Fréttablaðið - 04.12.2009, Side 6

Fréttablaðið - 04.12.2009, Side 6
6 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR STJÓRNMÁL Telji stjórnin sig ekki geta náð betri samningi um Icesave á að leyfa henni að bera ábyrgð á því og taka fyrir næsta mál. Mörg önnur mál þarf að ræða. Yfirbragð- ið á þeirri pólitík sem er ástunduð á Alþingi þessa dagana, þar sem málþófið er þaul- skipulagt, er ekki fallegt. Þetta er skoðun Guðmundar Steingrímssonar, þingmanns Fram- sóknar, á stunda- töflu stjórnar- andstöðunnar sem sagt var frá í blaðinu í gær. „Ég tek ekki þátt í þessu. Ég hyggst greiða atkvæði á móti Icesave-samningnum og hef lýst þeirri afstöðu minni og rök- stutt í ræðu, en ég hef aldrei verið á leiðinni á neina stundaskrá um það að tala um þetta mál,“ segir hann. Guðmundur telur mikilvægara að taka önnur mál á dagskrá og hefur aldrei verið hrifinn af málþófi. „Ég tel eðlilegast að menn eigist við með rökum og setji þau skýrt fram með innihaldi en ekki magni. Mál eiga að geta haft sinn fram- gang og um þau greidd atkvæði. Mér finnst yfirbragðið á þessari pólitík ekkert sérstaklega fallegt og þess vegna finn ég mig engan veginn í þessu og tek ekki þátt í þessu,“ segir hann. Nú séu gríðarlega mörg verkefni sem þurfi að taka ákvarðanir um. „Einhvern tíma vil ég fá að ýta á bjölluhnappinn og láta afstöðu mína í ljós. Þá láta hinir sína afstöðu í ljós líka. Þannig virkar lýðræðið,“ segir Guðmundur og telur mikil- vægt að almenningur viti að ekki allir stjórnarandstöðuþingmenn taki þátt í málþófinu: „Ég er ekki mikið fyrir svona vinnubrögð á þingi,“ segir hann. klemens@frettabladid.is Ekki fallegt yfirbragð á Icesave-umræðum Þingmaður Framsóknar segist ekki taka þátt í skipulögðu málþófi stjórnarandstöðu því lýðræði felist í því að láta afstöðu sína í ljós. Hann finni sig ekki í þessu. „Ég er ekki mikið fyrir svona vinnubrögð á þingi,“ segir Guðmundur Steingrímsson. HLÝTT Á RÆÐUHÖLD Hart var tekist á við upphaf þingfundar í gær um þá ákvörðun stjórnarmeirihlutans að efna enn á ný til kvöldfundar um Icesave. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Eftirtaldir þingmenn eru á stundaskrá stjórnarandstöðunnar fyrir Icesave- umræður. Á listanum sést hvenær þeir stíga í pontu, hve lengi þeir tala (tuttugu mínútur), og hvenær þeir stíga niður. Þá sést hvaða tveir þingmenn veita andsvör og hve miklum tíma þeir eyða í þau (fimmtán mínútum). Einnig er gert ráð fyrir athugasemdum Illuga Gunnarssonar um fundarsköp, að lokinni ræðu hans. Stjórnarandstaðan var búin að skipu- leggja málþóf frá klukkan 16.00 til 01.30. MÁLÞÓFSLISTINN Ásbjörn Óttarsson Birgir Ármannsson Birgitta Jónsdóttir Birkir Jón Jónsson Einar K. Guðfinnsson Eygló Harðardóttir Guðlaugur Þór Þórðarson Gunnar Bragi Sveinsson Höskuldur Þórhallsson Illugi Gunnarsson Jón Gunnarsson Margrét Tryggvadóttir Ólöf Nordal Pétur Blöndal Ragnheiður Elín Árnadóttir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Sigurður Ingi Jóhannsson Siv Friðleifsdóttir Tryggvi Þór Herbertsson Þór Saari ALÞINGI Þingmenn tókust hart á við upphaf þingfundar í gærmorgun um þá ákvörðun ríkisstjórnarmeiri- hlutans að efna á ný til kvöldfund- ar um Icesave-frumvarpið. Fundur hófst kl. 10.30 en hafði áður staðið alla nóttina og til klukkan hálfsjö í gærmorgun. Áður en umræður hóf- ust á ný var deilt í um fjörutíu mín- útur um fundarstjórn forseta. Björgvin G. Sigurðsson, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar, sagði að Alþingi væri haldið í gísl- ingu og hvatti þingforseta til þess að halda fundi áfram uns mælenda- skrá væri tæmd. