Fréttablaðið - 04.12.2009, Síða 47
4. desember föstudagur 13
eftir gamla laginu og meðal ann-
ars gamall maður í því hlutverki
einu að búa til allar prótótýpur úr
pappír. Þau Hugrún og Magni segj-
ast leggja mikið upp úr þessu. Þau
vilji gera sitt til að sjá til þess að
skórnir verði eins þægilegir og
vandaðir og hugsast getur.
MÍÓ LITLI
Hugrún og Magni eiga fimmtán
mánaða gamlan son sem heit-
ir því viðkunnanlega nafni Míó.
Hann hefur heimsótt fleiri lönd
og álfur en flestir aðrir á svipuð-
um aldri. Vikugamall hafði hann
komið til þriggja landa en í heild
hefur hann farið í meira en þrjátíu
flug. „Ég er enn þá að bíða eftir að
fæðingarorlofinu,” segir Hugrún.
„Ég ætla að taka það út í apríl.
Það sagði ég reyndar líka í apríl
á síðasta ári.“ Annars segist hún
alveg geta hugsað sér að vera meira
í því að búa til börn. „Það er best í
heimi að búa til börn. Það versta
er að mann langar til að gera svo
margt fleira en það,“ segir hún. Að-
alatriðið sé hins vegar að þau fjöl-
skyldan geti verið mikið saman.
„Mér finnst við bara heppin að
geta verið svona mikið saman.
Þannig að þó þetta sé mikil vinna
er það bara allt í lagi. Við erum bara
glöð og þakklát fyrir það sem við
höfum.“
LEYNILEGIR DRAUMAR
Fram undan eru fleiri ferðalög og
meðal annars tískuvikurnar í Lond-
on og París fljótlega eftir áramót-
in. Miðað við hvað þau Magni og
Hugrún virðast aktív er ekki annað
hægt en að reyna að komast að
því hvaða sigra þau sjá fyrir sér í
framtíðinni.
„Við erum auðvitað með plan,“
segir Magni og Hugrún tekur við
orðinu: „Planið er bara að vera dug-
leg og gera þetta vel, koma þessu
vel af stað, svo maður geti haldið
áfram og byrjað á einhverju nýju,“
og þau verða bæði sposk á svip, en
segja ekki meira og ætla sér greini-
lega ekki að ljóstra upp draumnum
alveg strax.
Magni: Erfið
spurning, fer
allt eftir hvor-
um megin ég
fer fram úr á
morgnana. Er
samt alltaf heitur
fyrir Peter Jensen og
Vivienne Westwood.
Tónlistin í eyrunum:
Hugrún: Gjarnan sú sem er í eyr-
unum á Magna.
Magni: Nýja platan hennar Krist-
ínar Bergs, Mubla, og Sigríður
Thorlacius og heiðurspiltar.
Vetrarlínan Skórnir frá kron by kronkron eru í senn klassískir, litríkir, skemmtilegir, fallegir og þægilegir. Því skyldi engan undra að þeir hafi náð slíkum vinsældum. MYNDIR/SAGA SIGURÐARDÓTTIR
vellíðan
slökun
streitulosun
dekur
hvíld
afslöp
– gefðu vellíðan
Opið
Mánud.–fimmtd. 6:00–21:00
Föstudaga 6:00–20:00
Laugardaga 9:00–18:00
Sunnudaga 10:00–16:00
Hilton Reykjavik Nordica
Suðurlandsbraut 2
Sími 444 5090
nordicaspa@nordicaspa.is
www.nordicaspa.is
Gjafakort í heilsulind NordicaSpa er tilvalin gjöf handa þeim sem þú
vilt gleðja. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af nudd- og snyrtimeðferðum fyrir
bæði konur og karla. Í heilsulindinni eru tvær ilmgufur, tveir heitir pottar þar sem
boðið er upp á herðanudd, slökunarlaug og úti á veröndinni er heitur pottur
og sauna. Hægt er að kaup gjafakort fyrir ákveðna upphæð í tiltekna nudd-
eða snyrtimeðferð og ýmsa spa pakka. Einnig er hægt að kaupa gjafakort í
heilsuræktina – meðlimakort eða á hin ýmsu námskeið. Við leggjum áherslu á
andlega og líkamlega vellíðan og er NordicaSpa heimur út af fyrir sig.
gjafakort
Gefðu