Fréttablaðið - 04.12.2009, Side 70
46 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> PETER VILL EKKI KATIE
Peter André hefur tilkynnt fyrrver-
andi eiginkonu sinni, Katie Price,
að hann taki ekki við henni aftur.
Katie hefur losað sig við bar-
dagakappann Alex Reid og
vildi víst ólm koma aftur
heim til Peters, sem vill
ekkert með hana hafa.
Leikstjórinn Roman Polanski
mun dvelja í stofufangelsi í fjalla-
kofa í Sviss þangað til ákveðið
verður hvort hann verður fram-
seldur til Bandaríkjanna fyrir að
hafa nauðgað þrettán ára stúlku
árið 1977. Undanfarna tvo mán-
uði hefur Polanski þurft að dúsa
í fangelsi í Sviss eftir að hann
var handtekinn er hann ætlaði
að taka á móti verðlaunum fyrir
æviframlag sitt til kvikmynda-
listarinnar. Yfirvöld í Bandaríkj-
unum hafa reynt að fá hann fram-
seldan til landsins síðan hann
stakk af þegar réttarhöldin yfir
honum voru í þann mund að hefj-
ast árið 1978.
Stofufangelsi
í fjallakofa
ROMAN POLANSKI
Leikstjórinn heimsþekkti mun dvelja í
stofufangelsi í Sviss á næstunni.
Leikkonan Edda Heiðrún Backman efnir
til jólatrjáasölu á Hljómalindarreitnum
fyrir jólin en þar er nú risinn jólamark-
aður. Edda rekur sem kunnugt er versl-
unina Súkkulaði og rósir en á markað-
inum verður hún með jóladót og jólatré
af ýmsum stærðum og gerðum til sölu
og er það Skórækt ríkisins sem sér um
að höggva tréin. „Edda, eins og aðrir
kaupmenn, þurfa að gera svolítil við-
skipti um jólin til að framfleyta sér.
Fólk getur valið á milli blágrenis,
rauðgrenis og stafafuru og einnig á
milli þriggja trjástærða. Þeir sem vilja
tré geta pantað þau fyrirfram með því
að senda vefpóst á sukkuladi@rosir.is.
Við verðum svo með trén í jólaþorpinu
frá 18. desember, en þangað getur fólk
komið og skoðað tréið og stærð þess og
lögun,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir,
fyrrverandi ráðherra og vinkona Eddu
Heiðrúnar.
Hún tekur fram að máli skiptir að
fá pantanirnar inn sem fyrst svo hægt
sé að láta Skóræktina vita hversu
mörg tré eigi að höggva. „Við verðum
þarna fram á Þorláksmessu að pakka
inn trjám eftir kúnstarinnar reglum.
Maður verður að hafa eitthvað að
gera á aðventunni og magna
svolítið upp jólaskapið,“
segir Kolbrún og hlær. Á
Hljómalindarreitnum verð-
ur margt annað skemmti-
legt í boði og er víst að þar
verði margt um manninn
næstu daga þegar mið-
borgin fer að skreyta sig
með grænum greinum.
- sm
Edda selur jólatré
JÓLAMARKAÐUR Edda
Heiðrún býður fleira
en blóm og sælgæti í
verslun sinni. Nú selur
hún jólatré á Hljóma-
lindarreitnum.
Friðrik Þór Friðriksson
hyggst gera kvikmynd um
leiðtogafundinn sem þeir
Ronald Reagan og Mikhaíl
Gorbatsjov sóttu í Höfða
árið 1986 og kom Íslandi á
heimskortið. Friðrik ætlar
að vera á undan Hollywood.
„Börn eru í aðalhlutverkum en
ef myndin heppnast vel mun hún
höfða til alls mannkyns,“ segir
Friðrik Þór Friðriksson kvik-
myndaleikstjóri. Hann er að
skrifa handrit að kvikmynd þar
sem leiðtogafundur Reagans og
Gorbatsjovs er í forgrunni. Aðal-
persónurnar eru þó ekki þessir
valdamiklu menn heldur börn sem
klæða sig upp í líki geimvera og
vilja komast í tæri við þá. „Þær
fá afa sinn til að byggja geim-
skip og þetta heppnast allt svona
rosalega vel að þeir koma bara
um hæl,“ útskýrir Friðrik. Sannar-
lega óvænt og óvenjuleg nálg-
un á þennan merkisatburð í sögu
þjóðarinnar. „Þetta snýst síðan
upp í hálfgerð réttarhöld þeirra
yfir þeim Reagan og Gorbatsjov
og börnin verða miklir áhrifavald-
ar á þessum fundi. Mesta spennan
snýst síðan um hvort þetta athæfi
komist upp eður ei.“
Leiðtogafundurinn kom Íslandi á
kortið, í orðsins fyllstu merkingu.
