Fréttablaðið - 04.12.2009, Síða 53
4. desember föstudagur 19
Verslunin Friis Company í Kringlunni heldur upp á fimm ára afmælið
sitt um þessar mundir með ýmsum hætti. Hún hefur til dæmis fært
út kvíarnar, hoppað niður um eina hæð og komið sér fyrir í helmingi
stærra plássi en hún var í áður. Því njóta hinar dönsku vörur sín enn
betur en fyrr, veskin, nærfötin, skórnir, beltin og hinir ýmsu fylgihlutir.
„Já, við færðum okkur niður á næstu hæð og erum núna í plássinu
sem Konfektbúðin var í á sínum tíma, rétt við blómatorgið, á ská á
móti Polarn og Pyret,“ segir
Kamilla Sveinsdóttir
sem á búðina ásamt
Þórdísi Lárusdóttur.
„Við vorum í óskaplega
litlu rými á efri hæð-
inni,“ segir Kamilla.
„En nú höfum við meira
svigrúm,“ bætir hún við
hress. - gun
Kamilla og Þórdís alsælar í nýja plássinu þar sem þær segjast hafa mun
meira andrými en á efri hæðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
H ingað til hefur ekki þótt smart að skarta sokkum við háa hæla en slíkt má
nú sjá nokkuð víða.
Á tískusýningu Christian
Dior fyrr í vetur vöktu ökkla háir
glimmersokkar við himinháa
platform-hæla athygli. Fleiri
hafa farið sömu leið og hafa
hönnuðir Burberry leikið sér
með krumpusokka sem voru
síðast heitir á áttunda ára-
tugnum. Ökklaháar legghlífar
við háa hæla sjást hjá Chloe og
litskrúðuga sokka við opna skó
er að finna hjá John Galliano,
Rochas og fleirum.
Yfirleitt eru sokkarnir bornir
við skó sem eru opnir í tána og
virðist mest lagt upp úr því að
litirnir og áferðin stangist sem
mest á við annan klæðnað. - ve
Ökklasokkar
við háa hæla
Christian Dior og fleiri hönnuðir leggja nú upp með ökklasokka.
Stækkaði um helming
við hlustum!
Gjöfin þín er í Lyfja & heilsu
Eiðistorgi, Kringlunni og Selfossi!
Ef keyptar eru Clinique vörur fyrir 4.900 kr eða meira*
• Youth Surge SPF 15 Age Decelerating Moisturizer 15ml
• Liquid Facial Soap Mild 30ml
• Lash Doubling Mascara svartur, 4g
• Aromatics Elixir 4ml
• High Impact Lip Colour litur Extreme Pink 4g
• Clinique lyklakippa með: Superbalm Moisturizing Gloss litur Raspberry 5ml
*Meðan birgðir endast
Verðgildi er 15.000 kr
Ofnæmisprófað.
100% ilmefnalaust.
Blaðberinn bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...