiða stúlkunni 400 þúsund krónur í skaðabætur. Maðurinn og stúlkan spjölluðu nokkrum sinnum saman á netinu áður en þau hittust. Hann bauð henni heim til sín til að horfa á mynd. Það endaði með því að maðurinn hafði samræði við hana, auk fleiri kynlífsathafna. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í fimmtán mán- aða fangelsi, þar af tólf á skil- orði. - jss Hæstiréttur þyngir dóm: Hafði samræði við tólf ára SJÁVARÚTVEGUR Bráðabirgða- niðurstöður rannsóknar leiðangurs Hafrannsóknastofnunar staðfesta að sýkingin í íslensku sumargots- síldinni nær til yfir fjörutíu pró- senta af stofninum. Jafnframt benda niðurstöður til þess að veiðistofninn sé minni en talið var eftir mælingar í október. Í leiðangri Hafró, sem lauk á miðvikudag, var metið magn og útbreiðsla sumargotssíldar við Ísland. Verkefnið, sem stóð í sautján daga var unnið í sam- starfi við útgerðir síldveiðiskipa, sem könnuðu hluta rannsókna- svæðisins. Dröfn RE kannaði veiðisvæðið við Breiðafjörð auk þess sem gerð var athugun á útbreiðslu og mergð smásíldar allt frá Breiðafirði, vestur um að Öxarfirði. Síldveiði- skipin Börkur NK, Háberg EA, Faxi RE, Lundey RE og Álsey VE tóku þátt í mælingum á svæðinu frá miðjum Austfjörðum suður um að Breiðafirði. Ástæður þess mismunar sem kom fram á stærð veiðistofnsins geta verið ýmsar; mæliskekkja og aðstæður til mælinga sem voru ekki taldar eins góðar nú og þær voru í október vegna dreifingu síldarinnar og slæms veðurs. Hafrannsóknastofnunin mun áfram fylgjast með ástandi sýk- ingar í stofninum á komandi vikum í samstarfi við veiðiskip og með leiðangri í janúar. - shá Leiðangur staðfestir að yfir fjörutíu prósent íslenska síldarstofnsins eru sýkt: Veiðistofn minni en talið var SÍLDVEIÐI Í fyrra veiddist síldin upp í harðafjöru á Breiðafirði og við Suðurnes. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VIÐSKIPTI Skilanefnd Glitnis gæti eignast tíu prósenta hlut Salt Investments í lyfjafyrirtækinu Actavis, að því er segir á visir. is. Róbert Wess- mann á Salt Investments sem skuldar Glitni tæplega tuttugu millj- arða króna. Skuldin er vegna kaupa á hlutabréf- um í Glitni, meðal annars kaupa sem voru gerð ör fáum dögum fyrir fall bankans og hafa verið kölluð verstu viðskipti ársins. „Þá er enn óvissa hvort hægt er að rifta seinni kaupum Róberts í Glitni en hann hefur lýst yfir að hann hyggist sækja það mál. Hins vegar má ekki lögsækja gömlu bankana á meðan þeir eru í greiðslustöðvun,“ segir á Vísi. - gar Skuldir Róberts Wessmann: Skilanefnd fær hlut í Actavis RÓBERT WESSMANN KAUPMANNAHÖFN Röng frétt á netútgáfu arabíska dagblaðsins Gulf Times veldur því að danska utanríkisráðuneytið sér sig knúið til að leita leiðréttingar. Í frétt- inni segir frá því að Danir ætli, líkt og Svisslendingar, að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort heimilt verði að reisa bæna- turna á moskur múslima í Dan- mörku. Eftir uppþotin vegna teikninga af Múhameð spámanni í Jótlands- póstinum fyrir nokkrum árum eru Danir passasamir á slíkar rangfærslur. „Við reynum að slökkva alla slíka smáelda sem kvikna,“ hefur Politiken eftir Klavs A. Holm sendiherra. - gar Danska utanríkisráðuneytið: Bænaturnafrétt skapar vanda Sveitir sameinast Björgunarsveitin í Dalvík og Björg- unarsveit Árskógsstrandar hafa verið sameinaðar og starfa nú undir merkj- um Björgunarsveitar Dalvíkur. ÖRYGGISMÁL LANDBÚNAÐUR Íslandsmet hefur verið sett á Skjaldfönn í Ísa- fjarðar djúpi í þyngs dilkakjöts, að því er kemur fram í Bænda- blaðinu. Þar segir að meðalþyngd dilkanna hafi verið yfir fjöru- tíu kíló á hverja kind með lambi. Bændablaðið segir þennan árangur bænd- anna Indriða Aðalsteinssonar og Kristbjörgu Lóu Árnadóttir á Skjaldfönn vera afrek. „Má segja að þau smeygi sér inn fyrir Gullna hliðið,“ segir blaðið og vitnar í tólf ára gamalt viðtal þar sem þau hjón einmitt lýstu því takmarki sínu að má meðalþyngdinni yfir 40 kíló. - gar Draumur rættist á Skjaldfönn: Þyngstu dilkar í sögu landsins INDRIÐI AÐALSTEINSSON GENGIÐ 03.12.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 221,6056 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 120,98 121,56 201,58 202,56 183 184,02 24,588 24,732 21,715 21,843 17,815 17,919 1,3764 1,3844 194,95 196,11 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.