Heimspressan beindi kastljósinu
að þessu litla landi í norðurhöfum
á meðan leiðtogarnir tveir ræddu
um hugsanlega þíðu í kalda stríð-
inu. Friðrik man sjálfur ákaflega
vel eftir þessum tíma. „Já, við
vorum að gera Skytturnar á þess-
um tíma, vorum í næsta húsi með
þrjár kóreskar vélbyssur. En það
komst aldrei upp.“
Barnamynd Friðriks er reynd-
ar ekki eina myndin um leiðtoga-
fundinn sem er í smíðum því breski
leikstjórinn Ridley Scott hefur
þegar lýst yfir að hann hafi mikinn
áhuga á að gera kvikmynd um leið-
togafundinn. Friðrik er hins vegar
hvergi banginn. „Ég verð bara að
vera á undan honum.“
Hugmyndin að þessari allsér-
stæðu kvikmynd er nokkuð gömul
að sögn Friðriks og hefur verið
lengi í kollinum á honum. Leik-
stjórinn kveðst þó ekki vita hve-
nær hægt verði að fara af stað, það
verði þó fyrr en síðar. Af öðrum
málum leikstjórans er það að
frétta að Mamma Gógó er að fara
út í hljóðblöndun en hún verður
frumsýnd í janúar. „Þetta verður
smellur. Annars verð ég fyrir von-
brigðum.“ - fgg
FRIÐRIK MEÐ BARNAMYND
UM LEIÐTOGAFUNDINN
„Þetta er alltaf jafnskemmtilegt og spennandi,“
segir Björgvin Halldórsson.
Árlegir jólatónleikar hans í Laugardalshöll verða
haldnir á morgun. Á meðal þeirra sem koma fram
auk Björgvins verða Borgardætur, Diddú, Egill
Ólafsson, Laddi, Savanna-tríóið og Sigríður og
Högni úr Hjaltalín. Dóttir hans, Svala, verður aftur
á móti fjarri góðu gamni, enda býr hún í Kaliforníu
ásamt félögum sínum í hljómsveitinni Steed Lord.
„Hún er reyndar að koma heim um jólin en hún
nær ekki þessum tónleikum. Hana langaði æðislega
mikið að vera með því henni finnst svo gaman að
þessu en Krummi verður bara í staðinn fyrir hana,“
segir Björgvin.
Tónleikarnir í Höllinni verða tvennir og er nán-
ast uppselt á þá báða. „Við reynum að brydda upp á
nýjungum í hvert skipti með nýjum flytjendum og
nýjum lögum. Ef við værum alltaf með sömu lögin
væri þetta minna mál. Við erum alltaf að reyna að
toppa sjálfa okkur, bæði í útlitinu og samsetningu á
prógramminu, og við erum sérlega ánægð með þetta
í ár,“ segir hann.
Efnahagsástandið er erfitt um þessar mundir og
hefur það haft sín áhrif á skipulagningu tónleik-
anna. „Aðföngin hafa hækkað en við erum að reyna
að gera þetta sem best úr garði án þess að það komi
niður á gæðunum,“ segir Björgvin og tekur fram að
miðaverðið sé það sama og fyrir tveimur árum. „Ég
er bara í skýjunum með þetta og hlakka mikið til.“
Nánari upplýsingar um tónleikana má finna á síð-
unni Jolagestir.is. - fb
Krummi í staðinn fyrir Svölu
Á ÆFINGU Björgvin á æfingu fyrir jólatónleikana sína ásamt
hljómsveitarstjóranum Þóri Baldurssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
A
FP/N
O
R
D
IC PH
O
TO
S
KVIKMYNDAR
LEIÐTOGAFUNDINN
Friðrik Þór er að skrifa handrit þar sem
leiðtogafundur Reagans og Gor-
batsjovs er í aukahlutverki en tveir
krakkar, klæddir upp sem geimverur,
eru í aðalhlutverki. Leiðtogafundurinn
hafði mikil áhrif á Ísland enda kom
hann landi og þjóð á heimskortið.
ST
O
FA
5
3
MÁ
LTÍÐ
MÁN
AÐA
RINS