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknarflokks- ins, sagði ekkert að því að stjórnar- andstaðan skipulegði vinnu sína. Nýjar upplýsingar hefðu komið fram á næturfundum. Stjórnar- andstaðan hefði margsinnis sagst tilbúin að greiða fyrir öðrum málum sem ríkisstjórnin vildi setja á dagskrá. Pétur Blöndal og fleiri vísuðu í yfirlýsingar Ástu Ragn- heiðar Jóhannesdóttur þingforseta um að hún vildi breyta Alþingi í fjölskylduvænan vinnustað. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagði að öll þessi umræða væri „ábyrgðarlaus skrípaleikur sem fer að valda þjóð- inni skaða en er fyrst og fremst Alþingi til skammar“. - pg Enn deilt um kvöldfundi á Alþingi vegna Icesave-frumvarpsins: Fer að valda þjóðinni skaða FRÁBÆRLEGA UNNIN ÆVISAGA saga Runólfs Sveinssonar sandgræðslustjóra og algerðar Halldórsdóttur tir Friðrik G. Olgeirsson.f læsileg bók um merkaG frumkvöðla. SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON Ætti að kæra þá frambjóðendur til Alþingis sem ekki skila fjár- hagslegu uppgjöri samkvæmt lögum? Já 87,6% Nei 12,4% SPURNING DAGSINS Í DAG Er umræða stjórnarandstöð- unnar á Alþingi um Icesave- samninginn orðin of löng? DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Hér- aðsdóms Reykjavíkur, í svokölluðu Papeyjarmáli, yfir þremur fíkniefnasmyglurum sem reyndu að smygla rúmum 55 kílóum af amfetamíni, tæpum 54 kílóum af kannabisefnum og 9.432 e-töflum til landsins. Fíkniefnin voru flutt áleiðis til Íslands frá Belgíu með skútunni Sirtaki, en slöngubát síðan siglt til móts við hana. Efnin voru flutt milli báta og slöngubátnum síðan siglt með efnin til Djúpa- vogs. Þaðan voru efnin flutt yfir í bifreið og henni ekið áleiðis til Selfoss, en lögregla stöðvaði hana við Höfn og lagði hald á þau. Dómur Hæstaréttar fól í sér þá breytingu að gæsluvarðhald sem Peter Rabe og Árni Hrafn Ásbjörnsson sættu við rannsókn málsins skyldi dragast frá fangelsisdómi þeirra. Peter fékk tíu ára dóm en Árni Hrafn fékk níu ára dóm. Auk þeirra hlaut Rúnar Þór Róbertsson tíu ára fangelsisdóm. Þessir þrír voru gripnir um borð í skútunni Sirtaki á leið út úr íslenskri lögsögu. Jónas Árni Lúðvíksson fékk fimm ára dóm, Pétur Kúld Pétursson þriggja og hálfs árs dóm og Halldór Hlíðar Bergmundsson fékk þriggja ára dóm. - jss Hæstiréttur staðfestir dóma yfir Papeyjarsmyglurum: Tveir fengu tíu ára fangelsisdóm SMYGLSKÚTAN Mennirnir reyndu að flýja á smyglskútunni. STJÓRNMÁL Rúmlega 20.000 manns hafa skrifað undir áskorun á heimasíðu Indefence-hópsins, að því er segir í tilkynningu frá honum. Fjöldi undirskrifta nálgist viðmið frumvarps um þjóðar- atkvæðagreiðslur, sem bíður afgreiðslu Alþingis, um að tíu pró- sent kosningabærra manna geti knúið fram slíka kosningu. Hópurinn segir „ólíðandi að fjármálaráðherra hafi verið beitt- ur þvingunum til að samþykkja Icesave samninga“. Þjóðin geti sent Bretum og Hollendingum skilaboð um að hún sætti sig ekki við annað en núgildandi fyrirvara. - kóþ Indefence-hópurinn: Yfir 20.000 undirskriftir KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.